Morgunblaðið - 10.10.2009, Side 52
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 283. DAGUR ÁRSINS 2009
Heitast 10 °C | Kaldast 1 °C
Búast má við stormi
NV-lands og við SA-
ströndina. Víða rigning
eða slydda, en léttir til
S- og V-lands. »10
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
124,94
199,6
118,76
24,73
22,123
17,896
121,25
1,4058
198,27
184,11
Gengisskráning 9. október 2009
125,24
200,09
119,11
24,802
22,188
17,948
121,59
1,4099
198,86
184,63
237,1425
MiðKaup Sala
125,54
200,58
119,46
24,874
22,253
18
121,93
1,414
199,45
185,15
FÓLK Í FRÉTTUM»
FÓLK»
Kvennaskóli og MH tók-
ust á. »46
Hljómsveitin Sixties
klæðist Bítlajakka-
fötum og heldur upp
á fimmtán ára af-
mælið á Players í
kvöld. »49
TÓNLIST»
Afmæli
Sixties
FÓLK»
Marge fækkar fötum
fyrir Playboy. »49
FÓLK»
Spelling segist vera 107
pund, tæp 49 kg. »45
Það er synd hve
bæði ljóð og skáld-
sögur sem ekki reiða
sig á söguþráð, fá
litla athygli, segir
Ásgeir H. »48
Deilur
rithöfunda
AF LISTUM»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. „Bubbi dró úr okkur lífsneistann“
2. Þök og bílar fjúka í Eyjum
3. Ofsaveður á Kjalarnesi
4. Listaverk og trampólín á lofti
Íslenska krónan styrktist um 0,46%
Tónlistarkonan
Kristín Anna Val-
týsdóttir, sem
eitt sinn söng með
múm en starfar nú
sem sólólistamaður
í Brooklyn, ætlar
að bregða á leik í
Ásmundarsafni ásamt Guðrúnu Ás-
mundsdóttur leikkonu nú á sunnu-
daginn. Guðrún og Kristín bjóða
fjölskyldufólki að slást í för með sér
og skoða sýninguna Rím í Ásmund-
arsafni í tali og tónum, en þær munu
staldra við ákveðin verk á sýning-
unni og segja af þeim sögur.
MYND- OG TÓNLIST
Kristín Anna og Guðrún
Ásmunds sýna og syngja
Haraldur Þór
Ólason, oddviti
sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar, lýsti því
yfir á fundi full-
trúaráðs Sjálfstæð-
isflokksins í Hafn-
arfirði í fyrrakvöld að hann gæfi ekki
kost á sér næsta kjörtímabil.
„Þetta er orðið gott,“ segir Har-
aldur, sem hefur verið bæjarfulltrúi
síðan 2002. Hann bætir við að lífs-
nauðsynlegt sé að sjálfstæðismenn
sameinist til að koma Samfylkingunni
frá völdum í bænum og vonast til þess
að ákvörðun sín verði til þess. Rósa
Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi segist
alvarlega vera að íhuga að sækjast
eftir oddvitasætinu.
STJÓRNMÁL
Haraldur gefur ekki aftur
kost á sér í bæjarstjórn
Markatalan 14:2
er fræg í íslenskri
knattspyrnusögu.
Árið 1967 beið
landsliðið sögu-
legan ósigur á
Idrætsparken í
Kaupmannahöfn í
vináttulandsleik gegn Dönum. Slík-
ar tölur eiga vart eftir að sjást aftur
en Eyjólfur Sverrisson, þjálfari 21
árs landsliðsins, getur nú státað af
14:2, reyndar í tveimur leikjum.
Strákarnir hans burstuðu San Mar-
ínó, 8:0, í gær og höfðu áður unnið
Norður-Íra, 6:2, á útivelli. | Íþróttir
ÍÞRÓTTIR
Eyjólfur með markatöluna
14:2 í tveimur leikjum
Ljósmynd/Súsanna M.B. Helgadóttir
Stoltur Steinn náði góðum árangri í járnkarlakeppninni í Barcelona.
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
STEINN Jóhannsson þríþrautar-
kappi náði fyrir skömmu því lang-
þráða markmiði sínu að æfa í 1.000
daga í röð. Hann hefur því ekki
misst úr dag síðan í desember 2006.
„Það er mottó hjá mér að æfa á
hverjum degi, óháð keppnum,“ segir
Steinn sem um síðustu helgi tók þátt
í sinni annarri járnkarlakeppni (e.
Ironman) í Barcelona, ásamt fimm
öðrum Íslendingum. Í járnkarla-
keppni felst að synda 3,8 km, hjóla
180 km og hlaupa maraþon, 42,2 km.
Steinn náði mjög góðum árangri,
varð í 61. sæti af 1.500 körlum, en í
sínum aldurshópi, þar sem kepptu
400 manns, varð hann í 11. sæti.
Steinn hefur aðeins æft þríþraut í
þrjú ár en hann segist hafa æft
íþróttir meira og minna frá árinu
1983. Hann æfði hlaup þegar hann
var yngri, byrjaði svo að synda
reglulega árið 2003 og fannst hann
þá vera kominn með góðan grunn til
að byrja á þríþrautinni. „Svo hefur
allur árangur verið vonum framar í
þríþrautinni. Hún hentar mér ein-
hverra hluta vegna mjög vel og mér
hefur gegnið vonum framar í keppn-
um erlendis og hér heima.“
Mikilvægt að hlusta á líkamann
„Mitt markmið er að hreyfa mig á
hverjum einasta degi – synda, hjóla
eða hlaupa, en fyrir keppni tek ég
mjög léttar æfingar. Ég get því
dreift álaginu vel. Ef maður er í
þremur greinum er meiðslahætta
minni og svo slakar maður á að
hlaupa einn daginn, hjóla næsta og
synda hinn,“ segir Steinn en að hans
sögn er ekki hætta á ofþjálfun ef æf-
ingarnar eru byggðar upp með
skynsamlegum hætti og passað er
upp á að hlusta á líkamann. Sé mað-
ur þreyttur eigi maður að slaka á og
taka létta æfingu. Steinn segir mik-
inn undirbúning liggja að baki þátt-
töku í járnkarlakeppni. „Ég tek að
jafnaði tólf æfingar í hverri viku í 5-6
mánuði fyrir keppni. Ég æfi tvisvar
á dag alla virka daga, nánast und-
antekningarlaust, og um helgar
hjóla ég í nokkra klukkutíma og
hleyp langt.“ Hann lætur heldur
ekki veikindi aftra sér frá því að æfa.
„Ég hef verið ótrúlega heppinn því
hafi ég fengið flensu hefur hitinn
ekki verið mikill. Ég hef ekki látið
veikindi stoppa mig heldur hjóla ég
inni á þrekhjóli, en sleppi því að fara
í sund eða út að hlaupa,“ segir
Steinn, og segir hann æfingar í veik-
indum hafa gefist vel. „Ég hef á til-
finningunni að það hafi styrkt
ónæmiskerfið að vera svona stífur á
að æfa.“ Steinn hefur engan frídag
tekið síðan hann náði 1.000 daga tak-
markinu heldur gælir hann við að ná
fimm árum samfellt. Eftir að hann
kom heim frá Barcelona hefur hann
látið sundið nægja þar sem járnkarl-
inn tekur mikið á en hann segist
vera orðinn svo hress núna að hann
gæti hugsað sér að keppa aftur um
helgina, væri það í boði.
Sleppir ekki úr degi
Hefur æft á hverj-
um degi í yfir þús-
und daga samfleytt
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
SAGA Þórunnar sem undrabarns á
Íslandi má ekki gleymast, segir
Elín Albertsdóttir blaðamaður sem
er höfundur ævisögu Þórunnar Jó-
hannsdóttur Ashkenazy sem kemur
út fyrir þessi jól hjá Bókafélaginu.
Bókin ber titilinn Íslenska undra-
barnið – saga Þórunnar Ashkenazy.
„Í bókinni kemur fram margt
óvænt varðandi barnæsku Þórunn-
ar og án þess að ég vilji upplýsa það
núna held ég að fólk skilji betur
þegar það er búið að lesa bókina af
hverju hún lagði píanóleik á hill-
una,“ segir Elín. „Þórunn átti mjög
óvenjulega æsku, svo vægt sé til
orða tekið, og líf hennar hefur ver-
ið viðburðaríkt alla tíð, eins og rak-
ið er í bókinni, en flestir Íslend-
ingar, sem komnir eru á miðjan
aldur, muna eftir fjölmiðlafárinu
þegar Þórunn og eiginmaður henn-
ar, Vladimir Ashkenazy, ákváðu að
yfirgefa Sovétríkin árið 1963.“
Þórunn fagnaði sjötugsafmæli
sínu fyrr á þessu ári. Elín segist allt
frá barnsaldri hafa haft mikinn
áhuga á lífi hennar. „Tveggja ára
gömul var Þórunn byrjuð að spila á
píanó og þriggja ára var hún farin
að spila opinberlega. Í bókinni er
sögð óvenjuleg lífssaga Þórunnar,
hvort sem er sem undrabarns í
píanóleik eða sem eiginkonu og
hægri handar eins mesta píanósnill-
ings veraldar.“
Undrabarn Þórunn sjö ára á tón-
leikum. Ævisaga er á leiðinni.
Ævisaga Þórunnar Jóhannsdóttur
Ashkenazy – Saga undrabarns
ÍSLENSKA fjármálahrunið hafði
m.a. það í för með sér að mun fleiri
ungir og fótboltamenn uppaldir hjá
félögunum fengu tækifæri en áður
á nýliðnu keppnistímabili. Félögin
tólf í úrvalsdeild karla tefldu sam-
tals fram 141 uppöldum leikmanni
á árinu 2009, í stað 120 árið á und-
an. Í 1. deild karla fengu 165 upp-
aldir leikmenn að spreyta sig á móti
143 árið 2008. Bikarmeistarar
Breiðabliks voru með hæsta hlutfall
uppalinna leikmanna í úrvalsdeild-
inni 2009, eða 77%. Áberandi fjölg-
un var á ungum heimamönnum í
liðum FH, Fylkis, Fram og Kefla-
víkur. Í 1. deild voru HK og ÍA með
82% hlutfall uppalinna leikmanna í
sínum hópi. | Íþróttir
Morgunblaðið/Ómar
Fótbolti Ungir Fylkismenn fagna
einu af mörkum sumarsins.
Ungir leikmenn
fengu tækifæri
HÖFUNDUR nýútkominnar ævi-
sögu Magnúsar Eiríkssonar, segir
að tónlistarmaðurinn hafi sam-
þykkt að segja sögu sína ef hann
fengi að gera það á ökuferðum um
landið. Þeir félagar hafa því lagt
um sjö þúsund kílómetra að baki og
Magnús rifjað upp ýmis atriði á
leiðinni, sum hver heldur spaugi-
leg. Magnús er engin tepra og
dregur ekkert undan. Samhliða
ævisögunni kemur út diskur með
völdum perlum Magnúsar og er það
engin eftirhermuplata, eins og þeir
orða það félagar hans í hljómsveit-
inni Buff. | 44
Sagði frá ævi sinni
keyrandi um landið