Morgunn - 01.12.1982, Qupperneq 44
146
MORGUNN
að frekari rannsóknum á þessum orkusvæðum (energy
fields).
Starfandi grasafræðingur í London á sviði jurtalækn-
inga, Torben Nordal, hefur kynnt sér ESM-aðferð H.
Oldfields og hefur nú sett upp rannsóknarprógram með
það fyrir augum að koma upp nokkurskonar tölvustýrðum
„data“-banka til skráningar á ákveðnum þrepum sveiflu-
sjár, sem koma fram við ákveðna sjúkdóma, þegar ESM er
notuð. Hann telur það engum vafa undirorpið að ESM geti
haft mikla þýðingu á sviði sjúkdómsgreininga. Hann er nú
sem stendur að rannsaka notagildi ESM í lækningaskyni.
En hvernig er nú rannsókn H. Oldfield á sjúklingum
háttað? Ólíkt því sem venja er hjá læknum, að því er varð-
ar sjúkrasögu og núverandi líðan og ástand sjúklings, þá
spyr hann engra spurninga, heldur byrjar rannsókn sína
með „detector“ eða einskonar leitartæki. Með því fer
hann yfir yfirborð líkamans án þess að sjúklingurinn þurfi
að afklæðast, en lætur þá leggja frá sér alla málma, sem
geta vei'kað truflandi.
Á tækjunum koma fram svaranir, þegar um oi’kuút-
streymi eða oi'kutap er að ræða. Sýktur vefur gefur öði’u-
vísi útslátt á tækinu en þegar heilbrigður vefur er fyrir
hendi. Bylgjutíðnin er yfirleitt nokkuð lík fyi'ir vissa sjúk-
dóma, þannig að smám saman hefur hann getað tengt
ákveðna tíðni við vissa sjúkdóma.
í ritinu „The Unexplained" (No. 102) er birt Kii’lian-
ljósmynd af fingurgómi krabbameinssjúklings, tekin af
H. Oldfieid, sem sýnir óreglulegt, hvítt, rósa og gult orku-
flæði út frá fingurgómnum. Á næstu mynd er sami fing-
urgómur ijósmyndaður eftir velheppnaða iækningu (ekki
H.O.), en þar sést greinilega reglubundið orkuflæði með
hvítdoppóttu innra lagi og fjólubláu ytra lagi — með öðrum
orðum gjörólíkt fyrri myndinni.
1 október 1981 tók breskur læknir Dr. Andrew Lockie
sér fyrir hendur að i’annsaka og prófa ransóknaraðferð H.
Oldfields og bauð honum að rannsaka 10 af sjúklingum sín-