Morgunblaðið - 22.03.2009, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.03.2009, Blaðsíða 39
á eftirminnilegan hátt og glymur manni enn í eyrum. Illmenni eða góðmenni, hlutverkin skiptu ekki máli, hann afgreiddi þau öll af með- fæddum skörungsskap. Engin ódýr brögð, hann þurfti ekki á þeim að halda þessi vörpulegi listamaður. Með sitt hrífandi bros eða morð- glampa í augum fyllti hann út í rammann og kafsigldi oftar en ekki mótleikarana, a.m.k. þá sem voru af sama kyni. Kirk Douglas var skírður Issur Danielovitch Demsky og er af rúss- neskum gyðingaættum. Sem fyrr segir var fjölskyldan bláfátæk, fað- irinn vann fyrir heimilinu með því að safna tuskum og öðru ónýti, eins og The Ragman’s Son, nafnið á ævi- sögu Kirks, bendir til. Hún kom út fyrir hálfri öld og varð metsölubók. Ungi Issur reyndist bæði frábær námsmaður og liðtækur fjölbragða- glímukappi og vann fyrir sér með íþróttinni á háskólaárunum. Þaðan lá leiðin í American Academy of Dramatic Arts, sonur tuskusalans hafði fundið köllun sína í leikhúsinu. Ein skólasystir hans var Laureen Bacall, sem átti eftir að reynast Kirk haukur í horni við að komast inn fyrir múra Hollywood. Önnur bekkjarsystir hans var Diana Dill, sem átti eftir að verða eiginkona hans og fæða honum soninn Michael árið 1944, en þau skildu áratug síð- ar. Að námi loknu var Kirk að byrja að skapa sér nafn á sviði þegar Bandaríkin drógust inn í síðari heimsstyrjöldina og hann var kvaddur í herinn. Kirk var leystur undan herskyldu eftir að hann slas- aðist á vígstöðvunum árið 1943 og var byrjaður að fá hlutverk á Broad- way þegar vinkona hans, Bacall, kynnti hann fyrir framleiðandanum Hal Wallis. Framhaldið er skráð í kvikmyndasöguna, Wallis treysti nýliðanum fyrir einu aðalhlutverk- anna í rökkurmyndinni The Strange Love of Martha Ivers (́46), Kirk fékk fína dóma, það sópaði að hon- um og nú varð ekki til baka snúið. Beint á toppinn Það liðu aðeins þrjú ár þangað til nafn Kirks var á hvers manns vörum fyrir magnaða frammistöðu í hlut- verki hnefaleikara í Champion, og fyrsta Óskarsverðlaunatilnefningin var í höfn. Myndin er ein sú besta um þessa grimmu íþrótt og ekki síð- ur baktjaldamakkið og spillinguna sem er jafnan skammt undan. The Bad and the Beautiful (́52), eftir Vincente Minelli, er ein af skraut- fjöðrum leikarans og leikstjórans. Kirk finnur sig mætavel í hlutverki kvikmyndaframleiðanda sem notar alla sem næst honum standa til að olnboga sig upp metorðastigann. Þeir segja jafnframt söguna. Árið 1958 gerði hann eðalvestr- ann A Man Without a Star undir handleiðslu Kings Vidors. Þar leikur hann ráðsmann sem elskar ósnortna víðáttu villta vestursins og tekur til sinna ráða þegar nýir landnemar fara að setja upp girðingar í paradís. Myndin vakti mann til umhugsunar um umhverfisvernd, þó það skýrðist ekki fyrr en mörgum árum síðar. A Man Without a Star er í miklu uppá- haldi á þessum bæ, líkt og Lonely are the Brave (62), tímamótamynd um miðaldra kúreka sem lætur eins og vestrið standi í stað þó komið sé fram á 7. áratuginn. Hann hleypir hestinum sínum á malbikaðri hrað- brautinni og gerir sér sjálfsagt manna best grein fyrir að hann er tímaskekkja; tími forngripa á borð við hann er löngu liðinn. Hann reyn- ir að bjarga vinkonu sinni úr fang- elsi sem reynist feigðarflan. Frumherji í Hollywood Kirk var með fyrstu mönnum (ásamt Jimmy Stewart) til að setja fram háar kaupkröfur og eign- arhlutdeild í framleiðslu kvik- myndaveranna. Með því að setja upp sitt eigið framleiðslufyrirtæki, Bryna (heitir í höfuðið á móður hans), gat leikarinn/framleiðandinn fengið ákveðna sneið af kökunni. Framsýni Kirks gerði hann stórauð- ugan, ekki síst á Spartacus (́60), einni fyrstu mynd Bryna, sem færði honum og leikstjóranum, Stanley Kubrick, aukna frægð og frama og gnótt fjár. Þeir Kubrick höfðu nokkrum árum áður lokið við stríðs- ádeiluna Paths of Glory með minn- isstæðum árangri. Það er ekki hægt að renna yfir feril Kirks án þess að nefna Burt Lancaster, aðra kempu með ekki ólík persónueinkenni. Þeir fé- lagarnir unnu saman að einum sjö myndum, þ.á m., The Gunfight at the OK Corral. Lancaster fór með hlutverk Wyatts Earps, fógeta í Tombstone, en Kirk lék vin hans, Doc Holiday í þessum snilldarvestra Johns Sturges. Hér hefur aðeins verið stiklað á nokkrum eftirlætismyndum á ferli leikarans, sem margir minnast gjörla úr The Hereos of Telemark (́65), sem naut feikilegra vinsælda hérlendis. Af öðrum frægum verk- um má nefna Seven Days in May (́64), þar sem mótleikari hans var Lancaster; A Gunfight (́71), sem var ein af sárafáum myndum Johnny Cash; Posse (́75), óvenjulegur vestri þar sem hann leikstýrði sjálfum sér, og The Fury (́78), ein af gæðamynd- um Brians De Palma. Síðustu stór- myndir Kirks Douglas komu á önd- verðum 9. áratugnum, framtíðartryllirinn The Final Co- untdown (́80), og hin ástralska The Man From Snowy River, sem er í hópi hans bestu. Kirk hlotnaðist margvíslegur heiður á viðburðaríkri og blómlegri starfsævi, m.a. þrjár Óskars- verðlaunatilnefningar og Heiðurs- Óskar árið 1996 fyrir hálfa öld sem leiðandi afl í kvikmyndaheiminum. an … Harðjaxl Douglas sló fyrst í gegn í kvikmyndinni Champion árið 1949. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARS 2009 FERMINGARDAGURINN MINN Gestabók - Myndir - Skeyti VINNUSTOFA SÍBS • Hátúni 10c • SÍMI 5628500 • WWW.MULALUNDUR.IS FÆST Í ÖLLUM HELSTU BÓKAVERSLUNUM LANDSINS Gesta bók, mynd a- og skeyta safn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.