Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 8. F E B R Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
47. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
11 ÁRA DÝRAVINUR Á SUÐURNESJUM
Á HUND OG KÖTT OG
RÆKTAR HAMSTRA
TÍSKUVIKA Í NEW YORK
Hárskraut og
haustlitir
Auglýsendur eru öruggir
um athygli einmitt í
Morgunblaðinu og mbl.is
*Skv. fjölmiðlakönnun Capacent
Gallup nóv.08 - jan.09, allir
landsmenn 12 - 80 ára
92%
þjóðarinnar les
Morgunblaðið
og mbl.is
vikulega*
Minna kólesteról
www.ms.is
Benecol er náttúrulegur mjólkur-
drykkur sem lækkar kólesteról í blóði.
Mikilvægt er að halda kólesteról-
gildum innan eðlilegra marka því of
hátt kólesteról í blóði er einn helsti
áhættuþáttur kransæðasjúkdóma.
Ein flaska á dag dugar
til að ná hámarksvirkni.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
ÁKVEÐIN hætta getur verið á ruglingi og að kjós-
endur eyðileggi jafnvel óafvitandi kjörseðil sinn,
bjóði einhverjir flokkar fram fastan lista en aðrir
leyfi kjósendum að raða á listann. Þetta segir Ólafur
Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði. „Það þarf
að gæta þess að fyrirmælin séu skýr og reyna að hafa
reglurnar jafneinfaldar og hægt er.“
Vissulega séu dæmi um það frá nágrannalöndum
okkar að stjórnmálaflokkar hafi fengið að velja á
milli þess hvort þeir bjóða fram raðaðan eða óraðaðan lista. „Auðvitað er
alltaf hætta á að menn ruglist og í rauninni væri ástæða til þess að skerpa á
því að það sé alveg ljóst að sé vilji kjósandans skýr þá sé seðillinn gildur.“
Eitthvað hafi hins vegar verið um misræmi í því hér á landi hvernig regl-
ur um gilda og ógilda kjörseðla hafi verið túlkaðar milli kjördæma og því
sé full ástæða til að skerpa á þessu. | 2
Seðillinn gildur sé
vilji kjósandans skýr
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
ATBURÐARÁS var hröð þegar
hópur unglinga réðst á nema í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands fyrir um
fjórum vikum. Svo hröð að þó að
vinir fórnarlambsins kæmu til
hjálpar náði árásarhópurinn að
koma mörgum höggum á piltinn, á
höfuðið og annars staðar á líkam-
ann, og föstu sparki í síðuna, áður
en hjálpinni varð við komið.
Þolandinn fékk heilahristing og
marðist um allan líkamann auk
þess sem hann fékk stórt glóðar-
auga. Hann var frá skóla í tvær vik-
ur eftir árásina. Vilmundur Sig-
urðsson telur skólayfirvöld FSu
hafa brugðist í þessu máli og telur
ekki nóg að gert til að refsa þeim
sem að árásinni stóðu. Sá sem fyrir
árásinni varð er uppeldissonur Vil-
mundar. Hann segir skólameistara
ekki vilja tjá sig neitt um málið við
foreldrana og Sigurður Sigurjóns-
son, lögfræðingur skólans, sér um
samskipti við foreldrana fyrir hönd
skólans.
Sigurður segir skólann vera
griðastað þar sem vinnufriður og
almenn ró eigi að ríkja. Ef þær
vinnureglur sem eru viðhafðar eru
brotnar ákvarðar skólameistari við-
urlög gagnvart viðkomandi.
Vilmundur segir að sonur hans
hefði þurft að fá áfallahjálp eftir
árásina. „Ég veit ekki hvort við átt-
um rétt á henni en strax hefði átt að
skapa stráknum þær aðstæður að
hann kæmist aftur í skólann.“
Áfram níðst á þolandanum | 14
Skólayfirvöld brugðust
Fékk högg á höfuðið og spark í síðuna
áður en vinirnir náðu að hjálpa
Í HNOTSKURN
»Aldrei hefur neitt í líkinguvið þetta árásarmál gerst í
FSu. Ef vinnureglur eru
brotnar ákvarðar skólameist-
ari viðurlögin. Þau geta verið
áminning eða brottvísun úr
skóla.
»Þegar brot er framið ertekið mið af stjórn-
sýslulögum. Í þeim er að finna
almennar reglur fyrir stjórn-
völd að fara eftir.
ÁLFTIRNAR á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi voru eflaust mjög þakklátar
konunni sem þar átti leið um og kastaði til þeirra brauði en þessi stærsta
fuglategund landsins nærist allajafna á vatna- og mýrargróðri.
Áður en langt um ĺíður mun álftum hér á landi fjölga töluvert en stærst-
ur hluti íslensku álftanna hefur vetursetu á Bretlandseyjum. Í vor hefja
þær ferðalagið langa aftur á heimaslóðir.
Fá gott í gogginn á Bakkatjörn
Morgunblaðið/RAX
VÍSITALA íbúðaverðs á höfuð-
borgarsvæðinu hefur lækkað um
3,2 prósent síðastliðna þrjá mánuði
og var í lok janúar 337,6 stig. Ef
vísitalan heldur áfram að lækka
með jafn skörpum hætti verður hún
komin í 295 stig í lok árs eða sem
nemur um 13 prósent lækkun á
heilsársgrundvelli. Það er svipað
og vísitalan var í janúar 2006, skv.
upplýsingum á vef FMR.
Síðastliðna sex mánuði hefur vísi-
talan lækkað um 3,8 prósent og um
5,5 prósent undanfarna tólf mán-
uði. Vísitala íbúðaverðs á höfuð-
borgarsvæðinu sýnir breytingar á
vegnu meðaltali fermetraverðs.
Vísitalan fyrir febrúarmánuð þessa
árs verður gefin út þriðjudaginn
17. mars.
Skörp lækkun á íbúðum
á höfuðborgarsvæðinu
MEÐ lækkandi
verði á fast-
eignum, fyr-
irtækjum og
lausamunum
ýmsum ætlar
greiningadeild
ríkislögreglu-
stjóra að fjárfest-
ingar eins og fyr-
irtækjakaup
skapi „margvísleg tækifæri til að
fela ólögmæta starfsemi t.a.m. inn-
flutning fíkniefna og peningaþvætti
á bakvið löglegan rekstur“.
Í ársskýrslu deildarinnar kemur
einnig fram að talið er að neysla
dýrari fíkniefna, svo sem kókaíns,
fari minnkandi samtímis því sem
framleiðsla örvandi efna muni fær-
ast í vöxt hér. Hækkandi verð
áfengis og minni kaupmáttur leiði
til aukins smygls og sölu á heima-
brugguðum vínanda. »12
Tækifæri til að fela
peningaþvætti og smygl
Draga mun úr
neyslu dýrari efna.