Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 Okkur vinkonurnar langar að minnast Ebbu með þakklæti í huga fyrir hennar vináttu. Ekki átt- um við nú von á því þegar hún fór á spítalann að hún kæmi ekki aftur heim. Við vissum að hún var búin að Eufemía Kristinsdóttir ✝ Eufemía Krist-insdóttir, Ebba eins og hún var köll- uð, fæddist á Siglu- firði 2. janúar 1930. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 31. desember síðastliðinn og var út- för hennar gerð frá Vídalínskirkju 8. jan- úar. vera lasin, en eins og hún sagði alltaf, þetta lagast allt, ég er bara hálfslöpp. Við erum búnar að vera vinkon- ur og nágrannar í mörg ár. Svo tókum við upp á því að fara út að borða vikulega og erum búnar að gera það í 10 ár og heim- sækja alla matsölu- staði í bænum og ná- grenni. Sama hvort það var að fara austur til Eyrarbakka eða suður til Keflavíkur, alltaf var Ebba til í allt. Það var svo gaman hjá okkur í matarklúbbnum, en nú er komið stórt skarð í okkar hóp, sem ekki verður fyllt, en við eigum okkar góðu minningar. Kvenfélagsfundirnir verða öðruvísi núna þegar Ebbu vantar í hópinn. Hún var sérlega vin- sæl hjá öllum. Hún var alltaf jákvæð hvað sem á gekk. Hún sagðist vera svo rík, því hún ætti svo yndislega fjölskyldu sem hún var svo stolt af, og eftir að Haraldur maður hennar dó, þá var hún umvafin kærleika og blíðu frá þeim öllum, og missa þau mikið við andlát hennar. Við vottum fjölskyldu hennar samúð okkar og viljum svo þakka Ebbu fyrir yndis- legar stundir sem við áttum með henni hér heima og á Benidorm. Guð blessi þig, Ebba. Guðrún Ólöf Sveinjónsdóttir, Erla Magnúsdóttir, Sigríður Bára Sigurðardóttir. mánaðarlega hittingi, ræddum gleðina, sorgina, erfiðleikana og sigr- ana. Aldrei var neitt þó svo alvarlegt í þínum huga að þú gætir ekki talað um það á léttu nótunum. Þetta miðvikudagskvöld ertu mér svo í fersku minni því við bókstaflega grétum úr hlátri og þá aðallega yfir sögunni af þér og hnakknum góða. Þú gerðir óspart grín að sjálfri þér og hlóst manna mest. Lýsingar ykkar Helgu Birnu á hvor annarri í ræktinni gerðu það að verkum að manni lang- aði með bara vegna skemmtunarinn- ar að fylgjast með ykkur. Við rædd- um sérstaklega mikið um vináttu þetta kvöld og hversu mikilvægt það er að eiga góða vini þegar erfiðleikar steðja að. Það varst þú búin að vera Helgu Birnu í hennar erfiðleikum undanfarið og hafðir staðið við hlið hennar eins og klettur. Þið tvær vor- uð einstakar saman. Ég er guði óendanlega þakklát fyr- ir þetta góða kvöld þar sem við æsku- vinkonurnar vorum saman og áhyggj- ur dagsins hurfu eins og dögg fyrir sólu. Það verður tómlegt að hafa þig ekki með í næsta klúbbi eins og und- anfarin 15 ár. Áður en kvöldinu lauk ákváðum við að hittast í lok mánaðar og fara saman út á lífið sem við gerðum allt of sjald- an. Hver hefði getað trúað því að sá hittingur yrði svo jarðaförin þín. Hvíldu í friði, elsku Guðrún, þín verður sárt saknað. Elsku Ken, Gunnar Már, prins- essurnar tvær Viktoría og Sara og aðrir aðstandendur, missir ykkar er óbærilegur. Megi guð gefa ykkur öll- um styrk í sorginni. F.h saumaklúbbsins, Irmý Rós Þorsteinsdóttir. Elsku Guðrún okkar, Við sitjum hér og reynum að skilja að þú sért farin frá okkur og okkur er ekki nokkur leið að skilja. Hvers vegna? Hver er tilgangurinn? Ef við hefðum getað kvatt þig mundum við segja þér að við elskum þig og hvað við munum sakna þín mikið og reyna að fá þig ofan af því að fara svona fljótt. Við erum svo óend- anlega þakklátar fyrir að hafa fengið þig inn í líf okkar, þú varst svo rosa- lega frábær, indæl, skemmtileg og fyndin manneskja. Það var svo gam- an að koma til þín, þú og Ken voruð alltaf svo hress og hamingjusöm. Við munum sakna þess að heyra röddina þína og hlátur sem aðeins vakir í huganum. Við eigum æðisleg- ar minningar um þig sem við munum aldrei gleyma og við mundum gera allt til að fá að hitta þig einu sinni enn. Lífið er ósanngjarnt og þú varst tekin í burtu frá okkur alltof snemma. En við trúum því að þú sért komin á betri stað þar sem þú vakir yfir okkur og munt alltaf verða hjá okkur. Þú varst ótrúlega góðhjörtuð manneskja og við munum aldrei gleyma þér. Elsku Ken, Gunnar Már, Sara Margrét og Viktoría Lynn, við biðj- um góðan Guð að gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg . Hvíldu í friði, elsku Guðrún okkar. Við elskum þig. Þínar, Katrín Mist Jónsdóttir og Birna Helga Jóhannesdóttir. Hún amma hefur nú kvatt þetta líf. Það hafa verið forréttindi mín að fá að fylgja ömmu þessi síðustu æviár hennar. Ég kynntist ömmu fyrst að einhverju ráði þegar hún og afi fluttu í Hafnarfjörðinn frá Ísa- firði. Það var alltaf langt á milli okk- ar og því ólumst við systkinin ekki upp við að það væri alltaf hægt að skreppa til ömmu og afa. Að fara í heimsókn á Ísafjörð var heilmikið ferðalag og ekki var farið nema einu sinni á ári eða þá að þau komu suður. Ég fór þó eitt sumar vestur og dvaldi hjá þeim og passaði frænda minn. Það var margt skrýtið að sjá og upplifa á Ísafirði. Skrítnast fannst mér þó að Ísfirðingar töluðu öðruvísi en Sunnlendingar. Ég var t.d. beðin um að koma út að vippa. Ég vissi ekki hvað það var en fór samt út að leika og þá var sest upp á vegasalt og farið að vega. Mest man Elísabet Steinunn Jónsdóttir ✝ Elísabet SteinunnJónsdóttir fæddist á Þingeyri við Dýra- fjörð 21. júlí 1917. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 24. jan- úar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Víðistaðakirkju 30. janúar. ég þó eftir garðinum hennar ömmu á Hlíð- arveginum, hvað hann var fallega hirtur og hvað eldliljurnar voru fallegar sem voru und- ir eldhúsglugganum. Eftir að amma og afi voru flutt í Hafnar- fjörðinn varð styttra á milli okkar og alltaf hægt að skjótast í heimsókn. Þá fann ég hvað það er yndislegt að eiga ömmu og afa, líka fyrir börnin mín sem fundu að rætur þeirra liggja djúpt í stórri og yndislegri ætt. Þeg- ar árin fóru að færast yfir flutti afi á Sólvang en síðustu árin dvaldi amma á Hrafnistu í Hafnarfirði og naut hún þar umönnunar frábærra kvenna sem þar vinna. Vil ég þakka þeim hlýlegt viðmót og yndislegt starf sem þær vinna. Það var alltaf jafn nota- legt að koma í heimsókn til ömmu, Hrafnista er eins og stórt heimili. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elísabet S. Jóhannsdóttir. Kveðja frá Thor- valdsensfélaginu Við kveðjum nú kæra vinkonu og fé- lagskonu, Önnu Ástu Georgsdóttur. Anna gekk í Thorvaldsensfélagið 30. apríl árið 1975. Hún bar hag þess mjög fyrir brjósti og var gjöful á tíma sinn. Hún sat tvö kjörtímabil í Barnauppeldissjóði félagsins og vann þar mikið og gott starf. Hún var afar listræn og naut félagið góðs af listrænum hæfileikum hennar þegar valdar voru myndir eftir viður- kennda listamenn á jólamerki Thor- valdsensfélagsins. Einnig var Anna kjörin til forystustarfa þegar félagið stóð fyrir sýningum á jólamerkjum félagsins eða tók þátt í frímerkjasýn- ingum. Ekki lá hún heldur á liði sýnu við sölu jólamerkjanna. Anna vann auk þess mikið á Bazar Thorvald- sensfélagsins og sá meðal annars um Anna Ásta Georgsdóttir ✝ Anna ÁstaGeorgsdóttir fæddist í Reykjavík 21. september 1933. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sóltúni 23. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Áskirkju 30. janúar. gluggaútstillingarnar þar í mörg ár. Það var gaman að vera með Önnu. Hún var hæfileikarík og úr- ræðagóð. Hún var æv- inlega geislandi glöð og kát og einstakur ljúflingur, enda ávann hún sér vináttu og virðingu allra þeirra mörgu félagskvenna sem unnu með henni, eða nutu samvista við hana á góðum stund- um hjá félaginu. Hún lét sig ekki vanta á fundi, í ferðalög og á skemmtanir félagsins ef hún gat því viðkomið. Síðast mætti hún á jólafundi félagsins 8. desember sl. þar sem hún mælti nokkur falleg orð til fundargesta úr hjólastólnum sín- um, meira af vilja en mætti þar sem þrekið var þverrandi. Thorvaldsensfélagið á Önnu Ástu mikið að þakka eftir 34 ára farsælt sjálfboðastarf. Við félagskonur kveðjum nú heilsteypta og vandaða félagskonu með þakklæti og virðingu og biðjum henni Guðs blessunar, fjölskyldu hennar sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd félagsins, Sigríður Sigurbergsdóttir formaður. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og dóttir, HRÖNN GUÐJÓNSDÓTTIR, Brimnesi 3, Fáskrúðsfirði, lést miðvikudaginn 11. febrúar. Minningarathöfn um hina látnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn 18. febrúar kl. 11.00. Útförin verður gerð frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á UMHYGGJU - félag til stuðnings langveikum börnum. Guðmundur Eiríksson, Védís Elsa Guðmundsdóttir, Þórir Sævar Kristinsson, Guðlaug Jónasdóttir, Hrefna Kristinsdóttir, Ólafur Óðinn Valdemarsson, Halldór Kristinsson, Emilía Björt Ólafsdóttir, Þórir Sævar Maronsson, Védís Elsa Kristjánsdóttir, Stella Einarsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskuleg systir okkar og mágkona, KRISTÍN BENEDIKTSDÓTTIR, Hátúni 10, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi aðfaranótt mánu- dagsins 16. febrúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13.00. Elísabet Benediktsdóttir, Tómas Á. Einarsson, Bjarni Ólafsson, Kristín Þórarinsdóttir. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGI EINAR VILHJÁLMSSON, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands laugardaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 21. febrúar kl. 13.30. Erla Sigurðardóttir, María Gröndal, Guðlaug Helga Ingadóttir, Þór Sveinsson, Sigurður Ingi Einarsson, Maritza Sepulveda, Kort Þórsson, Magdalena Þórsdóttir. ✝ Elskuleg móðir mín og amma, HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR, Arnarvatni, Mývatnssveit, lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga föstudaginn 13. febrúar. Útförin fer fram frá Skútustaðakirkju laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00. Starfsfólki sjúkradeildar og læknum Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga færum við okkar innilegustu þakkir fyrir alúð og góða umönnun á liðnum árum. Bergþóra Eysteinsdóttir, Ásta Kristín Benediktsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.