Morgunblaðið - 10.10.2009, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2009
Og undir þessu oki verður
skemmtunin undir, ekki síður en
dýptin. Við gleymum okkar gömlu
og gildu kröfu um að vera
skemmt og látum okkur nægja að
láta vondar bækur, vont sjónvarp
og vondar bíómyndir sjúga lífs-
kraftinn úr okkur, okkur að
áreynslulausu. Afþreyingin er
skrítin kennd og tómleg, orðið
sjálft ber dauðann með sér þótt
við höfum ekki tekið eftir því.
Skemmtun hins vegar hefurmerkilega líka eiginleika og
það sem er ögrandi, það sem fær
mann til að hugsa og finna til, hún
færir manni nýjan lífskraft.
Skemmtun getur vel sett lífið í
samhengi, Jón Kalman nefnir
Indiana Jones sem afþreyingu –
en sá knái fornleifafræðingur er
svo sannarlega skemmtun frekar
en afþreying á góðum degi – og
sú skemmtun minnir okkur á hvað
það er gaman að ferðast, sjá nýja
hluti og grufla í mannkynssög-
unni. Svo ég tali ekki um að berja
á nasistum, þótt tækifærin til þess
séu vissulega af skornum skammti
núorðið.
asgeirhi@mbl.is
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„ÞAÐ var 11. október 1994 sem við
töldum fyrst í,“ segir Guðmundur
Gunnlaugsson, trymbill Sixties, en
sveitin heldur upp á fimmtán ára af-
mæli sitt í kvöld á Players í Kópavogi.
Af tilefninu mun sveitin skrýðast
Bítlajakkafötum þeim sem hún skart-
aði í upphafi ferils síns og til landsins
er kominn upprunalegur bassaleikari
sveitarinnar, Þórarinn Freysson, en
hann er búsettur í Leeds.
28 Bítlalög á efnisskránni
„Við hefjum tónleikana á því setti
sem við vorum með í upphafi, sem-
sagt Bítlalögum út í gegn,“ segir
Guðmundur við blaðamann. Hann
rifjar upp forsögu sveitarinnar, en
meirihluti hennar hafði áður verið í
þungarokkssveitinni Jötunuxar. Þór-
arinn, Tóti, var hins vegar í dauða-
rokkinu.
„Svo sáum við nokkrir myndina
Backbeat, þar sem einblínt er á Ham-
borgarár Bítlanna, og ákváðum að
kýla á slíkt band. Vegna bakgrunns
okkar var þetta talsvert keyrsluband,
við „trukkuðum“ í gegnum hröð og
hressandi Bítlalög eins og enginn
væri morgundagurinn. Og hug-
myndin gekk fullkomlega upp. Við
vorum með 28 Bítlalög á efnis-
skránni!“
Sixties hafði frá fyrsta degi nóg við
að vera, plöturnar áttu eftir að verða
þó nokkuð margar og seldar plötur
hlaupa á mörgum þúsundum.
Guðmundur múrar á daginn og
spilar á kvöldin og er meira að segja
íklæddur múraragallanum þar sem
hann ræðir við blaðamann í Hádeg-
ismóunum – og það í hádeginu.
„Við gáfum síðast út plötu fyrir
þremur árum síðan sem innihélt lög
Jóhanns G. Jóhannssonar. Bandið er
í gír en ég hef svo gaman af þessu að
ég stofnaði band til hliðar – Money –
ásamt fleirum. Þar er viðlíka Bítlat-
rukk í anda samnefnds lags!“
Guðmundur segist ekkert vita
hvort menn séu spenntir fyrir afmæl-
istónleikunum eður ei. „Ég veit bara
að við erum vel heitir – þetta verður
út og suður, þrumustuð!“
Sixties
fagnar
fimmtán
ára afmæli
Í þá gömlu Myndin var tekin þegar platan Ástfangnir kom út (1996).
KARLKYNS aðdáendur Marge
Simpson hljóta að fagna því að hún
mun fletta sig klæðum á síðum
Playboy í tilefni af 20 ára afmæli
Simpsons-þáttanna. Því má búast
við skær-
gulu holdi
á síðum
blaðsins.
Tímaritið
kemur út
16. októ-
ber og
mun blá-
hærða
gyðjan
prýða
forsíð-
una,
hvorki
meira né minna, og auk þess þrjár
blaðsíður í ritinu. Þó virðist ekki
vera um dæmigerða Playboy-
myndasyrpu að ræða því sagt er að
nektin verði gefin í skyn. Nýr for-
stjóri Playboy, Scott Flanders, seg-
ist með þessu reyna að ná til yngri
lesenda. Glöggir lesendur hafa sjálf-
sagt tengt eftirnafn hans við ástsæla
persónu úr þáttunum, Ned Fland-
ers. Playboy-Flanders kallar þó ekki
allt ömmu sína, eins og sjá má.
Marge í
Playboy
HHHH
- T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- ROGER EBERT
HHHH
– H.S. MBL
HHHH
RÁS 2-HGG
HHHH
Ó.H.T. RÁS 2
Í REYKJAVÍK
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
BÍÓ GESTIR TJÁ SIG Á FACEBOOK
- Æðisleg!
- Algjört meistarverk!!
- Myndin er geeðveik! :D
- sá myndina þína í dag þú er idolið mitt sveppi
- Þetta er geðveik mynd!!!! Allir að fara á hana
- Langbesta myndin líka - Sveppi á erindi til okkar allra
- hún er geeeðveik
- Snillddddddd
- Besta fjölskyldumyndin síðan MEÐ ALLT Á HREINU
- Hún er jafn fyndin fyrir fullorðna!
- Strákurinn minn er enn með stjörnur í augunum
- Krakkarnir tala ekki um annað!
BRUCE WILLIS ER MÆTTUR
Í HÖRKUSPENNANDI MYND SEM
ENGIN MÁ MISSA AF
MANNLEG
FULLKOMNUN
– HVAÐ GETUR
FARIÐ ÚR-
SKEIÐIS?
SURROGATES
Giacomo Puccini
TOSCA
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
WWW.OPERUBIO.IS
UPPSELT Á LAUGARDAG
ENDURSÝNING
MIÐVIKUDAGINN
14. OKT. -KL. 18.30
HHHH
HULDA GEIRSDÓTTIR, RÁS 2
YFIR 20.000 GESTIR FYRSTU 2 VIKURNAR
VINSÆLASTA
MYNDIN AÐRA
VIKUNA Í RÖÐ
Á ÍSLANDI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HHHH
- K.U. - TIME OUT NEW YORK
"ENTERTAINING AND INGENIOUS!
- ROGER EBERT
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKAÍ KRINGLU NI
SÝND MEÐÍSLENSKU TALI
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
FAME kl. 5:45 - 8 - 10:20 L
ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN AÐ... kl. 2 - 4 - 6 L
BIONICLE: Goðsögnin snýr aftur kl. 2 - 4 (650 kr.) L
JENNIFER'S BODY kl. 8 16
DISTRICT 9 kl. 10:20 16
ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN AÐ... kl. 2 - 4 - 6 L
FAME kl. 5:40 - 8 - 10:20 L
ORPHAN kl. 8 - 10:30 16
BIONICLE: Goðsögnin snýr aftur kl. 1:30 L
UPP ísl. tal kl. 3:30 L
ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... kl. 2 - 4 - 6 L
FAME kl. 8 - 10:20 L
UPP ísl. tal kl. 1:30 - 3:40 L
FUNNYPEOPLE kl. 5:40 12
MANAGEMENT kl. 8 L
SURROGATES kl. 10:20 12
SPARBÍÓ 550 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu