Morgunblaðið - 10.10.2009, Side 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009
Kristinn
Skotið með linsunni Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi iðnaðarráðherra var gríðarlega einbeittur þar sem hann mundaði myndavélina á umhverfisþinginu í gær.
London | Kreppan í fjármálakerfum
um allan heim endurspeglar allsherj-
arbilun í regluverkinu og fyrir vikið
verða kröfur um meira og betra eft-
irlit háværar. Ákall um slíkt mátti
heyra að nýju á G-20 fundinum í
Pittsburgh og Evrópusambandið
brást nýlega við með því að greina
frá áætlun um nýja eftirlitsstofnun,
sem hefði Evrópu undir.
Í hnattvæddu fjármálakerfi er
lykilatriði að ná réttu jafnvægi á
milli heima- og gistiríkis og þjóðríkisins og
hins yfirþjóðlega. Lítum á Evrópu. Evr-
ópskar fjármálastofnanir og markaðir ná yf-
ir landamæri í slíkum mæli að það á sér ekki
fordæmi, en yfirvöld í hverju ríki fyrir sig
ráða samt enn för í reglusetningu. Með því
að taka á evrópska vandamálinu gæti fundist
lausn á hnattræna vandanum.
Núverandi líkan Evrópusambandsins,
sem kennt er við „eitt vegabréf“ og byggist á
því að heimalandið setji fjármálastofnunum
reglur, hefur brugðist svo hrapallega að það
er vandræðalegt. Hagkerfi Eystrasaltsríkj-
anna eru ef til vill sorglegustu fórnarlömbin,
en skaðinn teygir sig eftir Mið- og Austur-
Evrópu alveg niður á Balkanskaga. Eftir hin
hrikalegu áhrif kreppunnar á hagkerfi
þeirra er ekki hægt að búast við að ríki, sem
hýsa starfsemi dótturfyrirtækja og útibúa
vestrænna banka, sætti sig við óbreytt
ástand.
En líklegt er að hinar nýju evrópsku eftir-
litsstofnanir verði ófullnægjandi. Evrópskt
kerfisáhætturáð (The European Systemic
Risk Council, ESCR) á aðeins að fylgjast
með. Nýju eftirlitsstofnanirnar þrjár hjá
ESB sem eiga að fylgjast með bönkum,
tryggingastarfsemi og verðbréfamörkuðum
eiga að samræma störf eftirlitsmanna, sem
fyrir eru í hverju landi fyrir sig. Þau munu
ekki hafa neitt vald til að fylgja hlutum eftir
og stjórnir einstakra ríkja eru þegar farnar
að leita leiða til að grafa undan valdi þeirra
og (fjárhagslegri) getu. Tímabært er að
hugsa um varaáætlun – hvað gerist ef þessar
umbætur skila ekki því sem þarf til að
vernda löndin, sem á mæðir. Þau lönd, sem
nú skorast undan – innan Evrópu er það
einkum Bretland – þurfa að átta sig á að ná-
ist ekki lausn, sem tekur til alls ESB, er hinn
kosturinn róttæk viðbót á reglum í gest-
gjafaríkjum. Þetta er enn líklegra í ríkjum,
sem ekki búa við sömu höft gegn leiðum
bundnum við einstök ríki og aðildarríki ESB
– og ber þar hæst Indland og Kína, sem opn-
uðu ekki landamæri sín fyrir beinni erlendri
fjárfestingu í fjármálageiranum fyrr en ný-
verið.
Í húfi er nokkurra áratuga samruni í fjár-
málum í Evrópu. Ólíkt flestum öðrum hlut-
um heimsins hefur fjármagn í Evrópu flætt
frá ríkum löndum til fátækra – einkum frá
vestri til austurs og suðurs. Í Austur-Evrópu
hefur fjármagn leitað uppi löndin með hrað-
asta hagvöxtinn og fylgt ríkjandi mynstri ný-
markaða.
Almennt hefur samþætting í fjármála-
heiminum átt stóran þátt í hagvexti í Austur-
Evrópu. Iðngreinar, sem eiga mikið undir
fjármögnun að utan, uxu hraðar í löndum,
þar sem mikið fjármagn streymir inn, en í
löndum með lítið innstreymi peninga. En hin
hraða aukning lánsfjár fyrir tilstilli erlendra
milliliða eftir ýmsum leiðum (þar á meðal
bein lán og lán frá dótturfyrirtækjum banka
og fjármögnunarstofnana) hefur blásið lofti í
eignabólur og aukið gengisáhættu. Vegna
skorts á skilvirku regluverki gerir samruni í
fjármálum að verkum að þetta svæði stendur
berskjaldað þegar farvegir lánsfjár þorna
skyndilega upp.
Þeir kostir, sem nú eru á borðinu, hreyfa
vart við grundvallarreglunni um að uppruna-
ríkið setji reglurnar.
Þó er áberandi að þetta líkan hefur brugð-
ist í því að vernda gistiríki gegn kerfisbund-
inni áhættu vegna þess innsteymi fjármagns
varð of mikið og fór úr böndunum.
Það skapar vandamál að veita gestgjafa-
ríkjum aukið vald yfir móðurfyrirtækjum,
sem eru utan þeirra lögsögu. Flest gistiríki
hafa takmarkaða burði til að átta sig á flók-
inni uppbyggingu víðfeðmra fjármálafyrir-
tækja og máttur þeirra til að fylgja eftir
reglum og eftirliti er takmarkaður.
Tillaga ESB um „ráð eftirlitsmanna“ leys-
ir málið aðeins að hluta, jafnvel að viðbættri
evrópskri „kerfisáhættunefnd“, vegna þess
að hún staðfestir æðri sess regluvaldsins í
upprunalandinu og tekur ekki á möguleik-
anum á hagsmunaárekstri milli reglna og
eftirlits í upprunalandinu og gestgjafaland-
inu. Gestgjafaríkin gætu verndað hagsmuni
sína með því að grípa til róttækrar lausnar,
sem fæli í sér einhliða fjármagnshöft og ann-
að til að vernda heimamarkaðinn. Auðvitað
gæti þetta hæglega gert að engu allt það,
sem unnist hefur í sambandi við samruna í
fjármálum.
Við leggjum til annan kost, sameiginlega
staðla um „lögsögu byggða á áhrifum“. Það
yrði þá þannig að þegar áhrif starfsemi fjár-
málastofnunar eru nægilega mikil ætti land-
ið, sem verður fyrir þeim, að fá að fara með
regluvaldið óháð því hvar stofnunin hefur að-
setur. Slík lögsaga byggð á áhrifum á sér
langa hefð í beitingu laga gegn hringamynd-
un bæði í Bandaríkjunum og Evrópusam-
bandinu. Þá hefðu ríki í hlutverki gestgjafa
leyfi til að setja hömlur á lánsfjáraukningu
burtséð frá því með hvaða hætti fjármála-
stofnun kýs að koma fé á markað og það
myndi styrkja rétt gestgjafaríkisins til að
krefjast upplýsinga frá regluvaldinu í upp-
runalandinu.
Lögsaga byggð á áhrifum gæti vakið
áhyggjur innan Evrópusambandsins um
frjálst flæði fjármagns. Evrópusáttmálinn
viðurkennir hins vegar undantekningar í al-
mennri stefnumótun. Þess utan er í nokkr-
um tilskipunum ESB gengist við hagsmun-
um landa þar sem fjármagnsgjörningar fara
fram (til dæmis í líftryggingasamningum)
með því að veita þeim lögsögu yfir slíkum
viðskiptum.
Besta leiðin til að vernda bankastarfsemi
þvert á landamæri og fjármálalega samþætt-
ingu væri að koma á fót skilvirku regluverki
og eftirliti um allt ESB og betra væri að
stofnunin yrði alþjóðleg og gæti fylgst með
sambandi upprunalanda og gestgjafa. Án
viðunandi framfara í þá átt verður hins vegar
að veita gestgjafaríkjunum meiri vernd. Við
teljum að áhrifanálgun með samkomulagi
um þröskuld myndi draga úr neikvæðum
áhrifum þess að gestgjafaríki hefðu meira
vald í setningu reglna og eftirliti.
Eftir Erik Berglof and
Katharina Pistor
»Með því að taka á evr-
ópska vandamálinu gæti
fundist lausn á hnattræna
vandanum.
Erik Berglöf
Erik Berglöf er aðalhagfræðingur Endur-
reisnar- og þróunarbanka Evrópu. Katharina
Pistor er lagaprófessor við lagaskóla Col-
umbia-háskóla.
© Project Syndicate, 2009.
www.project-syndicate.org
Villan í regluverki fjármála í Evrópu
Katharina Pistor
Á SUMARÞINGI hef ég
ásamt fjölmörgum öðrum
þingmönnum reynt að fá
fram hvaða stefnu rík-
isstjórnin hefur í orku- og at-
vinnumálum. Umhverf-
isráðherra og
iðnaðarráðherra hafa þar tal-
að í kross. Þó hefur komið
fram að mikilvægt sé að
fjölga störfum í landinu.
Grímunni kastað
Grímunni er loks kastað
með ákvörðun iðnaðarráð-
herra um að framlengja ekki
viljayfirlýsingu um álver á
Bakka sem og úrskurði um-
hverfisráðherra að fella úr
gildi ákvörðun Skipulags-
stofnunar um að ekki skuli
fara fram sameiginlegt mat á
umhverfisáhrifum Suðvest-
urlína og öðrum tengdum
framkvæmdum. Allt er gert
til að stöðva það að fleiri álver verði að veruleika hér á
landi. Það er stefna ríkisstjórnarinnar.
Óvissan enn aukin
Það ætti ekki að þurfa að taka það fram, hversu brýn
þörf er á atvinnuuppbyggingu á Íslandi einmitt nú. Er-
lendir fjárfestar hafa sýnt mikinn áhuga á því að koma
að ýmsum verkefnum hér á landi sem tengjast flest
orkufrekum iðnaði. Ákvarðanir ráðherranna tveggja
þýða að langþráðum atvinnutækifærum er í besta falli
frestað en í versta falli kastað á glæ. Enn er aukið á
óvissuna varðandi atvinnutækifæri til framtíðar.
Að byggja upp
Verkefnið sem liggur fyrir er að endurreisa íslenskan
efnahag. Atvinnulífið byggjum við upp með því að
treysta grunnstoðirnar, byggja upp í orkufrekum iðnaði,
nýta auðlindir landsins og skapa eðlileg skilyrði fyrir
rekstur og atvinnulíf. Það er hlutverk stjórnvalda að
skapa þau skilyrði að atvinnulífið geti blómstrað en ekki
að bregða fæti fyrir þau tækifæri sem í augsýn eru.
Í hnotskurn
Í orði skal fjölga störfum, á borði er tækifærum kastað
á glæ. Það er atvinnustefna ríkisstjórnarinnar.
Atvinnustefna
ríkisstjórnarinnar
komin í leitirnar
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
» Í orði skal
fjölga störf-
um, á borði er
tækifærum
kastað á glæ.
Það er atvinnu-
stefna ríkis-
stjórnarinnar.
Eftir Unni Brá
Konráðsdóttur