Morgunblaðið - 11.10.2009, Síða 13
ir leikarar. Þannig að við höfum til-
finningu fyrir að einelti minnki og
samkenndin verði miklu meiri en áð-
ur. Gamall nemandi sagði við mig
með áherslu mörgum árum eftir að
hann var hættur í skólanum: „Þegar
maður var í þessum söngleik fóru átt-
undu bekkingar með tíundu bekk-
ingum út í sjoppu að fá sér pulsu.“
Þetta segir mjög mikið því oft er him-
inn og haf á milli áttunda og tíunda
bekkjar.“
Anna segir tengslin sem hún
myndar við nemendur, ekki síður
dýrmæt fyrir sig, enda lendi hún iðu-
lega í því að gamlir nemendur svífi á
sig niðri í bæ og fari að spjalla. „Ég
segi alltaf eftir hvern einasta söngleik
að ég ætli ekki að gera þetta aftur.
Svo líða þrjú ár og þá er ég búin að
gleyma því. Bæði er mikill þrýstingur
en eins gefur þetta mikið. Það er svo
gaman að sjá krakkana vaxa í gegn-
um þessa sýningu og það er stórkost-
legt að geta boðið þeim upp á þetta í
skólastarfinu. Síðan er yndislegt að
eignast vini í krökkunum. Margir
þeirra hafa komið aftur mörgum ár-
um seinna til að aðstoða mig við upp-
færslur.“
Bauð fermingarpeningana
Hlíðaskóli hefur ekki farið varhluta
af kreppunni frekar en aðrir og í vor,
þegar aftur var komið að því að setja
upp söngleik í unglingadeildinni,
munaði litlu að ekkert yrði úr sýning-
unni vegna fjárskorts. „Ég var óskap-
lega ósátt við að blása þetta verkefni
af. En svo ákváðum við sem að þessu
stóðum að við skyldum ekki láta
ástandið sem skollið var á eyðileggja
áætlanir nemenda. Þannig að nið-
urstaðan varð sú að við kennararnir
sem að sýningunni komum unnum
einfaldlega launalaust við sýninguna
þetta ár. Eins kölluðum við til for-
eldra sem við höfum aldrei gert áður
og þeir brugðust ótrúlega vel við.
Einhvern veginn voru allir boðnir og
búnir svo að sýningin gæti orðið að
veruleika. Ég sagði við krakkana að
við þyrftum að gera þetta á mettíma
og þeir yrðu að vera einstaklega góðir
við mig. Og þau voru frábær – alger-
lega frábær. M.a.s. sagði einn nem-
andinn við mig að hann væri alveg til í
að láta fermingarpeningana sína í
þetta ef það gæti orðið til þess að þau
fengju söngleikinn sinn.“
Til að draga úr kostnaðinum var
ákveðið að setja upp á ný eldri upp-
færslu svo í fyrsta sinn var ekki um
frumsamið leikverk að ræða og spar-
að var í öllum hornum. „Við höfum
alltaf selt inn og núna, þegar enginn
fór fram á laun og foreldrar höfðu
staðið fyrir allskonar fjáröflun var
fullt af peningum afgangs svo við gát-
um keypt fullt af græjum í salinn fyr-
ir ágóðann,“ segir Anna og hlær en
verður svo alvarleg aftur. „En það er
ekkert víst að þeir sem vinna við upp-
setningarnar séu alltaf tilbúnir að
vinna við svona sýningu í átta vikur
án þess að fá laun.“
Hvað sem því líður er söngleik-
urinn ómissandi viðburður í starfi
unglingadeildar Hlíðaskóla enda bíða
nemendur yngri bekkja þess með
óþreyju að komast á þann aldur að
þeir geti verið með í honum. Á meðan
fá þeir fjölmörg tækifæri til að njóta
sín í leiklistinni. „Þetta var algert
þróunarstarf þegar við byrjuðum en
fljótlega varð markmiðið að skólinn
hefði leiklistarkennslu á öllum skóla-
stigunum. Og það er staðan í dag.
Leiklist er kennd til jafns við aðrar
listgreinar, alveg niður í annan bekk.“
Þar fyrir utan eru börnin í öllum
bekkjum skólans þátttakendur í minni
leikritum, árshátíðaratriðum, dans-
sýningum og árlegum söngleikjasýn-
ingum þar sem öllu er til tjaldað og
margir kennarar koma að. „Enda eru
mjög margir krakkar héðan sem enda
með því að fara í leiklist,“ segir Anna.
„Auðvitað er líka eitthvað um krakka
sem finnst þetta mjög spennandi hér í
skólanum en missa áhugann síðar
meir. Á hinn bóginn uppgötva aðrir
nemendur, sem hafa aldrei leikið neitt,
alveg nýja hlið á sér. Alveg eins og
gerist í myndlistinni, tónlistinni og líf-
inu öllu.“
Morgunblaðið/RAX
aðar: „Það er t.d. svo mikil tónlist í myndlist og leiklistin er alls staðar. Þess vegna hef ég viljað hefja skapandi greinar til vegs og virðingar.“
Samkennd Krakkarnir finna vel hvað hver maður skiptir miklu máli.
2009 Í vor settu nemendur upp Það er að koma, frá árinu 1997. Fyrsta sýningin 1994 setti Hlíðaskóli upp söngleikinn Undir Öskjuhlíð.
2000 Ein fjölskyldan sem fram kom í sýningunni Í tíma.
13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 2009