Morgunn


Morgunn - 01.12.1990, Page 13

Morgunn - 01.12.1990, Page 13
MORGUNN____________________________Að hafa huRrckki til að syr^ja SR: Telur þú að allir syrgi á sama hátt? JT: Alls ekki. Ég hef hitt fólk sem þegar er í sorg eftir lát ástvinar en verður síðan allt í einu fyrir áfalli þegar sorgin slær það á nýjan hátt. Ég hef séð fólk sem virðist skipulagt um tíma eftir missi en hrakar svo síðar. I starfi mínu hef ég orðið vitni að nánast öllum mögulegum útgáfum sorgar. Ég held að við gerum alvarleg mistök með því að setja niður einhvern staðal fyrir því hvernig upplifa eigi sorg. Það mikilvæga í þessu er að sorgarferillinn er heilbrigður. Þegar við verðum fyrir missi, þá þurfum við að syrgja og finna til allra þessara tilfinninga, sársauka, sorgar, reiði og eftirsjár. Það er það sem hjálpar okkur til þess að jafna okkur aftur. Hið sérstaka eðli sorgarferilsins er samt sem áður breyti- legt frá persónu til persónu, allt eftir því sambandi sem var á milli viðkomandi og þess látna. Eitt sem ég hef alltaf áhuga á að athuga er hversu náið sambandið var fyrst og fremst. Mér lærist það æ betur að þegar þú hefur elskað einhvern einlæglega - þegar þú hefur sagt og gert allt það sem var að segja og gera - þá er auðveldara að skilja við þá. Það er aftur annað mál með sambönd þar sem eftir eru mörg óuppgerð og óleyst mál. Það eru samböndin sem svo erfitt er að slíta. SR: Er þó ekki tilfólk sem einjaldlega syrgir ekki? Ég er ekki að vísa til fólks sem felur eða afiieitar sorg sinni, heldur heilbrigðs fólks sem sættir sigauðveldlega við dauðann? JT: J ú, f áeinir. Ég hitti eitt sinn konu sem virtist hafa mikinn skilning og viðurkenningu á dauðanum. Þegar dótturdóttir hennar lést í slysi, þá var hún sorgmædd en hún syrgði ekki. Hún sagði mér að hún liti svo á að „fyrir handan" væri betri staður en sá sem við dveldum á, svo henni fannst dauðinn ekki yfirþyrmandi sorglegur. Hún kvaðst myndu sakna dótturdóttur sinnar en hún gæti ekki syrgt hana. JR: Burtséðfrásvona undantékningartilfellum, þá er tilfólk sem syrgir ekkialmennilega. Þú kallar það„árangurslausa" sorgíbók 11

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.