Morgunblaðið - 18.02.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009
Sumir halda því fram að löggjaf-arvaldið sé of veikt gagnvart
framkvæmdavaldinu. Stjórnar-
frumvörp séu afgreidd á færibandi
þegar ráðherrum henti.
Enn aðrir gefa í skyn að fram-kvæmdavaldið sé veikburða
gagnvart embættismannakerfinu.
Þangað þurfi að sækja alla sérþekk-
ingu á málefnum hvers ráðuneytis
fyrir sig.
Breskuskemmti-
þættirnir Já ráð-
herra koma upp í
hugann af því til-
efni.
Það er því ekk-ert skrítið að í umsögn Seðla-
bankans um frumvarp til laga um
breytingar á lögum um Seðlabanka
Íslands sé spurt hver hafi haft að-
komu að smíði frumvarpsins.
Í umsögninni segir: „Ekki hefurverið hægt að fá upplýsingar um
hverjir sömdu frumvarpið og ekki
rökstutt, hvers vegna því er leynt, en
venja er að þess sé getið við frum-
varpssmíð af þessu tagi, hvað þeir
hafi til brunns að bera sem koma að
samningu þess.“
Undir þessa skoðun skrifa DavíðOddsson og Eiríkur Guðnason
seðlabankastjórar.
Þetta er hárrétt ábending. Afhverju er ekki upplýst um þessa
einföldu hluti? Er það eitthvert
leyndarmál?
Með sömu rökum á auðvitað einn-ig að upplýsa hverjir komu að
samningu eftirlaunalaganna og
neyðarlaganna. Tvö pólitísk hitamál.
Er það eitthvert leyndarmál?
Davíð Oddsson
Upplýst um lagasmiði
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
! "
"
#
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).? "$ $" " " $"$
"$
" " " "$
"
*$BC
!
"#$
%&
*!
$$B *!
% & '
& (
#
)
<2
<! <2
<! <2
%#'
*
+ ,-.
8-D
/
'$
(
!
<7
) (%' %&" *% $
"
# ++
,-
<
($
%'
.$%
" %
/0 11
2(
- *
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
„ÞARNA er verið að kynna vinnu sem hófst í kjöl-
farið á illviðravetrinum 2007 til 2008, þegar krapp-
ar lægðir gengu yfir landið. Þá var mikið rót á því
hver tilkynnti um lokun skóla eða hvort skólastarf
félli niður eða raskaðist. Svo var mjög misjafnt
hvernig menn mátu það frá einum skóla til annars
hvort fella ætti skólahald niður. Það var þá sem
stjórn slökkviliðsins, sem í eiga sæti bæjarstjórar
og borgarstjóri sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu, ákvað að þetta þyrfti að samræma,“ seg-
ir Garðar Guðjónsson um nýja samræmda við-
bragðsáætlun slökkviliðs og skólanna við óveðri.
„Stjórnin fékk slökkviliðið til
þess að vinna hana í samvinnu
við fræðsluyfirvöld á svæðinu.
Afraksturinn er sá að nú eru
komnar fram samræmdar regl-
ur fyrir alla skóla á svæðinu,
þar sem lýst er hver gefur út
viðvörun vegna óveðurs og til-
kynningar vegna þeirrar rösk-
unar sem það kann að valda á
skólastarfi. Þar er því einnig
lýst hvernig starfsfólki skóla beri að haga sér við
slíkar aðstæður og svo í þriðja lagi er þar að finna
tilmæli til foreldra um það hvernig þeir eigi að
haga sér í samræmi við aðstæður sem þessar.“
Talsverð vinna að baki
Spurður um umfang áætlunarinnar segir Garð-
ar að hún hafi hafist um vorið 2008 og að töluverð-
ur fjöldi fólks hafi síðan komið að henni.
„Það er enda talsverð vinna sem felst í að ná
lendingu í slíku máli,“ segir Garðar, sem var
slökkviliði og fræðsluyfirvöldum til ráðgjafar í
verkefninu. baldura@mbl.is
Viðbúnaðaráætlunin samræmd
Ætlað að samhæfa viðbrögð allra skóla á höfuðborgarsvæðinu við óveðrum
Garðar Guðjónsson
Grímsey | Stórskemmtilegt þorrablót
Kvenfélagsins Baugs var haldið í fé-
lagsheimilinu Múla. Margt fólk –
fullt af gestum allt að hundrað
manns tóku þátt í því. Þó eins og
getur gerst í nyrstu byggð landsins,
komst flugvélin sem flytja átti
hljómsveitina ekki til okkar – með
henni áttu líka að koma þorrablóts-
gestir, sumir alla leið úr höfuðborg-
inni. En þorrablótsnefndin lét ekki
deigan síga heldur blés til móts sem
í alla staði var til skemmtilegasta.
Veislustjórinn Harpa Þórey Sigurð-
ardóttir á Sveinagörðum stóð sig
með mikilli prýði og hélt uppi kröft-
ugum og góðum anda yfir borðum.
Henni til halds og trausts var faðir
hennar Sigurður Tryggvason úr Öx-
arfirði. Hann stýrði fjöldasöng og
lék undir á harmonikku sína. Annáll
um lífið í byggðinni síðastliðið ár var
á sínum stað, heimasmíðaður leik-
þáttur þar sem nefndarkonur og
veislustjórinn brugðu á leik sló í
gegn. Þorramaturinn sá nýi og súri
var bæði mikill og góður. Að endingu
var tekið til við dansinn.
Morgunblaðið/Helga Mattína Björnsdóttir
Nefndin Þorrablótsnefndina skipuðu þetta árið Anna María Sigvaldadóttir,
Ragna Gunnarsdóttir, Ragnhildur Hjaltadóttir og Ída Jónsdóttir.
Hljómsveitin komst
ekki á þorrablótið