Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 – þar sem auglýsingin nær til neytenda F í t o n / S Í A *annan hvorn miðilinn eða báða, skv. fjölmiðlakönnun Capacent Gallup á tímabilinu nóvember 2008 til janúar 2009, allir landsmenn 12 til 80 ára 92% þjóðarinnar lesa Morgunblaðið og mbl.is vikulega* Þess vegna eru auglýsendur öruggir um athygli einmitt í Morgunblaðinu og mbl.is. Það er gott að vera í miðli sem þjóðin les. KARLMAÐUR á þrítugsaldri hlaut alvarleg brunasár þegar kviknaði í gömlu einbýlishúsi á Akureyri við gassprengingu í gærmorgun. Húsið, sem stendur við götuna Hrafna- björg, er talið ónýtt. Slökkviliðið fann í húsinu 25 gas- kúta sem venjulega eru tengdir við grill við íbúðarhús og að auki einn stóran iðnaðarkút, um 1,60 m á hæð. Flestir voru gaskútarnir hálftómir en þannig eru þeir enn hættulegri en fullir. Reykkafarar voru því í mikilli hættu, að sögn slökkviliðsstjórans, Þorbjörns Haraldssonar. „Við þess- ar aðstæður hefur maður auðvitað áhyggjur af reykköfurunum en sem betur fer meiddist enginn að þessu sinni. Ef svona kútur springur skýst hann af stað eins og fallbyssukúla,“ sagði Þorbjörn við Morgunblaðið. Húsið var mettað gasi þegar spreng- ingin varð og hafði þar greinilega verið sniffað gas nýlega. Við sprenginguna lyftist þak húss- ins að hluta, útveggur færðist til og rúður í gluggum sprungu. Maðurinn, sem í húsinu var, komst út af sjálfsdáðum. Sami mað- ur slasaðist alvarlega í júlí 2007 þeg- ar eldur kviknaði út frá gasi í bíl, sem hann var í utan við bæ í Fljóts- dal á Héraði. Hundur sem í húsinu var komst einnig út og fannst nokkru síðar við dvalarheimilið Hlíð, töluvert frá hús- inu. Aflífa þurfti hundinn. Allir tiltækir slökkviliðsmenn voru kallaðir á vettvang. Óvenju margir voru á stöðinni vegna nám- skeiðs og voru um 20 við slökkvistörf þegar mest var. skapti@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gassprenging Slökkviliðsmenn að störfum við húsið númer 1 við Hrafnabjörg í gær. Reykkafarar voru í hættu. „26 fallbyssukúlur“  Hlaut alvarleg brunasár þegar gassprenging varð í heima- húsi á Akureyri  Húsið mettað gasi  26 kútar innandyra Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is VERIÐ er að endursmíða gömlu járnhengibrúna á Örnólfsdalsá við Norðtungu í Borgarfirði. Brúin verður þó ekki ætluð fyrir almenna umferð, ekki frekar en gamla brúin sem lauk hlutverki sínu 1966, enda liggur vegurinn ekki lengur að henni. Hún verður aftur á móti til af- nota fyrir fólk og fénað og þó að- allega til minja um þá tækni sem notuð var til brúargerðar fyrir 110 árum. Hengibrúin á Örnólfsdalsá er ein af sex brúm sem byggðar voru á ár- unum 1891 til 1906. Hinar voru yfir Ölfusá, Þjórsá, Jökulsá í Öxarfirði, Sogið og Hörgá. Brúin hjá Norð- tungu er sú eina sem nú er uppi- standandi. Jakob Hálfdanarson, minjavörður Vegagerðarinnar, beitti sér fyrir því að brúin yrði endur- byggð. „Tilgangurinn er að minna á tæknina, sýna hvernig þessar brýr voru byggðar,“ segir Jakob. Kom í ljós að hún er svo illa farin að lítið var hægt að nota af henni. Vegagerðin samdi við Gísla Þorgeir Einarsson, vélsmið á Laugum í Hrunamannahreppi, um smíði brú- arinnar og hefur hann lokið verkinu að mestu leyti. Fyrirhugað hefur verið að setja hana upp í sumar. Snillingar í eldsmíði Það eina sem hægt var að nota úr gömlu brúnni eru steyptir söðlar sem halda strengjum hennar uppi og skraut svo sem rósettur og skinnur undir bolta á nokkrum stöðum. „Gamla brúin hefur verið meira og minna lamin saman með eldsmíði. Nú er þetta allt borað og boltað, til þess að þetta líkist sem mest og ekk- ert soðið nema á einum stað. Þessir menn hafa verið snillingar í að smíða úr heitu járni og berja það til,“ segir Gísli á Laugum. Áætlað er að verkefnið í heild kosti um tuttugu milljónir kr. Brúin er skammt frá kirkjunni í Norðtungu, nokkuð frá núverandi þjóðvegi. Fyrirhugað er að setja upplýsingaskilti við veginn til að vekja athygli vegfarenda á henni. Eina hengibrúin sem eftir er endursmíðuð Gert til minja um tækni við brúargerð Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Hengibrú Nýja hengibrúin á Örnólfsdalsá hjá Norðtungu verður nákvæm eftirlíking af núverandi brú sem er 110 ára gömul. Gísli Þorgeir Einarsson, vélsmiður á Laugum, annast smíði brúarinnar. Í HNOTSKURN »Efsti hluti Þverár í Borg-arfirði heitir Kjarrá og síðan heitir áin Örnólfsdalsá á kafla, áður en Þverárnafnið tekur við. »Þjóðleiðin norður í land láá vaði yfir Örnólfsdalsá við Norðtungu. Þar var hengibrú tekin í notkun 1899 en frá 1966 hefur verið í notkun steinsteypt brú. Þjóðleiðin fluttist fyrir löngu vestur fyrir Hafnarfjall.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.