Morgunblaðið - 11.10.2009, Page 56
SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 284. DAGUR ÁRSINS 2009
Heitast 9 °C | Kaldast 1 °C
Austan og norð-
austan 15-23 m/s,
hvassast norðvestan til
og við suðaust-
urströndina. »10
KVIKMYNDIR»
Asískar stjörnur skinu á
PIFF í S-Kóreu. »53
Ljósmyndir banda-
ríska tímaritsins
Life má finna á
Google og þar er
mörg heimssöguleg
gersemin. »49
VEFSÍÐA VIKUNNAR»
Heimsmynd
í myndum
TÓNLIST»
Stuð hjá Skímó á tvítugs-
afmælistónleikum. »48
FÓLK»
Jackson þótti ekki líkleg-
ur til stórræðanna. »48
Reynslan af Iceland
Airwaves segir
manni að bestu
stundirnar eru oft
þær sem maður bjóst
ekki við. »52-53
Óvænt
ánægja
TÓNLIST»
Menning
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Nýtt gullæði á Íslandi?
2. Hærra lán ekki í boði
3. Maður stunginn í Sjallanum
4. Orkudrykkirnir nú bannaðir
’Margir telja að það að afnemagrunnlífeyri hjá fjölda lífeyrisþegasé eignaupptaka. Fólk hefur greitt allaævi til almannatrygginga. Þetta hefurverið sparnaður til efri ára og fólk hef-
ur átt von á lífeyri á eftirlaunaárum. En
síðan er þessi lífeyrir strikaður út með
einu pennastriki. » 32
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
’Það er fyrirséð að vaxandi fjöldiferðamanna, innlendra sem er-lendra, á eftir að sækja þjónustu og af-þreyingu til íslenskra ferðaþjónustu-fyrirtækja á næstu árum. Ef við
byggjum ferðaþjónustuna upp af skyn-
semi á vel ígrunduðum áætlunum,
sem byggðar eru á grunnrannsóknum,
getur íslensk ferðaþjónusta vaxið með
sjálfbærum og varanlegum hætti. » 32
ELÍAS BJ. GÍSLASON
’Réttur manna til öruggs ogheilsusamlegs vinnuumhverfis erhluti mannréttinda, kveðið er á umhann í mannréttindasáttmála SÞ ogfélagsmálasáttmála Evrópu. Alþjóða-
vinnumálastofnun Sameinuðu þjóð-
anna hefur gert fjölmargar samþykktir
um vinnuverndarmál. » 33
KRISTINN TÓMASSON OG
EYJÓLFUR SÆMUNDSSON
’Garðyrkjubændur telja að at-vinnugrein sem kaupir gríðarlegtmagn af rafmagni eigi að njóta þess íverði. RARIK, sem hefur einkaleyfi tildreifingar rafmagns, hefur ekki léð
máls á slíkri útfærslu og þar við situr. Í
staðinn hækkaði verðskrá RARIK um
15% hinn 1. janúar síðastliðin og síðan
aftur um 5% hinn 1. ágúst. » 34
BJARNI GUÐMUNDSSON
’Þegar við stöndum andspænismiklum atburði eins og sam-drættinum í dag höfum við tilhneig-ingu til að draga saman seglin í lífiokkar, fara inn á við og vera í varn-
arstöðu gagnvart starfinu okkar. Þeir
sem búa yfir seiglu átta sig á því að
þetta eru alls kostar röng viðbrögð.
» 36
INGRID KUHLMAN
’Það sem skiptir máli er það að súleið auki á hin raunverulegu lífs-gæði okkar; hamingju, frið, sjálfbærniog sjálfstæði. Hagvöxtur fer oft samanvið þessi lífsgæði, en það er mín sann-
færing eins og fjölda annarra að hag-
vöxtur sem byggist á þungaiðnaði geri
það ekki. » 36
ÓLAFUR HEIÐAR HELGASON
’Þess er hér með krafist að rík-isstjórn Íslands taki tillit til íbúavið Þjórsá. Við ætlumst til þess að tek-ið sé mark á þeirri ósk okkar að fá aðbúa á jörðum okkar með þá starfsemi
sem þar er. Verði ráðist í gerð orkuvera
við neðanverða Þjórsá eru yfirvofandi
slíkar breytingar á umhverfi okkar að
óviðunandi er. Nú vilja bændur fá frið
fyrir ágangi Landsvirkjunar. » 37
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR OG
KRISTJANA RAGNARSDÓTTIR
Skoðanir
fólksins
Morgunblaðið/RAX
Í myndlistinni Anna Flosadóttir kennir fyrst og fremst myndlist í Hlíða-
skóla en nýtur þess að samþætta ólíkar listgreinar fyrir nemendur.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
„ÞAÐ er svo gaman að sjá krakkana
vaxa í gegnum þessa sýningu og það
er stórkostlegt að geta boðið þeim
upp á þetta í skólastarfinu,“ segir
Anna Flosadóttir, myndlistarkenn-
ari við Hlíðaskóla, sem hefur staðið
fyrir uppfærslu á tveggja og hálfs
tíma löngum frumsömdum söng-
leikjum í unglingadeild skólans frá
árinu 1994.
Síðan þá hafa um 600 nemendur
notið leiðsagnar hennar á sviðinu.
Ráðist er í svo stóra uppfærslu á
þriggja ára fresti, þannig að allir
nemendur fá einu sinni tækifæri til
að taka þátt í slíkri sýningu á meðan
þeir eru í unglingadeildinni. Og árið
sem söngleikurinn er settur á fjal-
irnar verður mikil breyting í sam-
skiptum krakkanna. „Við sjáum að
unglingadeildin þjappast saman því
þau verða svo meðvituð um að einn
veikur hlekkur getur eyðilagt allt.
Allt í einu fara þau að hafa áhyggjur
hvert af öðru, t.d. af heilsufari hvert
annars. Við höfum líka séð að krökk-
um, sem hafa ekki átt upp á pall-
borðið hjá hinum, tekst að sanna sig
í hópnum – þeir eru kannski frábær-
ir í að skrifa, leika á hljóðfæri eða
jafnvel frábærir leikarar, þannig að
okkur finnst einelti minnka og sam-
kenndin verður miklu meiri en áð-
ur.“
Skiptir sköpum
Leikarinn Björn Thors er meðal
þeirra sem tóku þátt í fyrstu upp-
færslu Önnu árið 1994, en það vakti
athygli þegar hann tók við Grímu-
verðlaunum sínum í vor að hann til-
einkaði Önnu verðlaunin. „Margt af
því sem hún sagði og gerði í skól-
anum hefur fylgt manni alla ævi,
sem innlegg í lífið. Þannig eiga kenn-
arar að vera, veita manni innblástur
jafnvel í eitthvað allt annað en stend-
ur í bókinni fyrir framan mann. Þeg-
ar mér verður hugsað til Önnu finn
ég hvað sköpunin skiptir miklu máli.
Hún skiptir sköpum í lífinu.“ | 12
Innblástur sem endist allt lífið
Anna Flosadóttir hefur stýrt um 600 unglingum í frumsömdum söngleikjum
í Hlíðaskóla Verkefnið dregur úr einelti og samkennd nemenda eykst
„ALL we are saying, is give peace a chance,“
sungu Yoko Ono, sonur hennar Sean og fjöl-
mennur hópur íslenskra söngvara fyrir fullu
Hafnarhúsi í fyrrakvöld, á tónleikum sem haldn-
ir voru til heiðurs Bítlinum John Lennon sem átti
afmæli í gær, 9. október. Fyrr um kvöldið var
kveikt á Friðarsúlunni úti í Viðey, Imagine
Peace Tower, í vonskuveðri og kann það að vera
táknrænt fyrir þá friðarbaráttu sem Ono og
Lennon háðu á sínum tíma og Ono enn; að sama
hversu slæmt útlitið er þá lifir vonin og bænin
fyrir friði líkt og ljós í myrkrinu. Tónleikagestir
tóku að sjálfsögðu undir, friðarmerkjum var
haldið á lofti og litlum vasaljósum frá Ono var
beitt sem agnarsmáum friðarsúlum. | 50-51
Mögnuð stemning var á tónleikum til heiðurs John heitnum Lennon
Morgunblaðið/Ómar
Beðið fyrir heimsfriði í Hafnarhúsinu