Morgunblaðið - 10.10.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin
Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
VERÐI töf á því að efnahagsáætlun
Íslands verði samþykkt af Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum má reikna með
því að það hafi víðtæk samtengd
áhrif á framgang efnahagsmála hér
á landi. Þetta kemur fram í grein-
argerð um afleiðingar tafa á endur-
skoðun efnahagsáætlunar sem
Seðlabankinn vann að beiðni Jó-
hönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra.
Í greinargerðinni segir að augljós-
ustu áhrif tafa yrðu þau að „tefja
fyrir afnámi gjaldeyrishafta. Áform
eru um að taka fyrsta skrefið til af-
náms hafta hinn 1. nóvember.“ Þá er
stefnt að afléttingu hafta á fjár-
magnshreyfingum sem fela í sér
gjaldeyrisinnstreymi.
Í greinargerðinni, sem Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri og Arn-
ór Sighvatsson aðstoðarseðla-
bankastjóri unnu, kemur fram að
mikilvægt sé að fyrsta skrefið í af-
námi gjaldeyrishaftanna takist vel
og tiltrú skapist á krónuna.
Í greinargerðinni er það einnig
nefnt að náist ekki sátt í Icesave-
deilunni við Breta og Hollendinga,
og endurskoðun efnahagsáætlunar-
innar tefjist þess vegna, sé hætta á
því að lánshæfismat Íslands verði
lækkað. Verði lánshæfið lækkað nið-
ur í fjárfestingaflokk „kunna sumir
stofnanafjárfestar að vera tilneyddir
að selja eignir sínar um leið og færi
gefst, vegna þess að þeim er ekki
heimilt að fjárfesta í svo lágt metn-
um eignum“ eins og orðrétt segir í
greinargerðinni.
Í greinargerð efnahags- og við-
skiptaráðuneytisins, sem Jóhanna
óskaði einnig eftir, kemur fram að
tiltrú á íslenskt efnahagslíf geti
minnkað. Þá sé veruleg hætta á
þrýstingi á krónuna til veikingar
vegna minni trúverðugleika.
Einnig er sérstaklega tiltekið að
öflugur gjaldeyrisvaraforði, sem
fjármagnaður yrði m.a. með lánum
frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, sé
„frumforsenda“ þess að gjaldeyr-
ishöftin verði afnumin.
Áhrif tafa sögð alvarleg
Seðlabankinn segir töfina á því að efnahagsáætlun Íslands verði samþykkt af
AGS geta lækkað lánshæfismat Öflugur gjaldeyrisvaraforði „frumforsenda“
» Svigrúm til vaxtalækkana getur horfið
» Töf getur orsakað minni tiltrú og veikari krónu
» Draga þarf úr óvissu og styðja við endurreisn
» Lánshæfismat ríkisins gæti lækkað
Tafir á framgangi efnahagsáætl-
unar Íslands hjá AGS geta haft
alvarlegar afleiðingar samkvæmt
greinargerðum. Ef ekki næst sátt
um Icesave getur lánshæfismat
ríkisins lækkað.
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjármálaráðherra
þurfti að hafa sig allan við svo sterkur vindurinn
þeytti honum ekki um koll þegar hann gekk út úr
stjórnarráðinu í gær, einu sinni sem oftar.
Minnstu munaði að Steingrímur missti skjöl úr
höndum sínum en blessunarlega tókst honum að
halda þeim á sínum stað. Annars hefðu þau fokið
út í veður og vind, bókstaflega. Það gustar líka
um stjórnarráðið þessa dagana.
FAUK ÚT ÚR STJÓRNARRÁÐINU
Morgunblaðið/Kristinn
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi
sínum á fimmtudag að veita fjármálastjóra bæjarins
heimild til að veðsetja eignirnar Strandgötu 31, Strand-
götu 53 og Sólvangsveg 2 vegna skuldbreytingar á lánum
bæjarins hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR).
Um er að ræða íþróttahúsið við Strandgötu og húsið sem
hýsir hjúkrunarheimilið Sólvang.
Skuldbreytingin felst í að breyta skammtímaláni upp á
600 milljónir í langtímalán á lægri vöxtum.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir
þetta gert að kröfu lífeyrissjóðsins. „LSR óskaði eftir
þessu og ég hygg að þetta sé gert með þessum hætti,
meðal annars vegna krafna frá Fjármálaeftirlitinu.“
Að hámarki getur veðsetningarhlutfallið verið 35% líkt
og kveðið er á um í lögum um lífeyrissjóði þegar um svo-
nefndar sértækar eignir er að ræða. Það skýrir hvers
vegna fleiri en ein fasteign eru lagðar að veði.
Afkoma rekstrarreiknings Hafnarfjarðarbæjar var
neikvæð um 138 milljónir króna í samstæðu en um liðlega
347 milljónir þegar horft er til A-hluta efnahagsreikn-
ings. Aukin útgjöld hafa verið til félagsmála, framfærslu
og húsaleigubóta sem hafa hækkað um nærri 100% milli
ára. Það er töluvert umfram það sem áætlað hafði verið.
magnush@mbl.is
Íþróttahús og hjúkrunar-
heimili veðsett vegna lána
Morgunblaðið/RAX
Í Hafnarfirði Bærinn hefur þurft að greiða um 6 millj-
arða til baka vegna skila á lóðum.
Lánum Hafnarfjarðarbæjar
skuldbreytt í langtímalán
„YFIRSKRIFT
fundarins var
mjög alvarlegar
afleiðingar fjár-
lagafrumvarps-
ins. Fulltrúar
Norðuráls, El-
kem á Íslandi og
Sementsverk-
smiðjunnar út-
skýrðu afleiðing-
arnar ef frumvarpið nær fram að
ganga. Meðal þeirra var Ragnar
Guðmundsson, forstjóri Norðuráls,
sem sagði orku- og auðlindaskattinn
þýða 5,5 milljarða í auknar álögur á
fyrirtækið,“ segir Gísli S. Einarsson,
bæjarstjóri á Akranesi, um hitafund
sveitarstjórnarmanna á Akranesi og
úr Hvalfjarðarsveit í Tónbergi í gær.
Setur Helguvík á ís
„Þetta ógnar undirstöðu sveitar-
félaganna á Vesturlandi,“ segir Gísli
og bendir á að skattur á Norðurál
muni stöðva uppbyggingu álvers í
Helguvík. Guðbjartur Hannesson,
formaður fjárlaganefndar, sat fund-
inn ásamt tveimur þingmönnum.
Mun setja
atvinnu
í uppnám
Gísli S. Einarsson
Hiti í Skagamönnum
vegna orkuskatta
STARFSMENN Fjármálaeftirlits-
ins (FME) fóru í höfuðstöðvar Ex-
ista um miðjan dag í gær til þess að
nálgast gögn í tengslum við rann-
sókn embættisins sem tengist félag-
inu. Ekki fékkst uppgefið hjá FME í
gær hvaða þættir það væru ná-
kvæmlega sem gögnin tengdust.
Exista var stærsti einstaki eig-
andi Kaupþings þegar bankinn féll
9. október í fyrra. Félagið átti þá
fjórðungshlut í bankanum. Stærstu
íslensku fyrirtækin sem félagið á í
dag eru VÍS og Skipti, móðurfélag
Símans.
Forsvarsmenn Exista, einkum
bræðurnir Lýður og Ágúst Guð-
mundssynir, hafa staðið í deilum við
kröfuhafa félagsins vegna endur-
skipulagningar þess. Félaginu hefur
verið haldið á lífi af kröfuhöfum frá
því í hruninu en óvíst er hver afdrif
þess verða. magnush@mbl.is
FME náði í
gögn Exista