Morgunblaðið - 10.10.2009, Side 29
Umræðan 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009
UM OG uppúr ár-
unum 1960 voru evr-
ópskar þjóðir að
hrökklast frá nýlend-
um sínum í Afríku og
víðar og synd væri að
segja að herraþjóð-
irnar hafi skilið eftir
sig mikið uppbygging-
arstarf hjá þeim þjóð-
um sem lutu yfirráðum
þeirra. Frumbyggjarn-
ir sátu eftir bláfátækir, ómenntaðir,
smitaðir af farsóttum en án lækn-
ishjálpar og viðskilnaðurinn rétt-
lættur með svipuðum röksemdum og
Danir gáfu Grænlendingum og Ís-
lendingum á sinni tíð: „Hér er ekk-
ert hægt að gera, karlarnir eru fylli-
byttur og konurnar mellur“.
Til þess að vernda nýlendugróð-
ann bundust þjóðirnar samtökum.
Við hæfi þótti að reisa sér minn-
isvarða og sinna líknarmálum. Fyrir
hluta nýlendugróðans varð til Al-
þjóða gjaldeyrissjóðurinn sem virð-
ist vera beitt af sama kærleika og
svipum nýlenduherranna forðum.
Eftir að gömlu nýlenduríkin losn-
uðu undan stjórn herraþjóðanna
horfðu þau mikið til Ísraels eftir fyr-
irmynd og aðstoð og á tímabili átti
Ísrael mörg hundruð sérfræðinga
við störf, sem reyndu að kenna fyrr-
verandi nýlenduríkjum í Afríku og
Asíu að fóta sig sem sjálfstæðar ríki
undir lýðræðismerkjum. Hinir hóf-
samari stjórnendur landanna sáu að
Ísraelsríki blómstraði en báru ekki
tiltrú til sinna fyrrverandi herra-
þjóða. Fjölþætt uppbyggingarstarf
Ísraels, sem byggðist m.a. á vinstri-
sinnaðri verkalýðspólitík, beið þó
lægri hlut fyrir einræðisöflum.
Rússar mokuðu vopnum í valdasjúka
einræðisherra sem voru pólitíkusar
á hinum armi nýfrjálsu ríkjanna og
virtust hafa það eitt markmið að
tryggja völd sín. Harðlínuarabar
nýttu sér upplausnarástandið til að
ná völdum í þessum ríkjum og ísl-
ömsk heimsyfirráðastefna hefur, í
sumum þessara landa, myndað þar
yfirstétt sem virðist sýna hálfu verri
harðstjórn en fyrri ráðsherrar.
Múslímar eru snjallir áróð-
ursmenn. Sem dæmi mætti nefna að
á þessum árum er talið að 80% íbú-
anna á Gasa hafi verið kristin og að
meirihluti íbúanna í öllu Palestínu-
héraði hafi verið kristinn. Nú er talið
að 3% íbúana á Gasa séu kristin og
litlu hærra hlutfall annarstaðar í
Palestínu. Yasser Arafat var að gera
sig gildan upp úr 1960 og beindi
sjónum fréttaheimsins að við-
skiptum sínum við Ísraelsríki og
þeirri stefnu sinni að útrýma gyð-
ingaríkinu. Arafat var klókur og
hann sá að ef hinn þögli meirihluti
kristinna manna kæmist til áhrifa
yrði framtíð Ísraels tryggð með friði
því hinir kristnu menn viðurkenndu
Ísrael og þó gyðingarnir væru tor-
tryggnir í þeirra garð hefði frið-
arviljinn verið gagnkvæmur. Arafat
vissi að stutt var í gyðingahatrið hjá
Evrópuþjóðunum. Honum tókst að
gera Ísrael að ljóta karlinum í heimi
fjölmiðlanna. Og í skjóli þess hóf
hann að ofsækja kristna samlanda
sína. Hinir friðsömu kristnu menn
snerust ekki til varnar með vopnum
og múslíminn Arafat spilaði á „nafn-
kristna“ Evrópubúa og lét þá
styrkja sig fjárhagslega. Styrktarféð
notaði hann m.a. til að ofsækja
kristna samlanda sína. Þeir voru
drepnir eða hraktir úr landi sem
friðinn vildu og þannig er það enn.
Hluti Evrópuþjóða varð þannig bak-
land PLO við að ofsækja kristið fólk
í þessum heimshluta og hafa það á
samviskunni að þar ríkir ófriður enn.
Í þeim ríkjum Afríku og Asíu sem
múslímar eru ráðandi valdsherrar
beita þeir kristna menn og frum-
byggja, hverrar trúar sem þeir eru,
ofbeldi og valdníðslu. Öll Evrópa
horfir á þetta afskiptalaus og sýnir
með því undirlægjuhátt og af-
kristnun í húmanískum „Babel“-
anda þar sem stefnan er að gera
púkana englum jafna.
Þegar íslensk löggjöf
afhenti „litlu strákun-
um“ nærbrók íslenska
hagkerfisins með illa
lyktandi afleiðingum,
var það kærkomið
tækifæri fyrir evr-
ópska apparatið til að
fela eigin ávirðingar og
ná tökum á auðlindum
Íslands. Auðvitað eiga
Englendingar og Hol-
lendingar að greiða
upp sínar „Icesave“-
skuldir við fyrrverandi
nýlendur áður en þeir krefja Íslend-
inga um meintar skuldir við sig. Það
hvorki geta þessar þjóðir né vilja.
Það er löngu ljóst að AGS er notaður
eins og skammbyssa sem beint er að
hnakka viðsemjandans. Það er því
líklegt að það sé álíka gott fyrir Ís-
lendinga að ganga í ESB eins og ef
hagamús leitaði skjóls í greni refs.
Þegar hefðkristnar þjóðir eru sam-
mála um að útvatna kristindóminn
niður á plan annarra trúarbragða
eins og gert er innan ESB undir yf-
irskyni trúfrelsis er fjandinn laus og
þjóðirnar viknar frá þeim Guði sem
gaf Jesú Krist og antikristsandinn
tekin við. Samþjöppun valds veldur
með tímanum úrkynjun sem auð-
veldar einræðisöflum yfirtöku valds
og verður að lokum að fúlum pytti
sem hvorki hefur aðrennsli né frá-
rennsli. ESB girðir sig af með skrif-
ræðisbákni sem ætlað er að forrita
Guð en birtist í líki handrukkara sem
býður „vernd“ sína, saklausu fólki,
fyrir fé.
Á svona tímum þurfa allir Íslend-
ingar að iðrast synda sinna og end-
urnýja samband sitt við Guð í Jesú
Kristi, það er eina girðingin sem
aftrar aðkomu illra afla í einkalíf og
þjóðlíf. Í Biblíunni eru mörg góð ráð,
m.a. „Ver þú ekki meðal þeirra, er
ganga til handsala, meðal þeirra, er
ganga í ábyrgð fyrir skuldum, því
þegar þú ekkert hefur að borga með,
viltu þá láta taka sængina undan
þér?“ ( Ok, 22:26). Ég bið íslenskri
þjóð Guðs friðar.
Bakhlið Evrópu
Eftir Ársæl
Þórðarson »ESB girðir sig af
með skrifræðisbákni
sem ætlað er að forrita
Guð en birtist í líki
handrukkara sem býður
„vernd“ sína, saklausu
fólki, fyrir fé.
Ársæll Þórðarson
Höfundur er húsasmiður.
bmvalla.is