Morgunblaðið - 11.10.2009, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 2009
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Meðal efnis verður:
Vetrarklæðnaður á börn og fullorðna.
Góðir skór fyrir veturinn.
Húfur, vettlingar, treflar, lopapeysur og fl.
Snyrtivörur til að fyrirbyggja þurra húð.
Flensuundirbúningur, lýsi, vítamín og fl.
Ferðalög erlendis.
Vetrarferðir innanlands.
Bækur á köldum vetrardögum.
Námskeið og tómstundir í vetur.
Heitir pottar og sundlaugar góð afslöppun
Bíllinn tekinn í gegn.
Leikhús, tónleikar og ýmisleg afþreying.
Útilýsingar – góð ljós í myrkrinu.
Þjófavörn fyrir heimili og sumarbústaði.
Mataruppskriftir.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16
mánudaginn 19. október.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað
Vertu viðbúinn vetrinum
föstudaginn 23. október.
Vertu viðbúinn
vetrinum
Páll á Húsafelli
REYKJAVÍK ART GALLERY
þoRsTEinn Jónsson
Heillaóskalisti
Listaverkabókin Páll á Húsafelli er gefin út í tilefni hálfrar aldar afmælis lista
mannsins. Vinum og velunnurum gefst nú tækifæri til að gerast áskrifendur
að bókinni og um leið að senda listamanninum kveðjur á sérstökum heilla
óskalista sem birtur verður í bókinni. Skráningarfrestur er til 15. október.
Bókin Páll á Húsafelli er 160 bls. að stærð, innbundin í hörð spjöld.
Áskriftartilboð er kr. 6.000.
Hægt er að staðfesta áskrift á netfanginu: thsteinn@simnet.is
72 73
Fótur Eiríks, rautt móberg 1985.
Gunna á Húsafelli, rautt móberg 1985.
Freymóður Þorsteinsson. Þegar Páll sótti steininn að Freymóði um
kílómetra leið í Bæjargilið, tók það hann heilan dag að velta honum út
gilið og var hann þá allur orðinn blóðugur eftir glímuna við grjótið.
skrifaði m.a.: „Páll Guðmundsson heggur beint í grjótið fígúra
tífar myndir – andlit, fætur, kindur og ljón – sem virðast vaxa út úr
efninu. Í raun getum við sagt að listamaðurinn „lesi” út úr nátt
úrunni myndir sem hann síðan undirstriki – seiði fram – og geri að
veruleika fyrir hinn hefðbundna listáhorfanda. En þetta samspil
við náttúruna er afar viðkvæmt og listamaðurinn verður ávallt að
gæta þess að ganga ekki of nálægt steininum og umbreyta
honum ekki í einhverja banala sjónblekkingu. Hér liggur styrkur
og gildi verkanna umfram allt í efninu og vinnuaðferðinni. Þetta
kemur vel fram í verkum eins og „Húsafellspresturinn” og „Hrút
ur”, þar sem áhorfandinn les í senn grjót og mynd. Form grjótsins
heldur sér í þessum verkum, ennfremur sem gróf áferð eykur á
virkni efnisins.”
Thor, fjólublátt móberg 1985. Í skjóli nætur hvarf þessi höggmynd af sýningunni í Gallerí Grjóti og hefur ekki
spurst til hennar síðan.
sýning í Gallerí Grjóti
Um sýningu Páls í Gallerí Grjóti árið 1988 skrif
aði Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur m.a.:
„Fyrir Pál Guðmundsson, myndhöggvara frá
Húsafelli, ber grjótið „sál” sína utan á sér frem
ur en innvortis, og gefur myndhöggvaranum
ýmislegar vísbendingar um innbyggðan tilgang
sinn innan sköpunarverksins.
Stærð og lögun grjótsins skiptir ekki minnstu
máli, en alls konar misfellur, sprungur, æðar
og litbrigði hafa líka sitt að segja, ákvarða
hvort úr grjótinu verði einn haus eða tveir,
sköllóttur haus eða skeggjaður, eða hvort að
eitthvert kykvendi kúri í klöppinni og vilji út –
svo nefnd séu tvö meginviðfangsefni Páls.
Hver skúlptúr hans er því sérkennilegt sam
bland af sígildu steinhöggi og súrrealískum
aðskotahlut.
Maður gæti látið sér detta danskurinn Henry
Heerup í hug, ef ekki kæmi til sérstaklega
íslenskt ívaf þessara verka, sem er ærslafull
frásagnagleði listamannsins og glöggt auga
hans fyrir hinu sérkennilega, jafnvel gróteska, í
fari manna og dýra.”
Gyðja, fjólublátt móberg 1988.
Skítamórall Hebbi, Gunnar, Hanni, Gunnar Óla, Kalli og Addi stóðu sig vel enda vanir menn.
ÞÓ ótrúlegt megi virðast er þessi
hljómsveit tuttugu ára. Drengirnir,
því drengir eru þeir ennþá, í Skíta-
móral héldu upp á tuttugu ára af-
mæli sveitarinnar sitt á skemmti-
staðnum Rúbín í Öskjuhlíð á
fimmtudagskvöldið. Meðlimir
Skítamórals hófu að starfa saman
aðeins þrettán ára og hafa í gegn-
um tíðina safnað stórum aðdáenda-
hópi sem lét sig að sjálfsögðu ekki
vanta á afmælistónleikana.
Fiðlufegurð Magdalena Dubik, fegurðardrottning Reykjavíkur, lék á fiðlu
með Skítamóral ásamt fleirum.Ekki amalegt að hafa strengjasveit með.
Meistarinn Helgi Björnsson tók
lagið með Gunnari Óla.
Enginn skítamórall á Skítamóral
POPPGOÐIÐ Michael Jackson
þótti ekki líklegur til stórræðanna,
eða þannig mátu bekkjarfélagar
hans stöðuna þegar hann var í mið-
skóla. Þó var hann sagður sá hug-
myndaríkasti, sá best klæddi og sá
feimnasti.
Þetta kemur fram í árbók sem
var til sölu á uppboði sem haldið
var á ýmsum munum tengdum
Jackson í fyrradag í Los Angeles.
Árbókin er frá árinu 1976 en Jack-
son sótti Cal Prep-miðskólann (e.
high school) í Encino í Kaliforníu.
Sá sem þótti líklegastur til að ná
langt í lífinu, hvað svo sem það þýð-
ir, var Scott nokkur Ashdown. Ekki
fer þó sögum af afrekum hans, í það
minnsta kannast færri við nafnið
Scott Ashdown en Michael Jackson.
Jackson lést 25. júní sl. og fer nú
fram rannsókn á andláti hans.
Jackson Þótti feiminn í skóla og
ekki líklegur til stórræða.
Þótti ekki
líklegur til
að ná langt