Morgunblaðið - 18.02.2009, Qupperneq 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009
Hjá Senu er nú í undirbúningi
glæsilegur safnkassi með öllum
plötum hinnar goðsagnakenndu
hljómsveitar Trúbrots.
Um er að ræða endurútgáfu á
fjórum plötum sveitarinnar, Trú-
brot (1969), Undir áhrifum (1970),
Lifun (1971) og Mandala (1972) en
þar fyrir utan verða í pakkanum
tvær sjö tommur auk áður lags sem
ekki hefur komið út áður.
Safnkassi með plötum
Trúbrots á leiðinni
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„SÆLL Einar Áskell, hvert ertu að fara?“ spyr
Gunni. „Ég er bara að fara út í sjoppu,“ svarar
Einar Áskell. „Má ekki bjóða þér sopa af þessum
ljúffenga drykk, Einar minn,“ spyr Gunni.
Án þess að hugsa, fann Einar Áskell hvað
hann var þyrstur og fékk sér sopa af því sem
reyndist vera einhver landi í Euroshopper orku-
drykk. Áhrifin voru stórkostleg nokkrum sopum
seinna. Einar Áskell fann að hann fékk aukið
sjálfstraust, fann að hann var skemmtilegur, það
fannst það öllum. Gamanið var í hámarki þegar
Einar Áskell kastaði upp, svo man hann ekki
meir.“
Þannig hljómar upphafið á sögu um Einar Ás-
kel sem ónefndur íslenskur höfundur hefur
skrifað á bloggsíðuna einaraskell.blogg.is. Ein-
hverjir hafa leitt að því líkum að hér hljóti að
vera á ferðinni ónefndur ungur rithöfundur í
Reykjavík sem hafi tekið að sér að skrifa fram-
hald bókanna og sýnist sitt hverjum um fram-
takið. „Þegar hér er komið við sögu er Einar
orðinn 14 ára. Hann býr enn með pabba sínum
uppi í Efra-Breiðholti. Einar er í þann mund að
verða fullorðinn og lendir brátt í hinum ýmsu
ævintýrum sem fylgja því,“ segir á síðunni. Ef-
laust mun einhverjum þykja það spennandi að
fylgjast með áframhaldandi ævintýrum Einars
Áskels, en ekki síður að sjá hvort greinarhöfund-
urinn gefur sig fram.
Einar Áskell byrjar að drekka?!
Söngkonan
vinsæla,
Ragnhildur
Gísladóttir,
hélt sína de-
bút-tónleika
sem tónskáld
á Myrkum
músíkdögum
sem fram fóru
í síðustu viku
en þar voru
frumflutt tvö verk eftir Ragnhildi,
C-Iss og Gullfoss. Ragnhildur út-
skrifaðist af tónskáldabraut
Listaháskóla Íslands í fyrravor en
þar nemur nú önnur vinsæl popp-
söngkona, Margrét Kristín Blöndal
eða Magga Stína eins og hún er oft-
ast kölluð. Hvort hér sé kominn vís-
ir að einhverskonar tónmennta-
bylgju innan raða íslenskra
poppara skal ósagt látið en ljóst má
vera að sá Kínamúr sem skildi að
tónskáld og poppara er óðum að
hrynja til grunna.
Poppsöngkonur feta
tónskáldabraut
Og talandi um viðhafnarútgáfur.
Ævisagnaheftin þrjú sem Óttar M.
Norðfjörð skrifaði um Hannes
Hólmstein Gissurarson verða gefin
út í sérstökum bókakassa í vikunni
ásamt aukaefni.
Samkvæmt Nýhil verður kassinn
afhentur Hannesi Hólmsteini við
konunglega athöfn á Bessastöðum
nú á föstudag.
Konungleg athöfn á
Bessastöðum
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
SEGJA má að Íslensku tónlistar-
verðlaunin stígi skrefið frá því að
verða viðburður sem sjónvarpað er frá
í það að verða sjónvarpsviðburður en
hátíðin fer fram í beinni útsendingu úr
sjónvarpssal RÚV í kvöld. Pétur Grét-
arsson segir helstu ástæðu þess að
ákveðið var að fara þessa leið vera
sparnaðaraðgerðir hjá Ríkissjónvarp-
inu.
„Í sínum mikla niðurskurði treysti
RÚV sér ekki út úr húsi,“ upplýsir
Pétur. „Þá stóðum við frammi fyrir
því að velja á milli þess að vera ekki í
sjónvarpinu eða að fá inni hjá því í
staðinn.“
Hátíðin sjálf fer þó fram með hefð-
bundnum hætti, þar sem tónlistar-
atriði og verðlaunaafhendingar verða
á víxl. „Í gegnum árin hefur hátíðin
þróast meira og meira út í það að vera
sjónvarpsþáttur. Það hlýtur að vera
eðli málsins samkvæmt, að þegar
maður fer með svona hátíð í sjón-
varpið … að hún breytist í sjónvarps-
þátt.“
Verðlaunum fækkað
Á síðustu árum hefur verðlaunum
fækkað á hátíðinni, og fækkar enn í
ár. Þetta er gert með ýmsu móti, til
dæmis sameiningu verðlauna. Nú
keppa t.d. söngvarar og söngkonur um
verðlaunin Rödd ársins. „Svona viljum
við þétta verðlaunin til þess að þetta
komist fyrir í útsendingu. Verðlaunum
er því fækkað úr 20 niður í 12 stykki.“
Kynnir í ár verður maður kenndur
við stuð, sjálfur Valgeir Guðjónsson
en hann kemur fram ásamt Karla-
kórnum Voces Masculorum. Fram
koma Agent Fresco, Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari, Dr.
Spock, Ómar Guðjónsson og Múgsefj-
un.
Bein útsending sjónvarpsins hefst
kl. 19.30.
ÍTV að sjónvarpsþætti
Íslensku tónlistarverðlaunin afhent í 15. sinn í kvöld Hátíðin er í fyrsta skipti
í beinni útsendingu úr sjónvarpssal Verðlaunum fækkar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heiðursverðlaunahafi Rúnar Júlíusson var sæmdur heiðursverðlaunum ÍTV í fyrra fyrir ævistarf sitt. Hann
lést tíu mánuðum síðar. Honum til heiðurs í fyrra tóku ungir tónlistarmenn syrpu af lögum hans.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ ætlum að blása miklu lífi í
klúbbinn,“ segir Atli Rúnar Her-
mannsson, framkvæmdastjóri Con-
certs, en hann og Einar Bárðarson
hafa tekið yfir hinn fornfræga Offi-
cera-klúbb á Keflavíkurflugvelli.
Þeir félagar ætla sér stóra hluti með
staðinn. „Stapinn er í yfirhalningu
um þessar mundir og hann hefur
ekki verið starfræktur í um það bil
ár. Þannig að það hefur vantað stað
af þessari stærðargráðu á Suður-
nesjum, það hefur vantað stað fyrir
árshátíðir, stóra dansleiki og annað
slíkt. En við erum náttúrlega báðir
með mikla reynslu í svona málum,
og teljum okkur vel hæfa til að gera
góða hluti þarna,“ segir Atli.
Officera-klúbburinn hefur meira
og minna verið lokaður síðan herinn
fór, þótt nokkur böll hafi að vísu ver-
ið haldin þar. „Þetta er gríðarlega
stórt, ég held að húsið sé um 2.000
fermetrar, og þetta er langstærsta
samkomuhúsið suður með sjó. Þetta
er til dæmis töluvert stærra en
Stapinn,“ segir Atli og bætir því við
að þeir félagar ætli ekki að gera
miklar breytingar á staðnum. „Alla-
vega ekki á innviðum hans, það er
það sem er svo kúl við staðinn, þetta
þunga og brúna herútlit.“
Fyrsta skemmtunin í klúbbnum
undir stjórn þeirra félaga verður á
laugardaginn. „Þá verður árshátíð
haldin þarna, og svo verður opið ball
með Í svörtum fötum frá miðnætti,“
segir Atli. Þeir félagar ætla að
standa fyrir reglulegum uppá-
komum í klúbbnum, en þar verður
þó ekki opið um hverja einustu
helgi.
Officera-klúbburinn und-
ir stjórn Einars og Atla
Morgunblaðið/Kristinn
Einar Hefur tekið við rekstri klúbbs ásamt Atla „skemmtanalöggu“.
Í svörtum fötum spilar á dansleik á laugardagskvöldið
Bjartasta vonin:
Retro Stefson
Tónverk ársins:
ORA eftir Áskel Másson
Plata ársins / djass:
Fram af - Ómar Guðjónsson
Plata ársins / sígild og
samtímatónlist:
Fordlandia - Jóhann Jóhannsson
Plata ársins / popp&rokk:
Me and Armini - Emilíana Torrini
Rödd ársins: Emilíana Torrini
Lag ársins: Þú komst við hjartað í
mér eftir Togga og Páll Óskar
Tónlistarflytjandi ársins: Björk
Höfundur ársins: Sigur Rós
Myndband ársins:
Ólafur Arnalds - 3055
Morgunblaðið spáir í spilin
Einar Áskell Vinsæll á
meðal barna og fullorðinna.