Morgunn


Morgunn - 01.12.1982, Page 16

Morgunn - 01.12.1982, Page 16
118 MORGUNN listamaður. Samþættingin er jafn nauðsynleg og sundur- greiningin, hvort sem um vísindi eða listir er að ræða, bæði listamaðurinn og vísindamaðurinn greina viðfangs- efni sitt og varpa á það nýju ljósi. Þáttur tilviljunar í vísindum vE: Ég held að það gæti verið mjög athyglisvert að fá að heyra hvernig Torsten [Wiesel] fékk þá einkennilegu hugmynd að skáskjóta ljósi inn í auga tilraunadýrsins. TW: Þarna erum við komin að þætti tilviljunar i rann- sóknum, tilviljunar sem við veitum athygli og vinnum úr. Það sem við tókum eftir var, að þegar við lýstum óvart með ljósrönd upp í augað á tilraunadýrinu, svöruðu miklu fleiri frumur í heila þess en þegar við notuðum ljóspunkt, og við fórum að sjálfsögðu að athuga þetta nánar. vE: En kjarni málsins er, að þið veittuð þessu eftirtekt. GS: En sagðirðu þá við David [Hubel, sem hiaut Nóbels- verðlaunin ásamt honum fyrir þessar rannsóknir]: Nú skulum við prófa ljósrönd ... ? TW: Nei, alls ekki, Þetta var tilviljun. Við lýstum inn i augað með gömlu tæki sem Steve Kuffer | þekktur banda- rískur taugalífeðlisfræðingur] hafði smíðað. Við gátum breytt svæði ljósgeislans með því að renna fyrir hann skífu með misstóru Ijósopi. Stundum, en hvergi nærri alltaf, þegar við vorum að renna skífunni, svöruðu frumurnar mun. meira en áður. Þetta þótti okkur skrítið, en það var ekki fyrr en síðar að við gerðum okkur grein fyrir, að hallinn á geislanum skiptir meginmáli. Á þessu stigi máls- ins snerum við bara tækinu á ýmsa vegu og reyndum að sjá mynstur í svari frumanna. Hér er ekki um það að ræða að setjast niður og hugsa: Nú ætla ég að reyna þetta, það er bara að prófa sig áfram. Það tók okkur tíma að finna þetta, en það tók líka aðra 5 ár að trúa að eitthvað væri hæft í þessu.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.