Morgunn - 01.12.1990, Page 64
Spíritismi og dultrúarhreyfingar á fslandi
MORGUNN
Mjög kristnir......................60%
Ekki eins kristnir en þó trúaðir...48%
Eitthvað trúaðir...................36%
Trúlausir.................aðeins færri
Trúarþátturinn hefur mjög rnikið að segja í hamingjunni.
Hvað varðar viðhorf til vísinda og tækni eftir trú og hvort
menn töldu að tæknin ætti eftir að hafa góð áhrif á mannlífið
í framtíðinni, þá kom í ljós að 71% eða 3/4 aðspurðra töldu
að hún ætti eftir að hafa góð áhrif. Þó er rétt að hafa í huga
að svona niðurstöður má ekki taka hráar, þær þarf að túlka
og er það mikið verk.
Skýringin á því hversu mikill munur virðist vera á afstöðu
Islendinga til þessara hluta er sú hversu spíritisminn hefur
meiri áhrif hér en annars staðar.
Að lokum: Sögu Sálarrannsóknafélagsins og spíritismans
má skipta í ákveðin tímabil:, eftir viðmiðun við ákveðin
tímabil í sögunni. Upphafið er árið 1903 þegar Einar Kvaran
tekur að fræða vini sína um bók Mayers og hefja rannsóknir,
stofnað er tilraunafélagið og hefst þá 1. tímabilið, sem var
tímabil átaka. Það stendur yfir þar til félagið fellur út með
andláti Indriða miðils. Þá upphefst neðanjarðarstarfsemi. í
þessu var miðillinn miðpunktur starfsins.
Tímabil 2 hefst upp úr 1914 þegar Haraldur Níelsson hóf
að predika spíritisma í Fríkirkjunni. Mikill uppgangur var á
þessu tímabili en það stóð til 1930, og þá varð spíritisminn
að viðurkenndri stefnu. Blöð hættu að gera hann hlægileg-
an og það fer að þykja að vera fínt að vera í þessum félögum,
Sálarrannsóknafélaginu og Guðspekifélaginu. Listamenn
og skáld tóku að hneigjast að þessari stefnu. En þetta tímabil
einkennist líka af varfærni og því að leiðtogarnir voru á móti
innlendum miðlum. Fáir fundir voru haldnir. Einstaka með-
limír fengust á fundi en þeir voru lítið á vegum félagsins.
Forsvarsmenn félagsins vildu halda uppi fræðslu og upp-
lýsingum, þ.e. halda félaginu undir merkjum vísindanna.
A fjórða áratugnum upphefst nýtt skeið. Þá kemur upp
leiðindamál sem leiðir til málaferla. Leiðandi menn, svo sem
62