Morgunblaðið - 10.10.2009, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009
og persóna hans, flækingurinn, er
ekki bara fyndinn heldur fær mann
einnig til að fella tár. Flækingurinn
brosir með öðru auganu og grætur
með hinu. Þetta túlkar Chaplin svo
snilldarlega vel að það er dauður
maður sem hrífst ekki með.“
Hjartað á borðið
Víkjum að leikhúsgagnrýn-
endum, hvað fer í gegnum huga
þinn þegar minnst er á þá?
„Ég hef fengið alls konar krítík,
bæði góða og slæma. Sumt hef ég ef-
laust átt skilið og annað ekki. Ég
skal alveg viðurkenna að þegar ég
les leikhúsgagnrýni um sýningu,
sem ég hef leikið í, leita ég fyrst að
nafninu mínu og skoða hvað er sagt
um mig. Síðan les ég greinina. Ég er
alveg sannfærður um að allir aðrir
leikarar gera þetta líka þótt sumir
þeirra viðurkenni það alveg örugg-
lega ekki.
Mér hefur fundist í gegnum tíðina
að það sé ósanngjarnt og beinlínis
rangt þegar leikhúsgagnrýnendur
gefa í skyn að í leikhúsinu séu menn
ekki að leggja sig fram. Við í leik-
húsinu erum alltaf að gera okkar
allra besta og leggjum sannarlega
hjarta okkar í vinnuna. Við veljum
ekki alltaf rétta leikverkið og það er
ekki alltaf rétta fólkið í hlutverk-
unum en ég hef aldrei unnið með
leikhúsmanni sem hefur ekki lagt
hjarta sitt á borðið. Það gengur eng-
inn inn á leiksvið nema gefa allt sem
hann á til í sálarkompunni sinni.
Mér finnst gagnrýnendur stundum
ekki átta sig á þessu. Það er ekki
sjálfsagt að ganga inn á svið fyrir
framan 500 manns þó maður sé
þjálfaður í því. Það er mikil ábyrgð
fólgin í því að gera það og maður
reynir að vanda sig eins mikið og
maður getur.“
Þú ert ekki bara leikari, þú hef-
ur líka verið að leikstýra. Finnst
þér það gaman?
„Leikstjórnin er nokkuð sem ég
ætlaði mér aldrei að gera en þróað-
ist í þá átt og hefur átt prýðilega við
mig. Ég er og verð alltaf leikari en
get vel hugsað mér að feta mig
áfram í leikstjórastólnum. Ég hef
ýmislegt fram að færa þar, hef
mikla reynslu sem leikari, sem er
gott veganesti. Ég er með nokkur
gæluverkefni í kollinum sem mig
langar til að leikstýra og verða að
raunveruleika næstu misserum ef
allt gengur eftir. En meira get ég
ekki sagt um þau mál í bili.“
Hvernig leikstjóri ertu, ertu
mildur og leiðbeinandi eða harður
og ákveðinn?
„Ég held að ég sé mildur og leið-
beinandi. En fyrst og fremst vona
ég að ég sé leikara-leikstjóri sem
eys úr þeim brunni sem hann á.“
Lifi lífinu hlæjandi
Þú virkar sem mjög jarðbundinn
maður. Ertu þannig?
„Ég er jarðbundinn í mínu hvers-
dagslífi. En ég þykist ekki vera
jarðbundinn í vinnunni því þar verð
ég að leyfa mér að fljúga mjög hátt,
taka alls konar beygjur og reyna
allt.“
Það er sagt að margir grínistar
hafi sem börn verið feimnir og hlé-
drægir. Hvað með þig?
„Það á reyndar við um mig. Ég er
hlédrægur í eðli mínu, hef alltaf ver-
ið og mun alltaf verða. Þetta háir
mér hins vegar ekki neitt í starfi,
bara hreint ekki. Það er bara þann-
ig. Manneskjur eru svo ólíkar og ég
er þessi rólega týpa. En ég er ekk-
ert feiminn í listinni sjálfri.
Ég er fremur léttlyndur maður
og flestum stundum lifi ég lífinu
hlæjandi og brosandi. Og hef ekki
ástæða til annars því ég fæ að vinna
við það sem mér finnst skemmtileg-
ast. Það eru afskaplega fáir sem
hafa séð mig reiðan. En ég viður-
kenni ekki að ég sé skaplaus. Ég hef
það orð á mér að vera ýtinn og af-
spyrnu þrjóskur, allt að því þver. Á
þann hátt fæ ég mínu framgengt en
ekki með því að öskra og láta illum
látum.“
Mér er sagt að þú sért mikill fjöl-
skyldumaður.
„Mér finnst ég vera það en því
verður náttúrlega mótmælt á heim-
ilinu af því ég er aldrei heima. Ég á
þrjú börn og bestu stundir mínar
eru með fjölskyldunni. Ég á tvö
barnabörn, þriggja ára strák og
eina stelpu, gullmola, sem er viku-
gömul. Svo á ég von á þriðja barna-
barninu í janúar. Þá verð ég orðinn
býsna ríkur. Að vera afi er lang-
besta og skemmtilegasta hlutverk
sem ég hef leikið um dagana.
Reyndar þarf ég ekkert að leika það
því mér finnst ég vera fæddur afi.“
Eftir hvaða lífsskoðunum lifirðu,
ertu til dæmis trúaður?
„Þetta er stór spurning og það
eru til mörg og flókin svör við henni.
Ég hef velt trúmálum talsvert fyrir
mér eins og ég held að flestir geri
þegar árin færast yfir. Já, ég er trú-
aður maður og hef lesið talsvert um
trúmál. Ég sæki kirkju og mér líður
vel í kirkjunni minni. Ég trúi á þær
leiðbeiningar sem eru settar fram í
kristninni. Þær eru umferðarregl-
urnar okkar. Fallegar reglur sem
við eigum að fara eftir. Það tekst
ekki alltaf en breytir ekki því að ég
trúi á þær.“
inni
» Við Íslendingarerum bara 320.000
og það ætti að vera til-
tölulega auðvelt fyrir
okkur að standa saman
sem einn maður og
hreinsa borðið svo hægt
sé að byrja upp á nýtt.
Ég veit að við getum
það. Meinið er að þjóð-
ina vantar sterkan og
drífandi leiðtoga. Hann
er ekki í brúnni. Þetta
segi ég með fullri virð-
ingu fyrir því fólki sem
er þar núna.
Morgunblaðið/Kristinn
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Meðal efnis verður:
Vetrarklæðnaður á börn og fullorðna.
Góðir skór fyrir veturinn.
Húfur, vettlingar, treflar, lopapeysur og fl.
Snyrtivörur til að fyrirbyggja þurra húð.
Flensuundirbúningur, lýsi, vítamín og fl.
Ferðalög erlendis.
Vetrarferðir innanlands.
Bækur á köldum vetrardögum.
Námskeið og tómstundir í vetur.
Heitir pottar og sundlaugar góð afslöppun
Bíllinn tekinn í gegn.
Leikhús, tónleikar og ýmisleg afþreying.
Útilýsingar – góð ljós í myrkrinu.
Þjófavörn fyrir heimili og sumarbústaði.
Mataruppskriftir.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16
mánudaginn 19. október.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað
Vertu viðbúinn vetrinum
föstudaginn 23. október.
Vertu viðbúinn
vetrinum