Morgunn - 01.12.1982, Blaðsíða 47
NÝ AÐFERÐ TIL RANNSOKNA
149
Um líkt leyti hafði H.O. útbúið fyrstu radio-frequency-
scanning method (ESM). Með því að beina leitartækinu að
2 vefjasýnum, gat hann auðveldlega séð skíi’an mismun
á þeim merkjum sem komu frá heilbrigða vefjasýninu og
þeim sem komu frá því sýkta.
Nú notar hann minna Kirlianmyndatökutæknina í sjúk-
dómsgreiningum heldur en ESM-aðferð sína, þar sem hún
er öllu nákvæmari, ekki eins tímafrek og auk þess ódýrari.
Ég hef nú rakið að nokkru, og heldur lauslega þó,
sögu og störf helstu manna, einkum rannsóknaferil Harry
Oldfields, á sviði rafsegul krystal-rannsókna, einnig að því
er varðar lækningar, en skortir alla meiriháttar innsýn í
þessa hluti og læt því staðar numið.
Ég vil að lokum þakka þessum unga og geðþekka vís-
indamanni kærlega fyrir árangursríka og fróðlega heim-
sókn hans til Islands í haust, og vona að ég mæli þar fyrir
hönd okkar allra í S.R.F.I., er höfðu tækifæri til að sjá
hann og heyra.
Sjálfur lítur hann mjög hógværum augum á starf sitt,
sem hann telur að sé enn í burðarliðunum. Lofar slíkt góðu.
Reykjavík 20/11 1982.
Ath.: Þessi samantekt er unnin úr viðtölum við H.O. og upp úr
tveimur greinum úr ritinu ,,The Unexplained".