Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 Atvinnuauglýsingar 101 hótel óskar eftir starfsmanni í eldhús til að sjá um morgunverð. Vinnutími 6-11 15 daga í mán. Ca. 45% vinna. Áhugasamir sendi umsókn/upplýsingar á eldhus@101hotel.is Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Matvæla- og veitingafélag Íslands MATVÍS félagar á Norðurlandi MATVÍS , Matvæla- og veitingafélag Íslands boðar til almenns félagsfundar 19. febrúar 2009 á Hótel KEA kl. 1600. Dagskrá: Almenn umræða um stöðu mála. Kaffiveitingar. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Aðalfundur Félagsfræðingafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 19. febrúar 2009 kl. 16.30 í fundarsal Þjóðarbókhlöðu-háskóla- bókasafns á annarri hæð. Hefðbundin dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Að loknum aðalfundarstörfum munu Kolbeinn Stefánsson og Ingibjörg Lilja Ómars- dóttir flytja erindi: Önnur sýn á efnahagslífið - Hvað hefur félagsfræðin að segja um velferð og vinnumarkað? Félagar fjölmennið. Stjórnin. Aðalfundur Aðalfundur Knattspyrnudeildar KR, verður fimmtudaginn 26. febrúar nk. í félagsheimili KR við Frostaskjól og hefst hann kl. 17.30. Venjuleg aðalfundarstörf, önnur mál. Stjórnin. Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnar- stræti 1, Ísafirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Brekkugata 7, fnr. 212-5439, Þingeyri, þingl. eig. Dagur Hákon Rafns- son, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 24. febrúar 2009 kl. 14:00. Guðrún Ísleifsdóttir ÍS-25, sk.skr.nr. 971, þingl. eig. FiskAri ehf., gerðarbeiðandi Avant hf., þriðjudaginn 24. febrúar 2009 kl. 14:00. Hafnarstræti 2, fnr. 212-5562, Þingeyri, þingl. eig. Kristján Fannar Ragnarsson, gerðarbeiðendur Byggðastofnun,Tryggingamiðstöðin hf. og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 24. febrúar 2009 kl. 14:00. Neðsti-Hvammur 1, fnr. 212-5293, Þingeyri, þingl. eig. Daðína Margrét Helgadóttir, gerðarbeiðandi Húsasmiðjan hf., þriðjudaginn 24. febrúar 2009 kl. 14:00. Suðurgata 9 (870), fnr. 212-0508, Ísafirði og öll rekstrartæki sem til- heyra þeim rekstri, þingl. eig. Suðurgata 9, Ísafirði ehf., gerðarbeið- andi Byggðastofnun, þriðjudaginn 24. febrúar 2009 kl. 14:00. Suðurtangi 2, fnr. 222-9262, Ísafjörður, þingl. eig. Stefán Aydin Sipahi, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 24. febrúar 2009 kl. 14:00. Valur ÍS-18, sk.skr.nr. 1324, þingl. eig. FiskAri ehf., gerðarbeiðandi Avant hf., þriðjudaginn 24. febrúar 2009 kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 17. febrúar 2009. Una Þóra Magnúsdóttir, fulltrúi. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri mánudaginn 23. febrúar 2009 kl. 10:00. Urðargata 6, íbúð 01-0101, Vesturbyggð, fnr. 212-4097, þingl. eig. Ingi- mundur Óðinn Sverrisson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Patreks- firði. Sýslumaðurinn á Patreksfirði, 17. febrúar 2009. Úlfar Lúðvíksson. Tilkynningar Endurstofnun -Samspil firma- og vörumerkjaréttar Hér með er boðað til endurstofnfundar í Samtökum um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar (SVESI). Samtökin voru stofnuð árið 1986, en starfsemin lagðist af í kringum 2003. Fundurinn verður haldinn í fundarsal LOGOS lögmannsþjónustu að Efstaleiti 5, Reykjavík, fimmtudaginn 19. febrúar 2009 og hefst kl. 15.30. Fundurinn er öllum opinn er áhuga hafa fyrir þessum málstað og gerast endur- stofnfélagar í samtökunum. Á Dagskrá funda- rins eru venjuleg aðalfundarstörf, þ.m.t. stjórnarkjör. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Sigurður Arnalds, dósent við Háskólann á Bifröst flytja erindi er hann nefnir Samspil firma- og vörumerkjaréttar. Reykjavík 16. febrúar 2009 Árni Vilhjálmsson hrl. formaður Félagslíf I.O.O.F. 9  189021881/2 I.O.O.F. 7.  1892187½ 0.* I.O.O.F. 181892188Bk. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. HELGAFELL 6009021819 Vl GLITNIR 6009021819 lll Elskuleg tengda- móðir mín er látin tæplega 87 ára að aldri. Diddu, eins og hún var alltaf kölluð, kynntist ég árið 1981 þegar ég flutt- ist frá Ameríku til ömmu minnar Jensínu. 18 árum síðar urðum við Guðjón sonur hennar hjón. Ég tel mig vera einstaklega heppna að hafa fengið að kynnast Diddu. Betri vinkonu og tengdamóð- ur er ekki hægt að hugsa sér. Á milli okkar skapaðist traust og góð vin- átta og gátum við rætt saman um allt milli himins og jarðar. Ég met það mikils við hana að hún tók Ólafi Friðriki, syni mínum, sem einu af sínum eigin barnabörnum og sinnti hún honum af sama áhuga og hlýju og öllum hinum. Hann var einn af hópnum og hún var bara amma Didda. Líf Diddu var ekki alltaf dans á rósum en hún var óhrædd við að tak- ast á við erfiðleika og leysa úr þeim. Fáir eru jafnokar hennar í þeim efn- um. Þrátt fyrir erfiðleika og veikindi hélt hún alltaf sínu góða skapi og sinnti fjölmörgum áhugamálum eftir bestu getu. Hún naut sín vel í góðra vina hópi og var oftast hrókur alls fagnaðar. Sérstakt dálæti hafði hún á tónlist, einkum af léttara taginu. Elísabet Guðjónsdóttir ✝ Elísabet Guðjóns-dóttir fæddist í Reykjavík 28. janúar 1922. Hún lést á heim- ili sínu Sóltúni 2 í Reykjavík 21. janúar síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Dómkirkjunni 2. febr- úar. Talaði hún oft um að Baldur, eiginmaður hennar, hefði reynt að kenna henni á píanó, en henni einungis tek- ist að læra að spila eitt lag, Sentimental Jour- ney, og því hefði hún seint gleymt. Á síðari árum var Rod Stew- ard í miklu uppáhaldi. Didda hafði gaman af leikhúsferðum og var ávallt tilkippileg í slíkar ferðir ef heilsan leyfði. Hún naut bók- lestrar og þá sérstaklega ástarsagna og reyfara. Hún hafði gaman af góð- um bíómyndum og þá einkum ef þar var að sjá myndarlega karlmenn, en þeir fóru sjaldan framhjá henni. Didda var ekki há vexti en stór- glæsileg. Hún var aldrei ótilhöfð, hvorki hversdags né á tyllidögum. Hún hafði fallegan fatasmekk og var bleikur fatnaður í miklu uppáhaldi. Handavinnan lék í höndum hennar og ófáar flíkurnar vann hún á börn sín og barnabörn. Hún lauk við síð- ustu lopapeysuna aðeins fáum dög- um fyrir andlátið. Didda var fóstursystir móður minnar og varð þeim vel til vina. Sú vinátta jókst eftir að báðar voru orðnar ekkjur og enn meira eftir að við Guðjón fórum að rugla saman reytum okkar. Þegar þær voru sam- an var ekkert sem gat truflað þær og samtöl þeirra, nema kannski barnabörnin og þá sérstaklega Bald- vin Fannar og Jóhanna Vigdís. Þær kveðja nú þennan heim með tæplega mánaðar millibili en móðir mín lést á aðfangadag jóla sl. Þeirra er sárt saknað og finnst ömmubörnunum erfitt að aka framhjá Sóltúni og Skjóli án þess að geta farið í heimsókn. Við trúum því að þær séu enn hjá okkur í huga og hjarta og verði um ókomna tíð. Eins og skáldið Hannes Pétursson komst svo vel að orði í ljóði sínu „Þú gekkst mér við hlið“: Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. Elsku Didda, megi góður Guð blessa minningu þína. Bryndís Guðjónsdóttir. Elsku amma mín. Mér fannst ósköp erfitt að vera svona langt í burtu á síðustu dögunum þínum og að geta ekki verið hjá þér þegar kall- ið kom, en það var gott fyrir þig að fá friðinn. Þú varst búin að vera lík- amlega lasburða seinustu árin. Ég sit hér við tölvuna og hugsa til baka og það eru margar skemmtilegar minningar sem koma upp í hugann eins og hversu mikil dama þú alltaf varst. Ég man ekki eftir að hafa nokkrum tíma séð þig ótilhafða; fal- lega klædd og alltaf máluð, með bleikt naglalakk og bleikan varalit og það mun alltaf minna mig á þig. Þú varst ekki há í loftinu en því meiri karakter varst þú, við Sólrún systir nutum góðra stunda hjá þér þegar mamma og pabbi fóru út að skemmta sér og við sváfum hjá þér, mér er svo minnistætt núna: við systurnar að hoppa og dansa á stofu- gólfinu á Meistaravöllunum klæddar í babydoll-náttkjóla af þér en mamma hafði gleymt að pakka nátt- fötunum okkar. Okkur fannst við mestu prinsessur sem hugsast gat, svona flott klæddar. Einnig eru mér minnisstæð jóla- boðin hjá þér þar sem allir voru saman komnir og þú eldaðir ofan í allan mannskapinn og svo var jarð- arberjafromage í eftirrétt. Það voru engin jól þegar ég var barn án þess að fá fromage hjá ömmu. Þú varst handavinnukonu mikil og hvort sem það var hekl eða útsaumur þá áttu allir fjölskyldumeðlimir eitthvað frá þér. Það var voða gott að sjá þig síðast þegar ég var heima, þú varst svo hress og kát, við eyddum heimsókn- inni í það að stríða hvor annarri. Ég tók mynd af okkur saman í þeirri heimsókn sem mér þykir ósköp vænt um. Það er skrítið að hugsa um að þú sért farin. Ég á erfitt með að kyngja því. Kannski vegna þess að í mínum huga ertu heima á Íslandi og verður þegar ég kem næst en samt veit ég að svo er ekki. Fjarlægðin gerir skrýtna hluti í huganum. Þú munt alltaf verða í huga mér lítil kona með stóran persónuleika sem enginn getur gleymt. Vona að nú séu allar þínar þrautir leystar, amman mín. Ég sendi öllum kæra kveðju. Þín elskandi dótturdóttir, Guðrún Lísa. Tengdamóður mín hefur kvatt, komin vel á níræðisaldur. Kraftar hins veikburða líkama eru þá end- anlega þrotnir, andlegt atgervi var hinsvegar óbugað allt til hinstu stundar.Þegar ég hugsa til tengda- móður minnar Elísabet Guðjóns- dóttur (Diddu) kemur margt upp í hugann. Það eru 40 ár síðan ég kom fyrst í Safamýri 36 til Baldurs og Diddu til að hitta dóttur þeirra Elsu sem seinna varð konan mín. Ég man eftir allri þeirri músík sem var á þessu heimili enda engin furða þar sem tengdapabbi minn var afbragðs- góður píanóleikari. Með þessu ljóði kveð ég þig, kæra tengdamóðir og þakka þér fyrir allar góðu stundirn- ar sem við áttum saman. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Löngu og gefandi lífi er lokið. Kona með fjölbreytta hæfileika er kvödd með virðingu og þökk. Þinn tengdasonur, Kristján Guðmundsson. Það var alltaf eitthvað svo merki- legt að koma til ömmu Diddu á Meistaravellina. Þegar ég hugsa til baka þangað man ég nokkurn veg- inn hvernig allt leit út. En það er einhvern veginn ekki útlitið sem hugurinn staldrar við. Ég man miklu betur eftir áferðinni á gólfteppinu sem var mýkra en öll önnur teppi og eldhússtólunum sem maður brenndi sig á ef maður strauk of hratt yfir þá. Ég man líka rosalega vel eftir lyktinni á baðherberginu sem ég hélt alltaf að væri af púðrinu hennar ömmu og ég man eftir peningasjálf- salanum í þvottahúsinu sem maður fann stundum tíkall í ef maður var heppinn. Þetta var ekki stór íbúð sem ég heimsótti ömmu í. Hún var eiginlega það lítil að þar var ekki einu sinni svefnherbergi. Meira svona svefn- skot. Samt var það alltaf ævintýri líkast að koma þangað. Amma átti dót inni í geymslu sem var hvergi til annars staðar. Hún átti eldgamalt Útvegsspil sem enginn kunni en allir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.