Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 13
Fréttir 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
VERSLUNIN Tiger í Kringlunni
mun innan skamms flytja í nýtt og
stærra húsnæði á 1. hæð í versl-
unarmiðstöðinni, þar sem verslun
BT var áður til húsa. Verslunar-
plássið er 650 fermetrar og verður
þrefalt stærra en núverandi versl-
unarpláss.
„Í því ástandi sem nú ríkir skap-
ast möguleikar til að færa sig í
stærra og betra pláss,“ segir Finnur
Magnússon, eigandi Tiger.
Hafa aukið söluna
„Með þessu erum við að mæta
kröfum viðskiptavinanna, sem hafa
leitað til okkar í auknum mæli eftir
að kreppan skall á. Við höfum verið
að auka söluna og metum það svo að
næstu 3-4 árin verði góður mark-
aður fyrir lágvöruverðsverslanir,“
segir Finnur.
Fyrsta Tiger-verslunin var opnuð
í Kringlunni í júní 2001 og þá kost-
uðu allar vörur 200 krónur. Síðan
hefur Tiger opnað nýjar verslanir á
Laugavegi, í Smáralind og á Akur-
eyri.
Að sögn Finns verður hægt að
bjóða upp á meira vöruúrval í sömu
flokkum og áður. Meira pláss verði
undir vöruna og hún fái að njóta sín
betur en í gömlu búðinni, en þrengsli
hafi háð starfseminni þar. Einnig
verður vöruflokkum fjölgað svo sem
í DVD-diskum, búsáhöldum og sokk-
um. „Okkar fókus hefur verið að
bjóða upp á mikið úrval af smávöru,
nytjavöru á góðu verði,“ segir Finn-
ur.
Hann stefnir að því að opna nýju
búðina laugardaginn 28. febrúar.
„Ég hef opnað allar mínar búðir á
laugardögum og það hefur gefist vel.
Það verða allir að fá að hafa sína sér-
visku.“
Ekki er á dagskránni að opna
fleiri verslanir, a.m.k. að sinni.
„Þessi nýja verslun er gríðarlega
stórt skref fyrir okkur,“ segir Finn-
ur, sem vinnur að því baki brotnu
ásamt samstarfsfólki, að gera búðina
klára fyrir 28. febrúar.Morgunblaðið/Ómar
Tiger í Kringlunni
stækkar í kreppunni
MINKASKINN seldust vel á upp-
boði sem haldið var í Kaupmanna-
höfn í þessum mánuði. Öll framboðin
skinn seldust en fyrir 12,5% lægra
verð en í desember. „Þetta gekk bet-
ur en menn áttu von á,“ segir Einar
E. Einarsson, loðdýraræktarráðu-
nautur Bændasamtaka Íslands.
Loðdýrabændur báru kvíðboga
fyrir uppboðinu í febrúar vegna þess
hversu illa gekk á síðasta uppboði
sem var í desember. Þá náðu kaup-
endur og seljendur ekki saman svo
stór hluti skinnanna var dreginn til
baka. Einar segir að reynslan frá
fyrri árum sýni að slíkt leiði til
spennu á markaðnum, birgðasöfnun-
ar og verðhruns.
Íslenskir loðdýrabændur selja
skinn sín í Kaupmannahöfn. Meðal-
verð á uppboðinu var 212 krónur
danskar á skinn, sem svarar til lið-
lega 4.000 króna. Er það um 12,5%
lægra verð en í desember og um 20%
lægra í erlendri mynd en fyrir ári.
Einar segir að þetta verð sé vel við-
unandi. Íslenskir loðdýrabændur
þoli meiri verðlækkun en félagar
þeirra erlendis, vegna gengis ís-
lensku krónunnar. „Það hefði verið
verra að geta ekki selt.“
helgi@mbl.is
Öll minkaskinn
seldust á uppboði
Gekk betur en bændur áttu von á
Minkar Minkabændur eru ánægðir með lífið, þrátt fyrir verðlækkun.
SAMRÆÐUFUNDUR um þróun
lýðræðis á Íslandi í átt til virkari
þátttöku almennings og hagsmuna-
aðila verður á morgun, fimmtudaginn
19. febrúar kl. 17.00-18.30 á jarðhæð
Háskólatorgs í Háskóla Íslands.
Þátttaka er endurgjaldslaus, en þátt-
takendur eru beðnir að skrá sig á
http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/
page/lydraediskaffi. Að Lýðræðis-
kaffinu standa stjórnmálafræðideild
Háskóla Íslands og Stofnun stjórn-
sýslufræða og stjórnmála við HÍ,
ILDI þjónusta og ráðgjöf, Endur-
menntun HÍ og Morgunblaðið.
„Nú á sér stað mikil umræða um
þróun lýðræðis og er kallað eftir því
að almenningur geti átt aðkomu að
ákvörðunum oftar en í formlegum
kosningum. Markmiðið með fundin-
um er að beina sjónum að þeim þætti
lýðræðis sem snýr að þátttöku al-
mennings og leiða jafnframt saman
hin ólíku sjónarmið um virkara lýð-
ræði á Íslandi,“ segir í tilkynningu.
Fyrirkomulag fundarins verður
svokallað Heimskaffi eða World
Café. Heimskaffifundur er ólíkur
venjulegum fundum að því leyti að
hann byggist á samræðu allra þátt-
takenda í litlum hópum (4-5 manna)
og er aðferðin vel fallin til að ná
skýrri niðurstöðu með lýðræðisleg-
um hætti. Rædd verður spurningin
„Ef Ísland vildi verða til fyrirmyndar
í því að auka þátttöku almennings og
hagsmunaaðila í „nýju lýðræði“,
hvaða afgerandi skref gætum við
stigið?“
Einnig verður á fundinum sagt frá
alþjóðlegum fagsamtökum á sviði
þátttöku almennings, International
Association for Public Participation,
IAP2.
Lýðræðiskaffi
á Háskólatorgi
ÓlöfÞorvaldur S.
Lumar þú á hugmynd um höfnina?
Kynning á hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag
Gömlu hafnarinnar í Reykjavík
Allir velkomnir í
Loftkastalann á morgun,
fimmtudaginn 19.
febrúar, kl. 17:00-19:00! Júlíus VífillKK GísliSigríður
Kristján Kristjánsson - KK tekur fáein lög og hitar upp.
Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna sf. og skipulagsráðs Reykjavíkur, setur fundinn og
stýrir honum.
Arkitektarnir Þorvaldur S. Þorvaldsson og Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri kynna þróun miðborgarsvæðisins og
sögu skipulagsmála í Reykjavík.
Sigríður Kr. Kristþórsdóttir greinir frá nýrri skýrslu um þróun atvinnustarfsemi í Gömlu höfninni.
Gísli Gíslason hafnarstjóri fjallar um framtíðarsýn Faxaflóahafna sf. og kynnir fyrirkomulag samkeppninnar.
Pappír og litir í listsköpunarhorni barna í anddyrinu og myndlistarsýning í fundarlok.
Þetta er fyrsta samkeppnin sem efnt er til um heildarskipulag Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík. Hún
verður öllum opin, annars vegar fagfólki sem ætlað er að skili tillögum um skipulag, hins vegar almenningi sem býðst
að koma á framfæri hvers kyns hugmyndum og ábendingum sem nýta má við skipulagsvinnu á svæðinu.
Nánari upplýsingar um samkeppnina er að finna á faxafloahafnir.is/is/hugmyndasamkeppni
A
T
H
Y
G
L
I
-
M
a
g
n
ú
s
Ó
la
f
s
s
o
n
-
K
ó
p
ía
lj
ó
s
m
y
n
d
a
s
a
f
n
ið
©