Morgunblaðið - 18.02.2009, Page 18

Morgunblaðið - 18.02.2009, Page 18
18 Daglegt líf ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is Framundan er gróska íframkvæmdum viðviðhald fasteigna, aðmati Sigurðar Helga Guðjónssonar, formanns Hús- eigendafélagsins. „Viðhaldsiðn- aðurinn stækkar þegar ný- byggingaiðnaðurinn dregst saman,“ segir hann. „Þetta er svona eins og kúrfurnar í stofni rjúpna og fálka. Í þenslunni miklu var erfitt að fá verktaka í viðhaldsverkin, grasið þótti grænna í nýbyggingum og þangað fóru flestir. Núna berj- ast hins vegar verktakar um viðhaldsverk, sem áður fúlsuðu við þeim,“ segir Sigurður Helgi. Þetta segir hann að geri húseigendum kleift að velja úr verktökum og ná góðum samn- ingum. „Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott, en það sem skyggir á er að nýtt lánsfé er af skornum skammti og lána- möguleikar ekki eins góðir og áður.“ Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að hvetja til viðhalds fast- eigna eru jákvæðar, að mati Sigurðar. Í þeim felst m.a. að endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu á byggingastað er nú 100% en var áður 60%. „Í öðru lagi eru ráðgerð meiri og rýmri lán frá Íbúðalánasjóði til við- haldsframkvæmda,“ segir hann og í framhaldi megi búast við að talsvert meira verði að gera á því sviði. Sigurður Helgi hefur merkt aukinn áhuga hjá fólki á að fara í viðhald á húsum sínum. „Já, já, ég hef fundið það og menn sem hafa beðið í tvö-þrjú ár en ekki fengið verktaka sjá núna möguleika,“ segir hann. Tími aðalfunda brostinn á „Nú er brostinn á tími aðal- funda hjá húsfélögum og þar eru teknar miklar ákvarðanir um mikla hagsmuni eigenda,“ segir Sigurður Helgi. Aðalfundi húsfélaga á að halda á fyrsta ársfjórðungi hvers árs og áríðandi er að rétt sé staðið að fundahöldunum. Sigurður Helgi bendir á að á slíkum fundum sé lagður grundvöllur að viðhaldsiðn- aðinum sem veltir milljörðum á ári hverju. „Húsfélagsfundir eru grundvöllurinn að því sem síðar kemur og ef ekki er stað- ið rétt að málum getur farið illa,“ segir hann. Forsenda fyr- ir lögmæti ákvarðana um fram- kvæmdir og greiðsluskyldu er að ákvörðun sé tekin á fundi sem rétt er boðaður og rétt er haldinn. Húseigendafélagið býður upp á fundaþjónustu og hefur gert í nokkuð mörg ár. „Þar eru sér- fróðir lögfræðingar sem að- stoða við undirbúning funda; fundarboð, dagskrá, tillögur, umboð og svo framvegis,“ segir Sigurður Helgi. Jafnframt er boðin aðstoð við fundarstjórn og ritun fundargerðar. Slík að- stoð við fundahöld segir hann að geti gjarnan verið sýni- kennsla í því hvernig halda á fundi og húsfélög geti í fram- haldinu sjálf haldið fundi. Eins og kúrfa í stofni rjúpna og fálka  Gróska er framundan í viðhaldi húseigna  Verktakar sem áður fúlsuðu við viðhaldsverkefnum sækja nú í þau og húseigendur geta þess vegna náð góðum samningum um slíkar framkvæmdir Morgunblaðið/ÞÖK Fasteignir Nú þegar hægt hefur á framkvæmdum við nýbyggingar má búast við auknum krafti í viðhaldinu. Hvað gerir fundarstjóri? Fundarstjóri er æðsti maður fundar og túlkar lög og fundarsköp á fund- inum og úrskurðar eða ákveður um vafatilvik. Hann á að gæta fyllsta hlutleysis í öllum störfum sínum. Hvað þarf hann að vita? Fundarstjóri verður að kunna mjög góð skil á fjöleignarhúsalögunum og almennum fundarsköpum. Meg- inhlutverk hans er að sjá um að fundur fari löglega fram og að mál- in hljóti afgreiðslu í samræmi við vilja meirihluta fundarmanna en án þess þó að skoðanir minnihlutans séu fótum troðnar. Hvert er fyrsta verkið? Yfirleitt er það fyrsta verk fund- arstjóra að ganga úr skugga um lögmæti fundarins, hvort hann sé löglega boðaður og ályktunarfær. Fundarstjóri kannar rétt eigenda, t.d. við kosningu og atkvæða- greiðslu. Hann verður yfirleitt að halda nafna- og mætingarskrá og hafa handbæra eignaskiptayfirlýs- ingu eða útdrátt úr henni þar sem hlutfallstölur eigna koma fram. Honum ber að framfylgja dagskrá fundarins og sjá til þess að henni sé fylgt. Hann heldur mælendaskrá og stjórnar umræðum. S&S MIKILVÆGT er að undirbúa fram- kvæmdir af vandvirkni og þekkt er að tjón hefur orðið af því að undirbúning- urinn var ekki nógu vandaður, að sögn Sigurðar Helga. „Menn hafa orðið fyrir tjóni af því að semja við verktaka sem ekki hafa staðið sig og við brýnum fyrir fólki að spara ekki á undirbúningsstig- inu,“ segir hann. Gott er að fá hlutlausan sérfræðing til að meta ástandið og viðgerðarþörfina til að byrja með. „Síðan þarf að taka málið fyrir á fundi; hvað á að gera, hvað á að ganga langt og hvernig á að fjármagna,“ segir Sigurður Helgi. Mjög brýnt er að forðast fúskara „því þeir eru margir og hafa alltaf verið margir í þessum bransa“, bætir hann við. Skriflegir samn- ingar eru mikilvægir, hvort sem um lítil eða stór verkefni er að ræða. Algengt er að húsfélög séu skráð í Hús- eigendafélagið þegar að framkvæmdum kemur og að sögn Sigurðar Helga eru nú á milli 500 og 600 húsfélög meðlimir. Húsfundaþjónustan er mikið notuð og um það bil 100 fundir voru haldnir á vegum Húseigendafélagsins á síðasta ári. „Þetta er góð öryggisráðstöfun til að tryggja að rétt sé að málum staðið því ekki má mikið út af bregða,“ segir Sigurður Helgi. Fundarboðið verður að vera rétt, fund- arfyrirvarinn nægur, og í fundarboði verður að greina frá meginefni tillagna.  Ef fundur er ekki löglega boðaður get- ur vafi risið um lögmæti hans og skuld- bindingargildi ákvarðana sem teknar eru á honum. Hússtjórn ber sönn- unarbyrðina fyrir því að fundur hafi verið löglega boðaður og haldinn.  Stjórn húsfélags framkvæmir ákvarð- anir húsfunda. Henni er þó heimilt að láta framkvæma minni háttar viðhald og viðgerðir og gera brýnar ráðstaf- anir sem ekki þola bið. Um allt sem lengra gengur er henni skylt að leita fyrst samþykkis húsfundar.  Hyggist húsfélag taka lán fyrir fram- kvæmdum verður að gera tillögu þar að lútandi í fundarboði. Ekki er hægt að knýja íbúa til að taka lán ef hann vill heldur greiða hlutdeild sína í pen- ingum.  Ábyrgð eiganda í fjöleignarhúsi út á við, t.d. gagnvart banka og /eða verk- taka, er sameiginleg; einn fyrir alla og allir fyrir einn. Þannig getur kröfuhafi að vissum skilyrðum uppfylltum geng- ið að hverjum og einum eiganda ef vanskil verða af hálfu húsfélags og / eða einhvers eiganda. Mikilvægt að standa rétt að málum Þrátt fyrir að Spaugstofan hafi gert lífinu að Bessastöðum greinargóð skil í síðasta þætti sínum þá greindi hún ekki frá skemmtilegri heim- sókn forsetahjónanna í Hvolsskóla í vikunni. Forsetinn kom í heimsókn í tilefni af því að skólinn hlaut Ís- lensku menntaverðlaunin árið 2008. Forsetahjónin fylgdust með starf- inu í skólanum og Ólafur Ragnar ræddi við nemendur á sal þar sem þeim gafst líka færi á leggja spurn- ingar fyrir hann. Þá sungu nem- endur og spiluðu fyrir forsetahjónin og einn nemandi, Elísabet Rún Ágústsdóttir flutti ræðu sem hún flutti nýverið í árlegri ræðukeppni grunnskólanna í sýslunni og fjallaði þar um lýðræði og mótmæli. Að lokum snæddu forsetahjónin hádeg- isverð með nemendum. Með for- setahjónunum í för var hundurinn Sámur sem er frá Hvolsvelli en hann eignuðust þau hjónin á síðasta ári þegar þau voru hér á ferðalagi. Er ekki annað að sjá en Sámur taki sig vel út á myndum ef marka má mynd af honum og eigendum hans sem birtist nýverið í þýsku blaði.    Og úr því minnst er á hundinn Sám sem nú er orðinn þjóðþekktur, þá lék hann eitt af aðalhlutverkunum á þorrablóti Hvolsvellinga sem haldið var nýverið. Þar var gert góðlátlegt grín af því þegar forsetafrúin Dor- rit lét heillast af Sámi, eftir að hafa skoðað fjölda hunda, og fór í kjöl- farið með hann á Bessastaði þar sem hann hefur búið síðan. En þorrablótið þótti með eindæmum vel heppnað og hefðu Spaug- stofumenn getað verið stoltir af gríninu og ótrúlegri færni í eft- irhermum og leik sem þar mátti sjá. Að þessu sinni var það gatan Gilsbakki sem hafði veg og vanda af blótinu og skemmtu Gils- bakkamenn á öllum aldri þorra- blótsgestum af stakri snilld.    En fleira þarf að gera en fara á þorrablót og skemmtanir. Nýverið samþykkti sveitarstjórn Rangár- þing eystra fjárhagsáætlun sveitar- félagsins. Var hún unnin í samvinnu meiri- og minnihluta enda líklegast gáfulegast nú á tímum að nýta færni og þekkingu allra sveitar- stjórnarmanna. Afar erfitt er að fást við fjárhagsáætlunargerð á þessum óvissutímum og var því ákveðið að endurskoða hana tvisvar á árinu, í apríl og aftur í sept- ember. Útsvarsprósenta ársins 2009 verður 13,28%. Gjaldskrár hækka að jafnaði sem nemur neysluvísitölu án húsnæðisverðs. Laun sveitarstjórnar, nefnd- armanna og sveitarstjóra fylgja þróun þingfarakaups og lækka því um 7,5%. Framkvæmdir sveitarfé- lagsins hafa verið endurskoðaðar og aðeins verður gert ráð fyrir framkvæmdum uppá 25 milljónir króna. Á árinu 2008 var t.d. hætt við útboð viðbyggingar við íþrótta- húsið á Hvolsvelli og ekki er gert ráð fyrir nýframkvæmdum þar á árinu 2009. En ljúka á við byggingu nýs tónlistarskóla á árinu. Niður- stöðutölur áætlunarinnar eftir fjár- magnsliðið er neikvæð um 13 millj- ónir en gert er ráð fyrir 8.5% verðbólgu. Það er ljóst að efnahags- hrunið hefur haft veruleg neikvæð áhrif á fjárhag sveitarfélagsins, en Rangárþing eystra stóð ágætlega fyrir hrunið.    Stjórnmálaflokkarnir eru nú farnir að undirbúa kosningarnar sem verða haldnar eftir páska. Um helgina hélt Framsóknarflokkurinn sitt kjördæmisþing á Hvolsvelli og var ákveðið að efna til prófkjörs í póstkosningu sem fara mun fram í enda mánaðarins. Sjálfstæðismenn ætla líka að efna til prófkjörs um miðjan mars. Ekki eru mjög ný nöfn sem komið hafa fram til fram- boðs þrátt fyrir háværar kröfur um endurnýjun á alþingi. Og víst er að þeir sem nú verma þingmannsætin munu trauðla gefa þau eftir ef að líkum lætur. HVOLSVÖLLUR Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir fréttaritari Morgunblaðið/Þorgeir Sigurðsson, nemandi í 10. bekk Hvolsskóla Forsetaheimsókn Forsetinn ávarpar nemendur Hvolsskóla á Hvolsvelli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.