Morgunn - 01.12.1982, Side 74
176
MORGUNN
og birtu á vinnustað, en á ýmsan hátt reynir á augun í
störfum nútímaþjóðfélags, störfum sem forfeður okkar
áttu ekki að venjast; akstur margs kyns farartækja, stund-
um á miklum hraða í breytilegri birtu; rýni eða könnun
á smáatriðum í myndum og línuritum — og önnur ná-
kvæmnisverk sem reyna á augun. 1 vaxandi mæli vinna
menn slík störf og er mikilsvert fyrir alla, sem hlut eiga
að máli, að menn villist ekki í rangt ævistarf á vinnu-
markaðnum.
Augnafræðingur hjá Heilbrigðismálastofnun Sameinuðu
þjóðanna, Björn Thylefors, fjallar um blindu, ýmsar teg-
undir blindu og tíðni hennar í heiminum. Á að giska 30—
40 milljónir mann munu vera blindir og er þá skilgrein-
ingin á blindu eitthvað á þessa leið: að geta ekki talið
fingur í þriggja metra fjarlægð með því auga sem betur
sér, ef munur er á, jafnvel í gegnum besta sjóngler.
Blinda er mörgum sinnum algengari í þróunarlöndum en
á Vesturlöndum, sums staðar 10 til 20 sinnum algengari,
en orsök biindunnar má oft rekja til næringarskorts og
smits. Ýmsar tegundir blindu eru til, sumt má stundum
lækna (ellidrer), en ógerningur er að ráða bót á öðru.
Er hryggilegt til þess að vita, að 200 til 400 þúsund börn
í þróunarlöndunum missa sjónina ár hvert vegna skorts
á A-vitamíni.
Skammt er ég kominn á veg með UNESCO-heftið í þess-
ari upptalningu minni, en þangað vísa ég þeim sem vilja
fræðast um sjón og heilbrigðisþjónustu í þeim efnum í
heiminum. Mikið er gert til að menn fái að njóta vöggu-
gjafarinnar dýrmætu, augnanna, og hæfni þeirra til að
nýta geislaflóð sólarinnar í öllum þess tilbrigðum. En
betur má ef duga skal, því að augnveiki er síður en svo
á undanhaldi í sumum löndum Afríku og Asíu.
28. maí 1982.