Morgunn - 01.12.1990, Side 23
MORGUNN
Rósa
Nokkrir mánuðir liðu (og ég var rétt að byrja að sjá ljós
lífsins aftur) þegar önnur miðaldra vinkona mín veiktist og
dó. Ég hafði oft kallað hana „litlu systur mína" og nú var
hún horfin.
Þá varð þriðji vinurinn, og sá sem ég hafði deilt með æsku
og síðar gleði og sorgum fullorðinsáranna, veikur, lá í
dauðadái í mánuð og skildi síðan eftir sig niðurbrotna fjöl-
skyldu.
Ég var nánast að missa móðinn eftir missi þessara dýr-
mætu vina minna þegar nýtt áfall skall yfir. Ástkæra og blíða
kisan okkar hvíta fór að éta minna og minna. Við héldum
að hún væri með einhverja tímabundna magakveisu og
báðum dýralækninn að kíkja á hana. Hann hristi höfuðið
dapurlega og tilkynnti okkur það álit sitt að hún væri þegar
komin á síðari stig sjúkdóms sem gjarnan herjaði á eldri
ketti.
„Hún á sennilega eftir u.þ.b. viku," sagði hann. Við mað-
urinn minn störðum á hann skelfingu lostin. Hvað var hann
að tala um? Vissulega hafði hún horast eitthvað en hún
hafði virst fullkomlega heilbrigð allt þar til fyrir nokkrum
dögum þegar hún hætti að vilja éta. Þá tóku við tvær ömur-
legar vikur þar sem við leituðum álits annarra dýralækna
sem allir staðfestu niðurstöðu þess fyrsta. Og áður en varði,
þá var þessi blíði og ástkæri félagi okkar líka farinn.
Margir mánuðir liðu og ég var enn að glíma við heilsuleysi,
leiða og erfiðar tilfinningar. „Ég veit að ég er sjálfselsk í sorg
minni," hugsaði ég. „Ég forðast ekki aðeins fólkið í kringum
mig, heldur er líka mögulegt að ég sé að gera látnum vinum
mínum brottförina erfiða."
Með sjálfri mér hafði ég fyrir löngu viðurkennt þá rökréttu
staðreynd að við værum öll á ferðalagi eilífs lífs. Ég var farin
að trúa því að við myndum að loknu þessu lífi flytja til
víðfeðmari og fallegri víddar. En nú á þessum sorgartíma
voru tilfinningar mínar tættar og hugsanir óvissar.
Ég ákvað að berjast gegn þunglyndi rnínu með því að
bjóða fáeinum ættingjum og vinum til kvöldverðar og taldi
að með því að skemmta öðrum, þá tækist mér að lífga
svolítið upp á tilveruna hjá sjálfri mér. Þetta kvöld tókst mér
21