Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
ERLENDAR skuldir þjóðarbúsins
jukust um 590 prósent á milli ár-
anna 2004 og að september 2008.
Þær fóru úr tæplega 1,7 þúsund
milljörðum króna í tæpa 11,5 þús-
und milljarða. Þar af jukust skuldir
banka úr 1,220 þúsund milljörðum í
9,7 þúsund milljarða eða um 694% á
sama tíma.
Þetta eru tölur Haraldar L. Har-
aldssonar hagfræðings byggðar á
upplýsingum Seðlabankans. Hann
kynnti þær á borgarafundi á sunnu-
dag og telur erlendu skuldir bank-
anna íslensku hagkerfi ofviða. Þjóð-
in geti ekki borgað. Það þurfi að
útskýra fyrir kröfuhöfum með við-
ræðum og samningum.
Álfheiður Ingadóttir, formaður
viðskiptanefndar Alþingis, deilir
áhyggjunum með Haraldi og segir
einnig mikilvægt að semja um
skuldir þjóðarbúsins, þar sem stað-
an í þjóðfélaginu sé verulega löskuð.
Leita þarf samninga sem
við getum staðið við
„Við verðum að leita samninga
sem við getum staðið við án þess að
rústa samfélaginu.“ En hún bendir
þó á að aðeins brot erlendra skulda
bankanna falli á Íslendinga. „Fara
verður í samningaviðræðurnar af al-
vöru. Það hefur ekki verið gert
lengi vel,“ segir hún. Leitað sé er-
lendra sérfræðinga til að aðstoða
við samningaumleitanirnar.
Haraldur bendir á að bankarnir
hafi eftir þriggja til fjögurra ára
reynslu á erlendum mörkuðum lán-
að fimm þúsund milljarða til er-
lendra aðila. Það hljóti að vera al-
varlegt að bankarnir hafi treyst sér
til að lána eftir svo stutta sögu er-
lendis samsvarandi upphæðir og
innlendum viðskiptavinum eftir ára-
tuga viðskiptasögu.
„Menn verða að hafa í huga að
bankar lánuðu peninga sem þeir
áttu ekki sjálfir. Þeir voru með þá í
vörslu.“ Svo virðist sem erlendu við-
skiptavinirnir hafi verið fáir en ekki
margir eins og hér heima. Hver hafi
því fengið lán upp á hundruð millj-
óna, það sjáist meðal annars á yfir-
dráttarláni Roberts Tchenguiz en
yfirdráttur hans var rúmlega 2⁄3
hlutar af öllum erlendu lánum ís-
lensku heimilanna.
Heimilin að kikna
Skuldir heimilanna í september í
fyrra námu 156 milljörðum króna og
því 1,35 af heildarskuldum þjóð-
arbúsins. Skuldir ríkis og sveitarfé-
laga jukust einnig á þessum árum
góðærisins, úr 212,4 milljörðum í
526,6 milljarða eða um 148 prósent.
Haraldur gagnrýnir að taka eigi
650 milljarða lán til að greiða Ice-
save-skuldina. „Heimilin eru að
kikna undan því að borga vexti og
afborgarnir af 156 milljörðum.
Hvernig ætlar ríkissjóður að greiða
vexti af 650 milljörðum án þess að
skerða velferðarþjónustuna og/eða
að auka skattbyrði fólks vegna
skulda sem almenningur stofnaði
ekki til.“
Semja verður um skuldir
Formaður viðskiptanefndar segir að leita verði samninga um erlendu skuldir
þjóðarbúsins eigi þær ekki að rústa samfélaginu Hefja verði alvöru viðræður
ÞAÐ skýrist væntanlega innan
tveggja vikna hvort hús-
gagnaverslunin Habitat í Holta-
görðum verður opnuð á ný.
Verslununum Habitat og Salt-
félaginu, sem báðar voru í eigu
Pennans, var lokað fyrir rúmri
viku.
„Við bindum vonir við að geta
opnað Habitat á ný og það er
unnið að því hörðum höndum.
Við erum í viðræðum við aðra að-
ila um að koma að þessu með
okkur,“ segir Einar Snorri Magn-
ússon, framkvæmdastjóri hús-
gagnasviðs Pennans.
Að sögn Einars er markmiðið
að Habitat verði opnuð á sama
stað á ný. Vinsælustu vörur Salt-
félagsins verða til sölu í verslun
Pennans í Hallarmúla.
Alls misstu um 10 manns vinn-
una þegar verslunum var lokað.
Inntur eftir því hvort starfsmenn
fái aftur vinnuna verði Habitat
opnuð á ný segir Einar það ekki
ljóst enn.
ingibjorg@mbl.is
Habitat
mögulega
opnuð á ný
!!" !!# !!$ !!%
&
!!'
( !!") !!'
"!"*'
+#"*#
,%,*$
-, *-
+!+ *
" $ *'
""*#
$--*-
# !%*
++"+*%
#-$#*"
" *-
'$%*,
%!%#*#
+ -,*
/ 0
/
1
/
ÞEIM Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur og Helga
Valentín Arnarsyni var vel tekið þegar þau köll-
uðu nokkra ráðherra ríkisstjórnarinnar á stutt-
an fund í Stjórnarráðinu til að hengja á þá end-
urskinsmerki. Vilja þau Hólmfríður og Helgi,
sem bæði eru 10 ára, tryggja að fólkið í landinu
sjái betur hvað stjórnin er að gera, auk þess sem
með merkjunum sjáist betur til þeirra á ferli í
vetrarmyrkrinu.
Morgunblaðið/Heiddi
Vilja tryggja sýnileika ríkisstjórnarinnar
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„EIRÍKUR Tómasson á við
mig eitthvert óskilgreint
persónulegt erindi. Í annað
skipti á skömmum tíma fórn-
ar hann trúverðugleika sín-
um sem prófessor í lögfræði
til að veitast að mér og hæfni
minni sem dómara og geng-
ur svo langt að segja mig vís-
vitandi misfara með dómsvald mitt,“ segir Jón
Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari.
Eiríkur skrifar grein í nýjasta tölublað Úlf-
ljóts, tímarits laganema við HÍ, þar sem hann
svarar grein Jóns Steinars sem birtist í Lög-
réttu, tímariti laganema við HR, í fyrra. Í grein
sinni segir Eiríkur að grein Jóns Steinars haggi
ekki við neinu af því sem fram komi í grein sem
hann skrifaði í afmælisrit
Úlfljóts, þar sem hann
gagnrýndi sératkvæði Jóns
Steinars í tilteknu kynferð-
isbrotamáli. Í greinum sín-
um hafa þeir Jón Steinar og
Eiríkur tekist á um sönn-
unarmat dómara og túlkun
á 47. gr. laga um meðferð
opinberra mála í því sam-
bandi.
Í nýrri grein sinni segir
Eiríkur að orðalag í sératkvæðum Jóns Steinar
styðjist ekki við lögfræðileg rök. Hann heldur
því jafnframt fram að Jón Steinar hafi vísvitandi
horft fram hjá lagaákvæði í einu nýlegu sér-
atkvæði sínu sem tengist öðru sakarefni, þ.e. að-
gangi að samningi á grundvelli upplýsingalaga.
Jón Steinar segir að þetta undarlega fram-
ferði Eiríks sé án fordæma. „Umfjöllun hans
um sératkvæði mín er að hluta byggð á út-
úrsnúningum en að öðru leyti á einhvers konar
lögfræðilegum óvitaskap þar sem tilgangurinn
er látinn helga meðalið. Hann telur það til
dæmis fela í sér alvarlega ásökun á hendur
samdómurum mínum að skila sératkvæði sem
byggist á því að sakborningur eigi að njóta
mannréttinda. Ef hann væri sjálfur dómari og
teldi að sýkna ætti sakborning, í andstöðu við
meðdómendur sína, vegna mannréttindareglu,
myndi hann samkvæmt þessu greiða atkvæði
gegn sannfæringu sinni til að stuða ekki með-
dómendur sína,“ segir Jón Steinar.
„Það er einna líkast því að Eiríkur hafi orðið
fyrir persónulegu áfalli sem hann telur mig
eiga hlut í að hafa valdið. Ég get bara sagt við
hann að ég á ekki nokkurn þátt í böli hans.
Hann má svo búast við að ég muni víkja að sér-
kennilegum lögfræðiútleggingum hans fljót-
lega, á öðrum vettvangi.“
Segist ekki eiga þátt í „böli“ Eiríks
Jón Steinar Gunnlaugsson segir að Eiríkur Tómasson sé að fórna trúverðugleika sínum
Í HNOTSKURN
»Grein Eiríks Tómassonar ber heitið„Eiga sérhagsmunir að vera rétt-
hærri almannahagsmunum?“ og birtist í
nýjasta tbl. Úlfljóts, tímarits laganema
við HÍ.
»Með grein sinni svarar Eiríkur greinJóns Steinars: „Mál af þessu tagi“
sem birtist í tímaritinu Lögréttu í fyrra.
»Þeir Eiríkur og Jón Steinar erugamlir vinir. Þeir sátu um tíma sam-
an í stjórn Orators, félags laganema við
HÍ, og einnig hafa þeir setið saman í
stjórn Lögmannafélagsins. Þá voru þeir
saman í briddsklúbbi um tíma.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Eiríkur
Tómasson
MORGUNBLAÐIÐ fékk þrjár til-
nefningar til Blaðamannaverð-
launanna 2008 og veitir nú lesendum
sínum ókeypis aðgang að því efni sem
tilnefnt er á mbl.is.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir er til-
nefnd í flokknum Blaðamannaverð-
laun ársins fyrir vandaðar fréttir á
mbl.is þar sem hún nálgaðist frum-
lega málefni líðandi stundar og net-
miðillinn var nýttur með nýjum hætti
í íslenskri fjölmiðlun, líkt og segir í
áliti dómnefndar. Þá eru Baldur Arn-
arson, Ragnar Axelsson og Önundur
Páll Ragnarsson tilnefndir í flokkn-
um Besta umfjöllun ársins 2008.
Baldur fyrir greinaflokkinn Ný staða
í norðri, þar sem farið var yfir þær
náttúrufarslegu, efnahagslegu, fé-
lagslegu og pólitísku breytingar, sem
hlýnun andrúmslofts og breytt staða
á norðurslóðum hefur í för með sér og
Ragnar og Önundur Páll fyrir um-
fjöllun um virkjunarkosti á Íslandi.
Þar voru að mati dómnefndar dregnir
fram með öflugri samvinnu texta og
mynda kostir og gallar hvers virkj-
unarkosts um sig og málið sett í
skipulagt samhengi.
Efnið má finna á slóðinni http://
mbl.is/mm/frettir/serefni/blada-
mannaverdlaun_2009
Tilnefningar
Morgunblaðs-
ins á mbl.is