Morgunblaðið - 18.02.2009, Side 2

Morgunblaðið - 18.02.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is „ÞETTA er algerlega samkvæmt þeim reglum sem gilda í borginni,“ sagði Óskar Bergsson, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi, spurður hví hann hefði haldið 25 manna móttöku fyrir sveitarstjórn- armenn Framsóknar sl. haust á kostnað borgarinnar. Reikningurinn hefði numið um 90 þúsund kr. en á borgarstjórnarfundi í gær sagði Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi að um væri að ræða misnotkun á fé borgarbúa og ætti Óskar að segja af sér. Málið „með ólíkindum“ Óskar, sem er formaður borg- arráðs, vísaði ásökununum á bug á fundi borgarstjórnar. „Ég verð að minna á og rifja upp fyrir borg- arfulltrúanum [Ólafi] að í borg- arstjórn Reykjavíkur hafa æðstu stjórnmálamenn og embættismenn borgarinnar rétt til þess að halda móttökur á sínum vegum. Undir það falla til að mynda borgarstjóri, for- seti borgarstjórnar og borgarráðs.“ Hann sagði að auki að það væri með ólíkindum að mál sem þetta væri tekið upp, „blásið út og kallaðir til allir fjölmiðlar landsins til þess að fara yfir það að hér sé um spillingu að ræða“. Óskar sagðist í gær hafa fengið leyfi fyrir móttökunni hjá forsæt- isnefnd borgarinnar en Dagur B. Eggertsson og Svandís Svav- arsdóttir hafa lýst því yfir að þau hafi gert athugasemdir við mót- tökuna og hafi komið þeim á óvart að móttakan hafi engu að síður verið haldin. Í Kastljósinu sagði Óskar að hann hefði ekki vitað af þessum at- hugasemdum fyrr en í gær. Þær hefðu komið honum á óvart þar sem hann vissi til þess að a.m.k. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefði haldið samskonar móttöku haustið 2004. ylfa@mbl.is Morgunblaðið/Golli Umdeilt Móttaka Óskars Bergssonar fyrir 25 sveitarstjórnarmenn Fram- sóknar á kostnað borgarinnar var rædd í borgarstjórn í gær. Óskar hafnar ásök- unum um spillingu Segist hafa fylgt gildandi reglum Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur og Rúnar Pálmason FRUMVARP dóms- og kirkjumála- ráðherra um breytingar á kosninga- lögum verður rætt í öllum þing- flokkum í dag. Frumvarpinu er ætlað að auðvelda persónukjör í alþingiskosningum. Ein þeirra breytinga sem mögulega líta dags- ins ljós, verði frumvarpið samþykkt, er að kjósendur geta raðað á lista í kjörklefanum. Flokkunum sé þó í sjálfsvald sett hvort þeir stilli fram röðuðum lista eða láti kjósendum eftir að sjá um niðurröðunina. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segir ef til vill litla ástæðu fyrir flokka að halda próf- kjör ætli þeir að láta kjósendum eft- ir að raða á listann. „Þeir gætu þó vissulega verið með prófkjör til að ákveða hverjir fái yfir höfuð að vera á listanum, því að þó að kjósandinn ráði röðinni er það flokksins að ákveða hvaða einstaklingar komast á listann.“ Vilji flokkurinn hins vegar halda gamla laginu geti hann það og sett fram raðaðan lista líkt og áður. „Um slíkan lista geri ég ráð fyrir að myndu gilda sömu reglur og nú gilda um útstrikanir,“ segir Ólafur. Þar með gæti viðkomandi flokkur ákveðið að láta núverandi reglur gilda fyrir sig. Þó að meira sé um útstrikanir undir þeim reglum megi engu að síður líka raða á lista. Mun auðveldara sé líka nú að beita út- strikun en á árabilinu 1959-1999. „Sumum finnst þó að það mætti fara enn neðar, en slíkt er alltaf mats- atriði.“ Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagði á blaðamanna- fundi með forystumönnum ríkis- stjórnarinnar í gær mikla eftirspurn eftir því að auka möguleika kjós- enda til að hafa áhrif á röð fram- bjóðenda á lista. Slíkt fyrirkomulag væri við lýði í nágrannalöndum okk- ar og í Danmörku hefðu flokkarnir talsvert svigrúm, „sem leiðir að vísu til þess að kosningaseðillinn getur orðið nokkuð flókinn“, bætti hann við. Ólafur staðfestir að í nágranna- löndum okkar hafi í einhverjum til- vikum verið heimilað að flokkar ráði sjálfir hvort þeir tefli fram föstum lista eða lista sem kjósendur raði á. Vissulega geti þó verið hætta á rugl- ingi í slíkum tilfellum og að kjós- endur eyðileggi óafvitandi kjörseðil sinn. „Þess vegna þarf að gæta þess að fyrirmælin séu skýr og reyna að hafa reglurnar jafn einfaldar og hægt er.“ Róttækar breytingar án samráðs allra flokka Þegar rætt var við Geir H. Haarde, formann Sjálfstæðisflokks- ins, í gærkvöldi hafði hann ekki séð frumvarpið. „Þetta mál var aldrei rætt í fyrri ríkisstjórn og ég tel sér- kennilegt að minnihlutastjórn sem situr í 10 vikur ætli sér að fara út í breytingar í þessa átt á kosninga- löggjöfinni þegar flokkarnir eru þegar byrjaðir að undirbúa prófkjör og raða á lista.“ Enn fremur sé vafasamt að taka upp svo róttækar breytingar á kosn- ingalöggjöf án samráðs allra flokka. Sjálfstæðisflokkurinn sé engu að síður tilbúinn að ræða málin og skoða frumvarpið fái hann tíma til. „Vinnubrögðin varðandi breytingar á borð við þessar hafa hins vegar hingað til verið þau að reynt sé að ná samstöðu, því þetta er nokkuð sem hefur mikil áhrif á alla, bæði flokkana og kjósendur,“ sagði Geir. Fá kjósendur að raða á lista?  Frumvarpi ætlað að auðvelda persónukjör í alþingiskosningum  Flokkarnir ráði hvort þeir raði á lista eða láti kjósendum það eftir  Reglurnar þurfa að vera jafn skýrar og einfaldar og hægt er FORSETI Íslands veitti í gær verkefninu Gönguhermi Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2009. Göngu- hermirinn er samstarfsverkefni verkfræðideildar og sjúkraþjálfunarskorar Háskóla Íslands. Voru það þau Andri Yngvason, nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði, Bjarki Már Elíasson vélaverkfræðinemi og Jóna Guðný Arthúrsdóttir, nemi í sjúkraþjálfun, sem unnu að verk- efninu. Morgunblaðið/Kristinn Gönguhermirinn verðlaunaður Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur kynnt borgarstjóranum í Reykjavík hugmyndir að samgöngumiðstöð við Reykjavíkurflugvöll í breyttri mynd. Gert er ráð fyrir mun minni og ódýrari byggingu en rætt hefur verið um. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, fóru á fund Kristjáns L. Möller í samgöngu- ráðuneytinu í gær. Á vegum ráðu- neytisins og Flugstoða hafa hug- myndir um samgöngumiðstöð verið endurmetnar miðað við minni um- ferð um flugvöllinn en áður hefur verið reiknað með og voru nýju hug- myndirnar lagðar fyrir forystumenn borgarinnar. „Við settum fram hug- myndir um minni og ódýrari sam- göngumiðstöð,“ segir Kristján. Áður hafa verið gerðar tillögur um 6-8 þúsund fermetra samgöngu- miðstöð á lóð norðan við Hótel Loft- leiðir sem kosta myndi allt að 4 milljarða kr. Nýju hugmyndirnar miða við 3.500 fermetra byggingu sem myndi kosta undir einum og hálfum milljarði, að sögn ráðherra. Kristján segir að einnig hafi verið skoðað hvað kosta myndi að byggja slíka miðstöð á lóð gömlu flugstöðv- arinnar en kostnaður sé talinn svip- aður. Sá valkostur sé þó fyrir hendi. Mannaflsfrek framkvæmd „Ég lagði fyrir Flugstoðir að við þessar áætlanir yrði litið til þess að mannvirkið yrði sem mest byggt á staðnum. Þetta yrði því mann- aflsfrek byggingarframkvæmd og gott innlegg í efnahagsörvandi framkvæmdir á höfuðborgarsvæð- inu,“ segir Kristján L. Möller. Minni og ódýrari samgöngumiðstöð Samgöngumiðstöð Lengi hefur verið rætt um samgöngumiðstöð við Reykjavíkurflugvöll. Hér er mynd af tillögu sem kynnt var á síðasta ári. HÆSTIRÉTTUR dæmdi í síðustu viku að kylfingur, sem skaut golfkúlu í hægra auga annars kylfings, teldist vera skaðabótaskyldur að helmingi tjónsins, sem af atvikinu hlaust. Maðurinn telst vera blindur á auganu. Ragnar Aðalsteinsson hrl., lögmaður kylfingsins sem varð fyrir kúlunni, segir að Hæstiréttur hafi með dómnum einungis verið að fjalla um skaðabótaskyldu í málinu. „Nú liggur fyrir að viðurkennd var skaðabótaskylda að hálfu leyti. Næsta skref er að hefja gagnaöflun,“ segir Ragnar. Afla verður læknisvottorða og örorkumats og hefja út- reikning kröfunnar. Síðan hefjast samningar við viðkomandi aðila og trygg- ingafélag hans um uppgjör. Ragnar segir að það sé langalgengast að samn- ingar takist í kjölfar slíkra dóma. „Mál af þessu tagi eru í tiltölulega föstum skorðum,“ segir Ragnar. sisi@mbl.is Gagnaöflun vegna golfhöggs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.