Skólablaðið - 01.10.1946, Blaðsíða 15
ýmsir snjallir töframenn og fimleikamenn
listir sínar. Einnig fóru margir til staða, þar
sem dansað var.
Klukkan rúmlega 7 að morgni miðviku-
daginn 3. júlí lögðum við af stað með járn-
brautarlest frá Osló til Stokkhólms, eftir að
við höfðum kvatt hina norsku rektora og
fulltrúa norræna félagsins á járnbrautar-
stöðinni. Áttum við langa leið fyrir höndum,
og reyndum við að sofa lítið eitt í lestinni
eftir því sem hægt var, því að við vorum
þreytt eftir allt ferðalagið dagana áður og
lítt sofin, og þar að auki var mjög heitt í
veðri, en hitinn náði 32° á C í skugga eftir
því, sem hitamælir í lestinni sýndi, svo að
ekki var furða, þótt okkur syfjaði.
Lestin stanzaði víða á leiðinni, og fórum
við oft út að rétta úr okkur, þegar hún
stanzaði eitthvað að ráði.
Þá bar svo við, eftir að lestin hafði stanz-
að í nokkrar mínútur og var lögð af stað
aftur, að Þorsteinn Thorarensen sást hvergi
í lestinni, heldur aðeins jakkinn hans. Kom
þá í ljós, að einhver hafði sagt honum, að
lestin myndi standa við í hálftíma á þess-
um stað, og hafði hann hlaupið út jakka-
laus að rétta úr sér og skoða sig um.
Þetta fór allt vel, því að Þorsteinn kom
daginn eftir til Stokkhólms með kolalest, en
ekki átti önnur farþegalest að fara þessa leið
fyrr en eftir viku.
Þegar við nálguðumst sænsku landamærin,
komu reffilegir sænskir tollverðir í fínum
einkennisbúningum inn í lestina, en við losn-
uðum þó að mestu leyti við tollskoðun.
Við komum til Stokkhólms klukkan tæp-
lega 7 um kvöldið og höfðum því verið 11—
12 tíma á leiðinni.
Á járnbrautarstöðinni tóku á móti okkur
Anderson, fulltrúi norræna félagsins í Stokk-
hólmi, sænskur rektor og Vilhjálmur Finsen,
sendifulltrúi Islands í Stokkhólmi. Strax og
við stigum út úr lestinni, safnaðist hópur
blaðamanna í kringum Pálma og Sigurð, og
áttu þeir einnig viðtal við einstaka stúdenta
úr hópnum.
Tóku þeir myndir af hópnum, og sérstak-
lega voru þeir þó ákafir í að taka myndir
af stúlkunum.
Fórum við nú til væntanlegs dvalarstaðar
okkar í „Johannes folkskola", „Roslagsg. 61.
Við byrjuðum fimmtudaginn 4. júlí með
því að snæða morgunverð í veitingahúsinu
„Norma“ við „Odenplan“.
Síðan komum við saman um kl. 8,30 f. h.
við aðalskrifstofu samvinnufélagasambands-
ins „Kooperativa Förbundet“ við ,,Slussen“.
Var hin mikla skrifstofubygging þar skoðuð,
og undruðumst við hinn mikla tæknibrag,
sem var þar á öllu.
Fór allt bókhald þar fram í vélum.
Vorum við þennan dag í boði samvinnufé-
laganna í Stokkhólmi. Fylgdarlið okkar var
auk hins sænska rektors, sem ávallt fylgdi
okkur, tveir sænskir stúdentar og austurrísk-
ur kvenstúdent. Einnig fengum við að skoða
geysimikið brauðgerðarhús, sem rekið er á
vegum samvinnufélagasambandsins.
Er við höfðum lokið við að skoða brauð-
gerðarhúsið, var ekið í stórum fólksbifreið-
um, sem skrýddar voru sænskum og íslenzk-
um fánum, til kornmölunarverksmiðju einn-
ar mikillar, sem við skoðuðum alla hátt og
lágt, og gátum við fylgzt með því, hvernig
kornið var malað í vélunum og allt þangað
til það var komið í pokana.
Virtist okkur tækni og vinnuskipulag vera
þarna á háu stigi.
Einnig skoðuðum við bústaðahverfi starfs-
fólks þess, sem vinnur við þessa miklu verk-
smiðju.
Að þessu loknu ókum við áfram í sömu
bifreiðunum um helztu götur borgarinnar, og
hrifumst við af fegurð hennar og góðu skipu-
lagi. Stokkhólmur er mjög glæsileg borg og
vel skipulögð.
Göturnar eru beinar og breiðar, og víða eru
trjáraðir meðfram gangstéttunum.
Skrúðgarðar eru víða í borginni með högg-
myndum og gosbrunnum.
Um kl. 2 komum við til veitingahússins
Rasten,Angby, þar sem við snæddum mið-
degisverð í boði kaupfélagasambandsins.
Flutti þar einn af fulltrúum sambandsins
ræðu og fagnaði komu okkar og ræddi um
S KÓLA BLAÐIÐ
13