Morgunn - 01.12.1982, Page 40
142
MORGUNN
hafi verið einskonar forfaðir þess sem nú er kallað ,dia-
thermy“ — þ.e.a.s. mikilli hitagjöf til líkamsvefjanna með
hjálp hraðgeislabylgna, svokallaðra örbylgna.
Næstan mætti nefna New York lækninn dr. Abraham
Ginsberg, sem fyrstur kom fram með „pulsed-high-
frequency electro-therapy" eða sem á íslensku mætti kalla
hátíðniraflækningu. Þessi lækningaaðferð hefur síðan 1934
verið viðurkennd í sambandi við sár, vöðvabólgur, liða-
gigt, sinatognun og jafnvel beinbrot. Lækningaaðferð þessi
á að gefa frumum líkamans möguleika til sjálfshjálpar. Svo
virðist sem frumur líkamans séu næmar fyrir ákveðinni
— hárnákvæmri — orkutíðni, púlshraða, endurtekningu og
straumstyrkleika. Þessir þættir eru þekktir sem ,,windows“
eða gluggar, í óeiginlegri merkingu. Eða eins og dr. Robert
O. Besker, frá Syracuse í New York-ríki í Bandaríkjunum,
komst að orði: ,,Ef þú ert kominn út fyrir skotmál, þá er
bara að hafa frumurnar kyrrar og gera ekki neitt“. Þessi
tækni er mjög lík þeirri er H. Oldfield notar og hefur þróað.
Sá vísindamaður sem fyrstur helgaði líf sitt og starf
hugsjóninni um líf, heilbrigði og sjúkdóma í sambandi við
rafsegullækningar var Georges Lakovsky, franskur verk-
fræðingur. Skömmu fyrir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar
kom hann fram með þá kenningu að allt líf á jörðu hér
væri í raun undur, skapað og viðhaldið af rafsegulgeislum;
einkum þó kosmiskum geislum. Hann hélt því fram að
flestar geislanir þessar kæmu lengra að en frá sólkerfi
okkar, en blandist síðan geislun þessa sólkerfis, áður en
þeir dynja á móður jörð. Áleit hann að t.d. ýmsir hjarta-
sjúkdómar og aðrar uppákomur er hrjá menn og skepnur
væru af völdum ragsegulbylgna.
Lakhovsky vildi skilgreina sjúkdóma sem nokkurskonar
geislastrið (war of radiation) þar, sem orustuvöllurinn
væri fruma, sem aðalundirstöðu alls lífs. Þetta verkaði
eins og hringur, sem bæði tæki inn á sig og gæfi frá sér
geislun. Væri jafnvægi hringsins rofið, hefði slíkt sjúkleika
i för með sér.