Morgunn


Morgunn - 01.12.1982, Side 25

Morgunn - 01.12.1982, Side 25
VÍSINDIN, LÍFEÐLISFRÆÐIN, VITUNDIN 127 Svipað fyrir frosk og mann AH: En erfðaefnið stjórnar gerð amínósýranna og annars nauðsynlegs efnis, a.m.k. að mestu leyti. Það kunna að vera einhverjir þættir utan kjarnans sem hjálpa til, en þessir stjórnþættir eru allir til staðar við frjógvun- ina. Síðan bætast bara næringarefnin við, og þau eru ósköp svipuð fyrir frosk og mann, svo að munurinn hlýtur að i’áðast af erfðaefninu og þessum ákvarðandi frymisþátt- um. Hvort einhverjir hlekkir eru í milli, er svo aftur spurning. OS: Já, það er einmitt munurinn sem skiptir meginmáli. Við getum oft rakið mun, t.d. milli blárra augna og brúnna, til ákveðinna gena, og það gætum við eflaust gert varðandi muninn á froski og manni. Það getur til dæmis vel verið að maðurinn geti ekki endurnýjað sig á sama hátt og frosk- urinn vegna þess að hann skortir einhver gen. En hvernig froskurinn verður til, hvernig erfðaefni froska gerir hann að froski, er spurning sem ég efast um að hægt sé að svara, vegna þess hvernig hún er orðuð. Að mínu mati þýðir ekki að orða spurninguna á þennan hátt. Við getum sagt hvað skilur á milli tegunda, við getum jafnvel búið til lista yfir þau gen sem skilja okkur frá froskum, en hvernig þau stjórna gerð okkar er allt önnur spurning. AH: En hún er engu að síður mjög mikilvæg. í einhverri nierkingu orðsins stjórna genin gerð okkar og við virð- umst ekki hafa minnstu hugmynd um hvernig það gerist. GS: Við erum sammála um það. Uppbygging vöðvans pekkt — en glatast TW: Það er athyglisvert að rifja upp starf Spemanns °g samtíðarmanna hans [ Hans Spemann, þýskur fóstur- fi’æðingur] fyrir stríð. Þeir unnu sleitulaust í meira en 20 ár út frá forsendum sem leiddu þá á blindgötur, og hættu svo við allt.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.