SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Side 15

SunnudagsMogginn - 24.01.2010, Side 15
24. janúar 2010 15 er einfaldlega að athuga hvort allt sé eins og það á að vera. „Fyrir ein- staklinga eins og son minn jafnast heimsókn til kvensjúkdómalæknis á við að láta leiða sig til aftöku. Hann getur ekki einu sinn horft sjálfur á kynfæri sín og tekur ekki í mál að ein- hver ókunnugur geri það. Hann fór þá til kvensjúkdómalæknis í viðtal en ekki skoðun og ég stóð með honum í því. Þá átti líka að athuga hvort hægt væri að stöðva blæðingar en sökum þess að hann er með svo mikið af karlhorm- ónum fær hann ekki blæðingar nema á nokkurra mánaða fresti þannig að þetta hefur ekki verið neitt mikið vandamál. Brjóstin hafa verið miklu verri,“ segir móðirin. Eldri kynslóðin kemur á óvart Þó að greiningin á barninu hafi ekki komið foreldrunum algjörlega í opna skjöldu hafa þau kviðið því að ræða þetta við fjölskyldu og vini. „Það var kannski helst að maður hugsaði að eldri kynslóð karla ætti erfiðast með þetta, eins og pabbi minn og tengda- pabbi og afinn, það er að segja langafi stráksins míns. Kvenfólk virðist alltaf eiga auðveldara með svona breytingar og tekur einstaklingi bara sem ein- staklingi og skilgreinir hann ekki endi- lega út frá kyni. En svo koma karl- mennirnir manni á óvart og pabbi minn sagði bara: „Þetta er ekkert mál.“ Sú yngsta er hvort sem er nógu bleik fyrir öll þrjú börnin og ég held að hann hafi verið fyrstur til að taka upp karlmannsnafnið. Þegar við töluðum við tengdapabba þá sagði hann strax: „Já, ég var nú alveg búinn að láta mér detta þetta í hug.“ Þá hafði sonur okk- ar verið hjá afa sínum í sveit í mánuð að sumri og þegar hann fylgdist með honum þar sá hann ekkert stelpulegt við hann,“ segir móðirin. Skólafélagarnir hafa alla jafna ekki verið barninu erfiðir og flestir kenn- ararnir hafa reynst fjölskyldunni vel. „Hann er mjög félagslega sterkur og á mikið af vinum og einn besta vin sem er árinu eldri en hann. Sá strákur hef- ur alltaf litið á son minn sem strák og finnst þetta engu máli skipta. En þegar það fór að verða vinsælt að gista hjá vinum sínum lentum við foreldrarnir í voðalegu basli. Sérstaklega þegar hann komst á unglingsár og varð kynþroska. Við foreldrarnir hugsuðum með okkur að við værum kannski ekki tilbúin að láta fjórtán ára dóttur okkar gista hjá vini sínum sem er einu ári eldri. Svo þegar við ræddum þetta við hann þá sagði hann bara: „Oj mamma þú ert ógeðsleg, af hverju ertu að hugsa svona?“ Þessi hugsun kemst ekki einu sinni að hjá þeim því þeir eru bara tveir strákar og í dag gista þeir alveg hvor hjá öðrum,“ segir hún. Barnið hefur ætíð búið yfir lík- amlegum og andlegum styrk. Viðbrögð við áreiti hafa samt stundum verið vandamál og hefur honum reynst erfitt að halda aftur af sér að beita hnef- unum. „Þótt það séu auðvitað kolröng viðbrögð hjá honum hefur þetta líka stundum hjálpað honum því hann verður ekki undir og getur alltaf svar- að fyrir sig, ef ekki með orði þá með hnefanum. Hann er svolítið eins og Lína langsokkur, sterkasta stelpa í heimi. Kannski er Lína langsokkur bara strákur og Emil í Kattholti ofvirk- ur,“ segir móðirin og hlær. Einfaldir hlutir eins og að geta farið í skólann í strákafötum, að geta átt kærustu og geta farið í sund ber að of- an skipta öllu máli hjá barninu og allar ákvarðanir er varða framtíðina hvíla á herðum foreldranna. „Hann lifir bara í núinu eins og aðrir unglingar gera. Ef ég spyr hann til dæmis hvort hann langi ekki til að eignast börn, þá svarar hann bara: „Ha, jújú, kannski seinna. En mig langar ekki til að verða mamma, mig langar bara til að verða pabbi.“ Þá lendir maður í því að spyrja spurninga sem eldri einstaklingur sem gengur í gegnum sama ferli og sonur minn getur sjálfur spurt,“ segir móð- irin. Ruglast enn á nöfnunum Um nafnabreytinguna og kynjabreyt- ingu í fornafnanotkun segir móðirin: „Það er svo stutt síðan við skiptum yf- ir en erum búin að nota kvenmanns- nafn í 15 ár. Við ruglumst því mjög oft. Þessi breyting er örugglega miklu erf- iðari fyrir foreldrana og eldri kynslóð- ina en börnin. Þegar við tölum við hann reynum við að minna okkur á að nota karlkynsfornöfn og nýja nafnið. En við vorum einmitt í Smáralindinni um daginn og pabbi hans sagði óvart: „Æ, getur hún ekki ákveðið sig.“ Þá fengum við ansi grimmt augnaráð svo ég reyndi að koma til bjargar og sagði hátt: „Nei hann á eitthvað erfitt með það.“ Við vorum líka í verslun nú ný- lega þegar yngri bróðirinn kallaði ítrekað á þann eldri með kvenmanns- nafninu. Hann svaraði hvorki né leit á þann yngri fyrr en hann notaði karl- mannsnafnið svo þetta fer smám sam- an að síast inn. Sá yngri sagði reyndar um daginn: „Fyrst hann má skipta um nafn, hvers vegna má ég þá ekki heita Spiderman?“ Ég sagði síðan við eldri son minn: „Hvernig heldurðu að þér myndi ganga að kalla mig pabba? Þú myndir örugglega ruglast einhvern tímann.“ Þá fór hann bara að hlæja og hann skilur alveg að þetta tekur smá- tíma.“ Móðirin er þakklát svo mörgum sem hafa lagt henni og fjölskyldunni lið; læknum, sálfræðingum, fjölskyldu og vinum, og segist enn ekki hafa fengið neikvæð viðbrögð hjá þeim sem hún hefur rætt þetta við. Eins er hún þakk- lát fyrir það hversu barn hennar er karlmannlegt. „Hann er svo stráksleg- ur í útliti, vexti og fasi og það hjálpar auðvitað mjög mikið. Þetta er örugg- lega hræðilega erfitt fyrir þá sem glíma við sömu tilfinningar og sonur minn en eru mjög kvenlegir. Mér finnst líka eins og margir hafi áhyggjur af því að ég upplifi að ég sé að missa dóttur mína. Svo er alls ekki en mögulega er þetta auðveldara fyrir mig af því að ég á eina sem er svo svakalega bleik. Ég vonast til að þessi leiðrétting á kyni verði til þess að hann verði sáttur við tilveru sína og það nægir mér.“ ’ Fyrir einstak- linga eins og son minn jafnast heimsókn til kven- sjúkdómalæknis á við að láta leiða sig til af- töku. Hann getur ekki einu sinn horft sjálfur á kynfæri sín og tekur ekki í mál að einhver ókunnugur geri það.“ Morgunblaðið/Golli

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.