Morgunblaðið - 18.02.2009, Side 12

Morgunblaðið - 18.02.2009, Side 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 HILDUR Björns- dóttir, stjórn- málafræði- og laganemi, hefur tekið við starfi formanns Stúd- entaráðs Háskóla Íslands fyrir starfsárið 2009- 2010 en hún sat í Stúdentaráði fyr- ir hönd Vöku, síðasta skólaár. „Lánasjóðsmál og menntamál verða í brennidepli þetta árið,“ segir Hildur. „Nú þrengir verulega að fjárhag stúd- enta og því mikilvægt að ná góðum samningum við Lánasjóðinn í vor.“ Lánamál í öndvegi Hildur Björnsdóttir Á LAUGARDAG nk., kl. 11-16, kynna háskólarnir námsframboð sitt. Kynningin fer fram á tveimur stöðum, í Ráðhúsi Reykjavíkur verða Háskólinn á Akureyri, Há- skólinn á Bifröst, Háskólinn á Hól- um, Háskólinn í Reykjavík, Land- búnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Háskóli Ís- lands verður kynntur á Há- skólatorgi, Gimli og Odda í Háskóla Íslands. Nemendur, kennarar og náms- ráðgjafar munu miðla reynslu sinni og veita persónulega ráðgjöf. Háskóladagur MÍLA og Flugfjarskipti hafa gert með sér þjónustusamning, sem tryggir síðarnefnda fyrirtækinu áframhaldandi fjarskiptaþjónustu. Flugfjarskipti sinna tal- og gagna- viðskiptum við alþjóðaflug í ís- lenska flugstjórnarsvæðinu, ásamt því að reka íslenska hlutann af al- þjóðlegu skeytadreifikerfi fyrir flugrekendur. Eðli starfseminnar krefst þess að öryggi sé ávallt haft í fyrirrúmi, segir í tilkynningu. Samið Eva Magnúsdóttir frá Mílu og Brandur Guðmundsson semja. Samið um fjarskipti ORKUVEITA Reykjavíkur og Kópavogsbær hafa gert með sér samstarfssamning um samræmt verklag og samskipti í tengslum við framkvæmdir. Þannig er komið á verklagi sem á að tryggja sem minnsta röskun vegna viðhalds eða nýlagna. Einnig var gerður samn- ingur um raforkukaup Kópavogs af Orkuveitunni og um viðhald Orku- veitunnar á götuljósum. Orkuveitan semur við Kópavog HJÁLPARSÍMI Rauða krossins 1717 stendur fyrir átaksviku gegn einelti í þessari viku. Hjálparsíminn hvetur alla sem orðið hafa fyrir ein- elti, þekkja einhvern sem hefur orðið fyrir því, eða er sjálfur ger- andi, til þess að hringja og opna sig fyrir hlutlausum aðila sem getur veitt ábendingar um úrræði við hæfi. Fullum trúnaði og nafnleysi heitið. Eineltissíminn Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is HRUN efnahagskerfisins á Íslandi skapar ýmis sóknarfæri fyrir hryðjuverkamenn og er ein afleiðing hrunsins sú að hagnaði af fíkniefna- viðskiptum verður í auknum mæli varið til fjárfestinga hér á landi. Þá leiðir aukin alþjóðleg glæpastarf- semi til þess að vaxandi líkur eru taldar á að hér verði framin hryðju- verk, ellegar að undirbúningur að slíkum árásum í öðrum löndum fari fram hér. Hættustigið vegna hryðjuverka hér er þó metið lágt. Þetta kemur fram í ársskýrslu greiningardeildar ríkislögreglu- stjóra fyrir árið 2009, þar sem leit- ast er við að leggja fram mat á ógn- inni af skipulagðri glæpastarfsemi og hryðjuverkum hérlendis. Segir þar að sökum gjaldeyris- hafta og lágs gengis krónunnar verði „bæði erfitt og lítt ábatasamt að flytja hagnað af fíkniefnasölu úr landi“. Á sama tíma liggi fyrir að verð á „fasteignum, fyrirtækjum og lausamunum ýmsum hafi fallið“ og muni gera það enn frekar, ef spár gangi eftir, og því megi ætla að slík- ar fjárfestingar, einkum fyrirtækja- kaup, skapi „margvísleg tækifæri til að fela ólögmæta starfsemi t.a.m. innflutning fíkniefna og peninga- þvætti á bakvið löglegan rekstur“. Þróunin þegar hafin Varar greiningardeildin sér- staklega við hættunni af því að fíkniefnahagnaði verði ráðstafað á þennan veg, með þeim orðum að deildin búi yfir upplýsingum um að þessi þróun sé þegar hafin. Þetta eigi ekki síður við um erlenda aðila, sem ekki eru virkir á vettvangi skipulagðrar glæpastarfsemi á Ís- landi kunni og að horfa til þessa möguleika auk þess sem vænlegir fjárfestingarkostir hér kunna að freista þeirra og veita færi á pen- ingaþvætti“. Hvað varðar sjálfa fíkniefnaneysl- una er álitið að neysla dýrari efna, svo sem kókaíns, muni fara minnk- andi, samtímis því sem framleiðsla örvandi efna muni færast í vöxt hér. Þá er rifjað upp að skipulagður stuldur á ræktunarlömpum veiti vís- bendingar um stóraukna kannabis- ræktun hér á landi. Að sama skapi muni mikil hækk- un á áfengisverði og minni kaup- máttur leiða til „aukins smygls og sölu á heimabrugguðum vínanda“. Vara við hatursáróðri Skýrsluhöfundar rifja upp að á síðustu árum hafi þúsundir erlendra ríkisborgara hafið störf á íslenska vinnumarkaðnum og að margir þeirra hafi nú snúið aftur til síns heima eftir fjármálahrunið. Telur deildin ástæðu til að vara við því að þörf erlendra ríkisborgara fyrir félagsaðstoð kunni að verða nýtt til þess að ala á andúð við út- lendinga, ásamt því sem þróunin kunni að geta af sér öfgahópa. Höftin talin ýta undir líkur á peningaþvætti Greiningardeild ríkislögreglustjóra metur ógnina af skipulagðri glæpastarfsemi Í HNOTSKURN »Innlendir glæpamenn oghópar þeim tengdir eru taldir stórtækastir í innflutn- ingi og sölu fíkniefna hér. »Metur greiningardeildinþað svo að innflytjendur fíkniefna kunni að styrkjast á næstunni, ekki síst þeir sem starfi erlendis og hafi þar tengsl við þarlendar glæpa- klíkur. » Í skýrslunni kemur einnigfram að ofbeldi gegn lög- reglu hafi færst í aukana, meðal annars af hálfu er- lendra glæpamanna sem hafi hlotið þjálfun í hermennsku. »Rifjað er upp að vélhjóla-klúbburinn Fáfnir hafi hlotið viðurkenningu sem „stuðningsklúbbur“ Hells Angels, eða Vítisengla, hér. »Þar með hafi „hópurmanna á Íslandi stofnað til formlegra tengsla við al- þjóðleg glæpasamtök“. »Fyrir liggi að Fáfnirstefni að fullri aðild að Hells Angels-samtökunum. »Framleiðsla og dreifingbarnakláms er ekki talin mjög skipulögð eða viða- mikil. Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Golli Tækifæri Greiningardeildin telur mikla lækkun fasteignaverðs skapa færi á „ábatasömu peningaþvætti“. Erlendir aðilar geti nýtt sér milligöngumenn. gengið til kosninga 25. apríl. Dagsetning þingrofsins liggur ekki fyrir en hugmyndir eru um að það verði gert upp úr miðjum mars. Landskjörstjórn hefur með höndum mikilvægt hlutverk í aðdraganda kosninganna og framkvæmd þeirra. Eitt þeirra verkefna er að ákveða mörk kjördæma í Reykjavík miðað við íbúaskrá þjóð- skrár fimm vikum fyrir kjördag. Skulu mörkin við það miðuð að kjósendur í hvoru kjördæmi um sig að baki hverju þingsæti, að meðtöldum jöfn- unarsætum, séu nokkurn veginn jafnmargir. „Gæta skal þess, eftir því sem kostur er, að hvort kjördæmi sé sem samfelldust heild. Landskjör- stjórn auglýsir mörk kjördæmanna í Stjórnartíð- indum jafnskjótt og þau liggja fyrir, og eigi síðar en fjórum vikum fyrir kjördag,“ segir í lögum um kosningar til Alþingis. Þingsæti sem kosið er um Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is FORMENN stjórnmálaflokkanna hafa hist á tveimur fundum til að ræða fyrirhugaðar alþing- iskosningar og hve lengi yfirstandandi þing skuli standa. Málið verður rætt í þingflokkum á morg- un, miðvikudag. Stefnt er að því að halda þing- kosningarnar laugardaginn 25. apríl. Þar sem þingkosningarnar fara fram á miðju kjörtímabili þarf að rjúfa þingið, eins og það er kallað. Í stjórnarskránni segir svo um þingrof: „Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, [áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið],1) enda komi Alþingi saman eigi síðar en [tíu vikum]1) eftir, að það var rofið. [Alþing- ismenn skulu halda umboði sínu til kjördags.]“ Samkvæmt þessu ákvæði má ekki rjúfa þing fyrr en 45 dögum áður en gengið er til kosninga. Því má rjúfa þingið í fyrsta lagi 12. mars, verði eru 63 í sex kjördæmum. Í Norðvesturkjördæmi, Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi skulu vera níu kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti. Í Suðvesturkjördæmi, Reykjavíkurkjördæmi norð- ur og Reykjavíkurkjördæmi suður skulu vera níu kjördæmissæti og tvö jöfnunarsæti. Landskjörstjórn skal reikna út, miðað við þró- un búsetu, hvort breyta skuli fjölda kjördæm- issæta í kjördæmum þannig að dregið verði úr misvægi atkvæða. Fyrir síðustu alþingiskosn- ingar ákvað landskjörsstjórn, í ljósi fjölda kjós- enda á kjörskrá að baki hverju þingsæti, að færa eitt þingsæti úr Norðvesturkjördæmi í Suðvest- urkjördæmi. Samkvæmt úrskurði landskjör- stjórnar frá í desember sl., skal þessi skipan vera óbreytt í alþingiskosningunum í apríl nk. Gísli Baldur Garðarsson hrl. hefur verið odd- viti landskjörstjórnar. Með bréfi til forseta Al- þingis, tilkynnti Gísli Baldur afsögn sína. Líklegt er að Bryndís Hlöðversdóttir taki við formennsk- unni. Hugmyndir um að Alþingi verði rofið upp úr miðjum mars Sérstaka athygli vekur að í skýrslu greiningardeildarinnar er litið svo á að svokölluð „verndarþjónusta“ gagnvart fyrirtækjum og ein- staklingum muni færast í vöxt. „Þjónustan“, sem talin er ein birt- ingarmynd fjárkúgunar, felur í sér að einstaklingar og fyrirtæki þurfa að greiða misindismönnum fé gegn því að ekki verði gengið á hagsmuni þeirra með innbrotum eða misferli af öðrum toga. Með líku lagi muni „handrukkun“ verða algengari aðferð við inn- heimtuaðgerðir, ekki aðeins vegna fíkniefnaskulda heldur einnig við innheimtu annarra skulda, þegar „viðtekin úrræði“ hafa ekki borið árangur. Einnig er vikið að þjófnaði og inn- brotum og þeirri staðreynd að „erlendir afbrotamenn koma gagngert til Íslands í þeim tilgangi að skipuleggja og fremja þjófn- aði“. Lítur deildin svo á að markaður með stolnar vörur muni stækka í kjölfar efnahagshrunsins. Að lokum er talin hætta á að man- sal, vændi og smygl á fólki muni aukast í því atvinnuleysi og þeim þrengingum sem nú séu uppi. „Verndarþjónusta“ mun færast í aukana

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.