Morgunn - 01.12.1982, Side 42
144
MORGUNN
Einnig mætti nefna tilraun hans með koparbelti og
keðjur, sem voru mikið í tísku á öldinni sem leið, en slíkt
áleit hann sem smækkaða mynd af „multible wave oscilla-
tor“ (MWO) sínum.
Vel vottfest og skráð er tilraun hans á Salpétriere
Hospital í París, þar sem hann kom fyrir æxlismyndandi
bakteríum i sex geraniumplöntum. Setti síðan einfaldan
koparhring um eina plöntuna. Af plöntunum sex dóu 5
innan y2 mánaðar; en sú með koparhringinn þreifst ágæt-
lega og bætti miklu við vöxt sinn. Engin merki um sjúk-
leika voru sjáanleg.
Geta má þess að H. Oldfield hafði aldrei heyrt getið um
Lakhovsky eða tilraunir hans, er hann bjó til ESM-tæki
sitt. 1 aðalatriðum eru aðferðir þeirra nokkuð líkar, nema
Harry Oldfield notar einskonar raföldu-dreifibyssu, sem
eins og hristir sérhverja líkamsfrumu, og þá þannig að
þær sýktu taka við sér og ná sér á strik aftur.
1 langri röð þeirra, sem reynt hafa að nota rafmagnið
til lækninga er Harry Oldfield einn sá yngsti og síðasti.
Stöðugt vex sá hópur lækna og líffræðinga sem er farið
gruna að rafmagn kunni að hafa miklu beinni áhrif á
lifandi efni en hingað til hefur verið álitið.
Þegar H. Oldfield kom fyrst fram með rannsóknarað-
ferð sína, sem hann kallaði „electrographic-scanning
method“ (E.S.M.) eða sem kannski mætti þýða á íslensku
með rafritunarskoðunaraðferð vakti hún takmarkaðan
áhuga, jafnt lækna af gamla skólanum og þeirra er frjáls-
lyndari voru. H. Oldfield, sem að loknu kennaranámi í líf-
fræði og eðlisfræði, starfaði um hríð sem kennari við æðri
skóla í London, fékk áhuga á sérstæðri ljósmyndatækni —
svo kallaðri Kirlianljósmyndun. Aðferð þessi var fundin
upp af rússneskum rafmagnsverkfræðingi, Kirlian, en
hann fékk áhuga á þessu eftir að hann af tilviljun varð
var við einkennilega útgeislun, er hönd hans fór í gegnum
hátíðniorkusvið. Hverskonar orka þetta væri gat hann ekki
skýrt, en honum tókst að útbúa Ijósmyndavél, sem sýndi