Morgunn - 01.12.1982, Blaðsíða 22
124
MORGUNN
ins vegna þess hvernig hann setur hana fram, og það er
mikilvægt.
Heimurinn er öðruvísi af því að þessar hugmyndir voru
setar fram á þennan veg, en ekki einhvern annan.
Þróun lífeðlisfrœðinnar
Spurning: Hvað um þróun lífeðlisfræðinnar í nánustu
framtíð?
TW: Er ekki best að prófessor von Euler svari þessu?
Hann er okkar reyndastur og hefur mesta yfirsýn.
vE: Nefndi einhver mig?
TW: Já, ég var að segja að þú vildir kannski skyggnast
inn í framtíðina.
vE: Nei, ég er miklu betur að mér um fortíðina.
TW: Það er einmitt það sem ég á við, það er eingöngu
á grundvelli fortíðarinnar sem hægt er að spá um fram-
tíðina.
AH: Ég held, að flestar meginframfarir okkar tíma hafi
komið öllum á óvart. Má ekki túlka það þannig að til
lítils sé að reyna að spá um framtíðina?
Eðli vísinda er að fást við hið óþekkta, og þú veist ekki
hvað þau leiða í ljós fyrr en þú stendur andspænis því.
TW: Giinther (Stent) skrifaði bók fyrir nokkrum árum
sem heitir ,,The Coming of the Golden Age“. Boðskapur
hans er að sumu leyti efasemdir um hugmyndir okkar um
stöðugar framfarir.
Ég fellst á, að það megi vel vera að við getum ekki sagt
fyrir þróun vísindanna, eða hvað muni gerast. Hins vegar
er ég bjartsýnn. Ég er þess fullviss að miklar framfarir
muni verða í líffræði og lífeðlisfræði, og ég horfi spenntur
til framtíðarinnar. Ég held að þetta gegnsýri okkur öll sem
vinnum á þessu sviði, vegna hinna gífurlegu framfara síð-
ustu áratuga.
vE: Já, við eigum von á ýmsu, en vitum ekki hverju.