Skólablaðið - 01.10.1946, Síða 18
skóla nokkrum, sem heitir „Nyboder Skole“,
og var nú fyrst haldið þangað, svo að við
gætum komið okkur fyrir þar.
Síðan var okkur boðið til hádegisverðar á
stúdentaheimili hins danska stúdentafélags.
Þar voru einnig saman komnir íslenzkir
stúdentar, sem stunda háskólanám í Kaup-
mannahöfn.
Fluttu þar ræður þeir prófessor Jón Helga-
son, Guðni Guðjónsson magister, prófessor
Niels Nielsen og Pálmi Hannesson rektor, og
mæltist þeim öllum stórvel. Að borðhaldi
loknu var haldið um borgina til að skoða
ýmsa merka staði, þar á meðal ýmsa þá
staði, sem tengdir eru sögu íslendinga, sem
dvalizt hafa í Kaupmannahöfn.
Þá var háskólinn skoðaður og síðan Frúar-
kirkjan. Seinna um daginn var dýragarður-
inn skoðaður, og gaf þar að líta allar hugs-
anlegar dýrategundir, sem maður gat látið
sér detta í hug. Um kvöldið fórum við til
ýmissa skemmtistaða eftir því, sem löngun
hvers og eins stóð til. Urðum við hvergi vör
við neinn kala í okkar garð,hvar sem við
komum, þótt margir hefðu hvíslað því að
okkur hérna heima á Islandi, að ekki mund-
um við hljóta hlýlegar móttökur í Danmörku.
Varð nú samt reyndin allt önnur, því að
öll alþýða manna virtist vingjarnleg í okkar
garð.
Islenzkir stúdentár, sem stunda háskóla-
nám í Kaupmannahöfn, og ýmsir Danir, sem
við áttum tal við, sögðu okkur, að mörg dag-
blöðin hefðu að vísu þyrlað upp talsverðum
áróðri á móti Islendingum í sambandi við
skilnaðarmálið, en sá áróður hefði ekki rist
djúpt í huga danskrar alþýðu og eitt dag-
blaðið, þ. e. „Land og Folk“, blað danskra
kommúnista, hafi ávallt verið sanngjarnt í
garð íslendinga.
Þriðjudaginn 9. júlí buðu Islendingafélagið,
Dansk-Islandsk Samfund og Islenzka stúd-
entafélagið okkur í ferðalag til Norður-Sjá-
lands. Lagt var af stað um morguninn í bif-
reiðum.
Á leiðinni var komið við í kirkjugarði
nokkrum, en þar er grafinn hópur danskra
16
ættjarðarvina, sem Þjóðverjar myrtu alla í
einu.
Lögðum við blómsveig á grafreit þeirra,
og flutti rektor við það tækifæri snjallt
ávarp til minningar um hinar föllnu hetjur.
Var síðan ferðinni haldið áfram og stað-
næmzt aftur hjá hinni fornu konungshöll,
„Frederiksborg". Er þetta stór bygging og
að innan skrýdd fjölda listaverka. Hádegis-
verður var snæddur í veitingahúsi á baðstað
nokkrum við sjó, og notuðu þá sumir tæki-
færið og fóru að synda í sjónum, sem var
volgur, enda var heitt í veðri.
Gott þótti okkur hið danska „Smörrebröd“
(smurt brauð með miklu áleggi), og góður
er danski bjórinn, Carlsberg og Tuborg.
Síðar um daginn komum við til Kronborg-
ar, sem er kastali mikill við Eyrarsund. Fór-
um við upp í stærsta turn kastalans og
nutum þaðan góðfe útsýnis yfir nágrenni hans.
Var síðan gengið um salarkynni kastalans og
hann skoðaður nánar.
Ennfremur var farið niður í dýflissu, sem
er í undirgöngum kastalans og notuð var
fyrr á tímum.
Er við höfðum lokið við að skoða kastal-
ann, var ferðinni haldið áfram til Kaup-
mannahafnar.
Staðnæmst var í „Dyrehavsbakken“, sem
er í einu úthverfi borgarinnar, og þar fórum
við í útileikhús. Síðan fóru flestir í Tivoli í
„Dyrehavsbakken", og skemmtu mennsérþar
eftir öllum kúnstarinnar reglum í hringekj-
um, í draugalestum (en það voru vagnar,
sem fóru inn í mvrkragöng, þar sem voru
alls konar tæki til að gera menn hrædda),
á danspöllum o. s. frv.
Þegar einn stúdentanna kom á einn af
hinum mörgu dansstöðum, sem þarna eru,
vakti hin hvíta stúdentshúfa hans þegar
mikla athygli, og ávörpuðu hann þá nokkrir
Danir, er sátu við borð, og spurðu hann,
hvaðan hann væri. Er þeir heyrðu, að hann
væri íslendingur, buðu þeir honum samstund-
is að fá sér sæti og þiggja veitingar, og tók
stúdentinn boði þeirra.
Tóku þeir þá að spyrja um ísland og Is-
lendinga, og kváðust þeir ekki hafa búizt við,
SKÓLABLAÐIÐ