Morgunn - 01.12.1982, Side 18
120
MORGUNN
vE: Við komum engu í verk ef við neyðumst til að lesa
öll þau ósköp sem birtast með þessu móti.
TW: Ég veit það. Þess vegna minntist ég á þetta. Þetta
er skelfilegt.
GS: Fyrir 15 eða 20 árum studdi Heilbrigðismálastofn-
un Bandaríkjanna svipaða starfsemi í Ameríku. Þeir köll-
uðu þetta „Bioquickies“. Maður sendi inn handrit sem
þeir sáu um að ljósrita og dreifa óbreyttu til allra sem
áhuga höfðu á þessu sviði og látið höfðu skrá sig.
AH: Var þetta ekki „Upplýsingamiðlunin" svokallaða
| The Information Exchange Group] ? Það var ein varðandi
vöðvarannsóknir sem var á vissan hátt nytsöm, en gallinn
var að þetta voru útdrættir, sem gáfu ekki eins nákvæmar
uppiýsingar og maður þarfnaðist, og svo var heldur ekki
hægt að vísa til þessara ritsmíða.
Ég vil fá nákvæmar upplýsingar um hvernig rannsókn
er gerð til að ég geti gert mér grein fyrir hvort ályktun
höfundar er á rökum reist, eða hvort, eins og von Euler
segir, leita megi annarra skýringa. Að sjá ekki annað en
útdrátt og ályktun höfundarins sjálfs er alls ekki nóg.
Sex vikna gamlar niðurstöður gamlar!
TW: En tölvuritin, sem ég minntist á, þurfa ekki að
leiða ti). minni nákvæmni í fréttaflutningi. Viljirðu fá út-
drátt, biður þú um hann, en þú getur líka fengið greinina
i heild ef þú kærir þig um. Það sem breytist verður tíminn
sem það tekur að koma upplýsingunum til skila. Sameinda-
líffræðingar segja að 6 vikna gamlar niðurstöður séu þegar
orðnar gamlar, og að megintækið til boðskipta núna sé
síminn. Þessa hraða er einnig farið að gæta í öðrum grein-
um og þess vegna held ég að tölvuvæðingin sé óhjákvæmi-
leg.
GS (við AH): Þú talar um að þú viljir fá nákvæmar
upplýsingar um i’annsókn, áður en þú leggur trúnað á nið-
urstöðuna. Á þetta við almennt eða aðeins um þitt sérsvið.