Morgunblaðið - 18.02.2009, Page 38

Morgunblaðið - 18.02.2009, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2009 Seðlabankastjóri er í raunvaldagráðugt tilfinn-ingalaust vélmenni sem er staðráðið í því að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að færa íslensku þjóðinni mestu eymd sem hugsast getur. En hann er þó ekki hinn raunverulegi Davíð Oddsson, heldur svikari er hefur læst inni þann raunverulega hrokkinhærða, fyrrum formann Sjálfstæðisflokks- ins, í dýflissu í Seðlabankanum. Davíð hefur greinilega verið þar lengi, því hann virkar auðmjúkur, með barnsleg augu sem gefa til kynna að hann geti horft á tilveruna af forvitni og leyft nýjungum að hafa áhrif á sig. Undarleg lýsing á einum um- deildasta manni Íslands um þessar mundir. Þrælfyndin líka, en svona birtist Davíð Oddsson lesendum Eineygða kattarins Kisa og Ástandsins, nýjustu myndasögubók Hugleiks Dagssonar.    Auðvitað algjör steypa en kastarþó fram spurningum um eðli Davíðs. Í gegnum tíðina hefur hann birst þjóðinni í ýmsum myndum sem … 1) tryggur, orðheppinn leið- togi þjóðarinnar 2) hrokafullur og þrjóskur maður er lætur engan vaða yfir sig 3) hresst og fyndið par- tíljón er kann að skála að Bermúda- sið 4) blá-kaldur og fjölmiðlafælinn maður sem hefur afgreitt mótmæli sem skrílslæti minnihlutahópa. Þessa dagana er auðvelt að blind- ast af stolti „hertogans í svarta kastalanum við Arnarhól“ og sjá ekki sjálfan manninn. Hann og hans fortíð, sem hann dregur á eftir sér eins og botnvörpu fulla af kol- kröbbum, kemur í veg fyrir að nokkur maður geti fundið sjálfan sig í honum og þannig séð hann í réttu ljósi … maður … einn af okk- ur. Ótrúlegt, en satt.    Og skapandi maður líka, eins ogHugleikur minnir okkur á í nýrri myndasögu sinni. Davíð hefur alla tíð verið listhneigður og hefur einhvern veginn fundið tíma með störfum sínum í stjórnmálum til þess að skrifa smásögur, ljóð og jafnvel popptexta. Þannig liggja eft- ir hann smásagnasöfnin Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar og Stolið frá höfundi stafrófsins en fyrri bók- in var m.a. þýdd á þýsku og fékk blíðar viðtökur þar í landi. Hann samdi líka texta við lag Gunnars Þórðarsonar, „Við Reykjavíkur- tjörn“, sem ómögulegt er að hlusta á án þess að laglínan og orðin límist á heilann. Þetta fær mann til þess að velta því fyrir sér hvað hefði orðið um manninn Davíð Oddsson ef hann hefði blómstrað sem listamaður í stað þess að eyða kröftum sínum í hinn eilífa sirkus stjórnmálanna? Hefði þá enginn barist fyrir einka- væðingu bankanna og frjálsri versl- un á landi hér? Hefði ríkisstjórnin samt samþykkt beiðni George W. Bush um að sverta nafn þjóðarinnar með stríðsyfirlýsingu við fjarlægt land sem fæst okkar höfðu heim- sótt? Jú, að öllum líkindum. Davíð er eins og allir aðrir, bara leik- maður á tafli örlaganna sem hefur þurft að laga sig að þeim straumum og stefnum er hafa umlukt hann hverju sinni.    Allir listamenn eru tilfinn-ingaverur og ef eitthvað er hægt að lesa úr stolti og þrjósku Davíðs Oddssonar síðustu vikurnar er það einmitt það að hann er mikil tilfinningavera. Baráttumaður, sem spilar leikinn til enda. Sumir segja, eins og smástrákur í tölvuleik, sem hefur það ekki í sér að leyfa öðrum að prufa líka? Með súrri þjóðfélagsgagnrýni sinni spyr Hugleikur mikilvægrar spurningar. Er kannski kominn tími fyrir Davíð að sleppa tökunum á bankanum og fara daðra við skáld- gyðjuna á ný? biggi@mbl.is Listamaðurinn Davíð Oddsson AF LISTUM Birgir Örn Steinarsson » Þessa dagana er auð-velt að blindast af stolti „hertogans í svarta kastalanum við Arnarhól“ og sjá ekki sjálfan manninn. Valdagráðugt vélmenni Davíð Oddsson að störfum, með gallsúrum gler- augum Hugleiks í nýjustu myndasögubókinni um Eineygða köttinn Kisa. HLJÓMSVEITIN Bang Gang kem- ur fram á Nokia on Ice tónleikahá- tíðinni, sem haldin verður í annað skipti í ár. Í fyrra fór hátíðin fram á Gauki á Stöng en þar komu fram nokkrar af vinsælustu sveitum landsins. Hjaltalín, Sprengjuhöllin, Bloodgroup og Ultra mega teknó bandið Stefán voru þar meðal jafn- ingja. Í ár breiðir hátíðin örlítið úr sér og fer fram á tveimur stöðum helgina 3.-4. apríl. Stóra svið hennar færist yfir götuna í Listasafn Reykjavíkur en minna svið hennar verður á Reykjavík Rokkbar, nýjum tónleikastað sem opnaður verður á efri hæð Tunglsins (gamla Gaukn- um) í næsta mánuði. Verið er að staðfesta hljómsveitir þessa dagana og mun fyrirtækið Pipar, sem sér um framkvæmdina, tilkynna um fleiri atriði á komandi vikum. Tónleikar Bang Gang í Reykjavík eru sjaldgæfir, en síðast lék sveitin á Nasa í desember eftir langa tón- leikaferð um meginland Evrópu. Þar hituðu Barði Jóhannsson og félagar m.a. upp fyrir frönsku stórsveitina Air. Bang Gang Spilar á tónlistarhátíð- inni Nokia on Ice sem haldin er í annað sinn í ár. Bang Gang í Listasafn- inu í apríl FYRSTA ÁSTIN, SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ OG ALLT ÞAR Á MILLI. ACADEMY AWARD® WINNER DUSTIN HOFFMAN EMMA THOMPSON ACADEMY AWARD® WINNER last chance HARVEY LIONS KLÚBBURINN EIR REYKJAVÍK JOHN LINDSAY EHF • ÓLAFUR ÞORSTEINSSON EHF • BERGVÍK EHF • NESSKIP • DÚKARINN ÓLI MÁR • RAFSTJÓRN SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING Í kvöld, miðvikudaginn 18.febrúar kl.20.00 í Laugarásbíói ALLUR ÁGÓÐI SÝNINGARINNAR RENNUR TIL LÍKNARMÁLA ÞÖKKUM STUÐNINGINN VÆNTANLEG Í MARS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.