Morgunblaðið - 22.03.2009, Side 58
58 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARS 2009
Smækkuð útgáfa sveitarinnar var eins oggefur að skilja einfaldari í rekstri. Sveitin
er keyrð héðan en er með samstarfsaðila úti
um allan heim. Með tímanum áttu hlutirnir
eftir að þróast þannig að Biggi Veira var
að mestu í tónlistinni á meðan þúsund-
þjalasmiðurinn President Bongo tók sér
forsetavald og heldur hann listavel utan um
alla þá þætti sem að sveitinni koma og keyrir
hann starfsemina úr einum öflugum Makka.
„Maður vinnur fjórtán tíma á dag. Er það
ekki bara það sem allir gera hvort eð er?“ lét
forsetinn hafa eftir í sér í viðtali við blað þetta
í hittífyrra.
V innslutími Forever var æði langur. Í viðtali við Morgunblaðiðí mars 2007 hafði Biggi Veira þetta um málið að segja: „Platan
var í raun tilbúin þarsíðasta sumar. En samt ekki alveg. Mér fannst
hún ekki vera nægi-
lega stórt skref frá
Attention. Ég vildi
fara eitthvað aðeins
lengra, aðeins lengra
í einhverja úrkynjun
og minnka Sprite-
gleðina þótt hún sé
þarna líka í bland.
Þannig að ég bætti
hinu og þessu við.“
Væntanleg plata GusGusvar tekin upp á Flat-
eyri af Bongo, Veirunni og
Daníel Ágústi og er hún
ekki nema fimm laga - en
56 mínútna löng. Daníel
syngur í fjórum lögum
en fönkaði Finninn Jimi
Tenor leggur til rödd í einu lagi sem er ábreiða yfir smíð eftir
hann. Forsetabréf vegna skífunnar, útgefið á upptökutíma, er
svohljóðandi: „Það er þessi átt sem við erum að fara í, svona
pínu meira „dub“, þannig að það má kannski segja að hún verði
aðeins rólegri. En það er ekki búið að taka hana upp þannig að
við vitum ekki hvað gerist fyrr en „the fat lady sings“.“
5
Kveikjan að GusGus var stuttmyndin Nautn. Hugmyndina áttu þeir StefánÁrni Þorgeirsson og Sigurður Kjartansson en Baldur Stefánsson var
fenginn til að sjá um fjárhagshliðina. Stephan Stephensen, nú President
Bongo, var þá tökumaður! Leikarar skyldu vera Magnús Jónsson, Daníel Ágúst
Haraldsson, Emilíana Torrini og
Hafdís Huld og enduðu þau svo öll
sem tón- og söngskaffarar á fyrstu
plötunni. Teknósveitinni T-World,
skipuð Bigga Veiru og Magga
Legó, var þá einnig kippt um borð.
Hópurinn kom fram sem heild og
allir áttu jafna stöðu, hvort sem þeir
sáu um myndræna,tónræna eða
bókhaldslega þætti.
GusGus flokkurinn þóttisvalari en allt sem svalt
var og í honum kristallaðist
hugmyndaheimur, útlit og
eigindir þess menningarkima
sem kenndur er við 101 Reykja-
vík, stundum Kaffibarinn.
Ungir, fjölhæfir, metnaðargjarnir
og skarpt þenkjandi listamenn og lífskúnstnerar með puttann á
púlsinum, vel tengdir út í lönd og með sans jafnt fyrir listrænum
þáttum sem peningalegum. Áhlaup flokksins til útlanda var enda
tilkomumikið og erlenda popppressan var í miklu stuði og lapti allt
upp sem frá honum kom. Á tímabili leit út fyrir að GusGus myndi í
alvörunni sigra heiminn, slík var ákefðin og einbeitnin.
F jöllistahópurinn sem slíkur var allur en GusGus merkinu var hinsvegar ekki lagt. Ástæðan er m.a. sú að þetta ár kom platan GusGus
vs T-world út, og innihélt hún gamalt efni með T-World frá árunum ‘93
til ‘95, tekið upp á gamla Macintosh-tölvu. Plötunni var afar vel tekið af
gagnrýnendum og
segja má að útgáfan
hafi haft hreinsandi
áhrif fyrir þá sem eftir
stóðu og ákveðið var
að halda áfram að búa
til tónlist. Söngkonan
Urður, Earth, var ráðin
inn og nýtt skeið í sögu
sveitarinnar var hafið.
3
Gr
af
ík
:M
or
gu
nb
la
ði
ð/
El
ín
Es
th
er
Gengisvísitala
GusGus
Goðsagnir
Ofurstjörnur
Stjörnur
Frægir
Þekktir
Efnilegir
Óþekktir
1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
2
6
1
4
1.200
eintök
*ATH: Sölutölur miðast einungis við geisladiska. Vínyll og stafræn sala eru ekki inni í tölunum. Þá er ólíku saman að
jafna; fjöllistahópnum GusGus og seinni tíma teknósveitinni GusGus og skyldi rýna í sölutölur með það í huga.
11.000
eintök
80.000
eintök
30.000
eintök
220.000
eintök
160.000
eintök
1998: Tónleika-
ferðalag sveitar-
innar stendur
fram á vorið.
Endurhljóðblönd-
unarverkefni, m.a.
fyrir Depeche
Mode, rata inn á
borð og drög eru
lögð að næstu
plötu.
1
1995: Hópur fólks með ólíkar
tengingar inn í lista- og menn-
ingarlíf Reykjavíkur kemur
saman til að búa til kvikmynd.
Fílingurinn við þá vinnu er það
góður að ákveðið er að henda í
plötu einnig. „Fjöllistahópurinn“
GusGus er í heiminn borinn.
1996: GusGus
hitar upp fyrir
Prodigy í
Laugardalshöll
í mars. Um
sumarið gerir
sveitin samning
við bresku
útgáfuna 4AD og
smáskífan „Poly-
esterday“ kemur
svo út í október.
Mikill hugur er í
sveitinni sem og
forráðamönnum
4AD sem ætla
sér alla leið með
þetta nýuppgötv-
aða íslenska
undur.
1997: Breiðskífan Poly-
distortion, uppfærð útgáfa
frumburðarins, kemur út á
alþjóðamarkaði í apríl. Sveitin
fer í tónleikaferð um veröld
víða í kjölfarið og sannkallað
GusGus æði grípur um sig
í popppressunni. Eitursvalar
myndir af hópnum birtast í
fjölda blaða sem lofsyngja
flokkinn og hið „séríslenska
hugarfar“ út í hið óendanlega.
2
2001: President Bongo og Urður byrja að
vinna lög fyrir hina „nýju“ GusGus; sem er
til muna berstrípaðri og klúbbavænni en
flokkurinn fríði og fjölmenni sem starfaði
undir þeim merkjum í upphafi. Biggi Veira
kemur fljótlega að þeirri vinnu og Maggi
Legó líka að einhverju marki.
1999: GusGus kynnir efni
af næstu breiðskífu, This is
Normal, hér á landi í febrúar.
Flugskýli 4 á Reykja-
víkurflugvelli verður fyrir
valinu en einnig leika grindverk
og sveit að nafni Sigur Rós.
Platan kemur út í apríl og fær
misjafnar viðtökur. Brestir eru
komnir í hópinn og söngkonan
Hafdís Huld er rekin í maí.
Sveitin kemur fram á fyrstu
Iceland Airwaves-hátíðinni um
haustið.
2000: Verulega er farið að rakna
úr sveitinni. Magnús Jónsson
söngvari hættir og sömuleiðis
kvikmyndaarmur sveitarinnar, þeir
Stefán Árni Þorgeirsson og Sig-
urður Kjartansson sem reka nú
farsælt framleiðslufyrirtæki á sviði
myndbanda- og auglýsingagerðar
undir nafninu Arni & Kinski. Í raun
hætta allir nema þeir Stephan
Stephensen (President Bongo),
Magnús Guðmundsson (Maggi
Legó) og Birgir Þórarinsson (Biggi
Veira). Árþúsundayfirhalningin
er þetta kallað af nústarfandi
GusGusliðum.
2002: Attention kemur út um
haustið. Tvær smáskífur eru
teknar af plötunni, „Dance You
Down“ og „Desire“. Einstakir
meðlimir þeytast um allan heim
og plötusnúðast á meðan þessi
„handhægari“ útgáfa sveitar-
innar tekur að festa sig nokkuð
rækilega í sessi í harðsnúnum
heimi teknósins.
2003: Sveitin túrar víða í
kjölfar plötunnar og smáskífa
með laginu „David“ slær í
gegn í teknókreðsum. Vinna
við næstu plötu, Forever, hefst
á þessu ári. Sérstakur „bland-
diskur“, tekinn upp á hinum
(nú) goðsagnakennda Sirkus,
kemur út í ágúst.
2004: Annríkið heldur áfram
þó að lítið fari fyrir sveitinni
hér heima. Plötusnúðagigg
og tónleikar erlendis eru þó
reglubundnir viðburðir árið
um kring.
2007: Fimmta breiðskífa
GusGus, Forever, kemur út í
upphafi árs. Maggi Legó hefur
á þessum tímapunkti sagt
skilið við sveitina.
2008: Hinn sívinnandi
President Bongo setur á
stofn viðburðafyrirtækið Jón
Jónsson ehf. ásamt tveimur
öðrum og stendur að ýmiss
konar klúbb- og skemmti-
kvöldum. Vinna við nýja plötu
hefst í hljóðverinu Tankinum
á Flateyri. Þær breytingar hafa
orðið á högum sveitarinnar að
söngkonan Urður er gengin úr
sveitinni en Daníel Ágúst, sem
tók þátt í upphaflegri yfirreið
sveitarinnar, er genginn til liðs
við sína gömlu félaga.
2009: Næsta plata GusGus,
sem nefnist 24/7, kemur út
í júlí undir hinu virta merki
Kompakt, sem á varnarþing
í Köln. Sveitin kynnti plötuna
fyrir Íslendingum á NASA nú á
föstudaginn.
4
3 5
6
GusGus hóf störf sem fjölsnærður fjöllistahópur, undir það búinn að taka yfir heiminn en þróaðist síðar
yfir í taktfasta teknósveit sem svífur nú af mikilli list með vængi þanda um alþjóðlegan heim dans- og
raftónlistar. Bakland sveitarinnar er fyrst og fremst erlendis en sveitin og einstakir meðlimir þeytast
heimshorna á milli til að spila á tónleikum eða þeyta skífum. Fyrir stuttu slóst Daníel Ágúst í hóp með
þeim President Bongo og Bigga Veiru og er afraksturinn af þeirri vinnu væntanlegur í júlí.