Morgunn - 01.12.1982, Síða 79
FRÁ FÉFÖGUNUM
181
ustu utan skrifstofutíma. Einnig eru bækur til sölu á skrif-
stofu félagsins, svo og minningarkort SRFf.
6 félagsfundir eru ákveðnir í vetur,og verða þá daga,
sem hér segir: 15. okt., 18. nóv., 2. des., 17. febr., 14. apríl
og 19. maí.
Bretinn Harry Oldfield líffræðingur kemur í heimsókn
í október og dvelst hér frá 15.—29. okt. Hann hefur starfað
að rannsóknum á notkun Kirlian ljósmyndatækni til sjúk-
dómsgreininga í samvinnu við lækna við tvö sjúkrahús í
London. Hann mun flytja erindi á Hailveigarstöðum föstu-
daginn 15. okt. k. 20.30, og kynna nýja tækni við orku-
uppbyggingu með sérstöku tæki, sem hann hefur fundið
upp. Með aðferðum sínum hefur hann náð góðum árangri
í sambandi við ýmiss konar kvilla. Hann mun skýra frá
þessum aðferðum sínum á fundinum. Einnig mun hann
halda einkafundi fyrir félagsmenn í húsakynnum félags-
ins, Garðastræti 8. Tekið er við pöntunum á skrifstofu
félagsins.*)
Eileen Roberts er væntanleg í nóvember. Hún verður
hér frá 25. nóv. til 4. des. Hún heldur tvo skyggnilýsinga-
fundi á Hallveigarstöðum, föstud. 26. nóv. og þriðjud. 30.
nóv. Ennfremur verður hún með 2 fundi á Hallveigar-
stöðum 29. nóv. og 3. des. Á þessum fundum mun hún
verða með fræðslu og tilraunir og veita tilsögn þeim, sem
áhuga hafa. Þessir fundir eru opnir öllum félagsmönnum.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Athygli skal vakin á því, að vegna mikils innheimtu-
kostnaðar falla þeir út af skrá félagsins, sem ekki greiða
félagsgjöldin.
Stjórnin
*) Sjá grein eftir Geir R. Tómasson um Harry Oldfield á blaðsíðu 141
í þessu hefti. Ritstj.