SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 6
6 2. maí 2010
Ivica Olić var í haust fenginn til Bayern frá Hamborg þar sem hann var
með lausan samning og stuðningsmenn HSV, sem fylgdust með því
hvernig hann gaf allt sitt í hverjum leik, botna enn ekki í því hvers vegna
hann var látinn fara. Til Hamborgar kom hann frá ZSKA Moskvu. Olić er
þrítugur að aldri og hefur leikið með átta liðum á undanförnum 16 árum.
Fyrst lék hann fyrir Marsonia, sem er í fæðingarbæ hans, Davor, tvö þús-
und manna bæ skammt frá Zagreb. 1998 til 2000 var hann hjá Herthu í
Berlín, en sneri aftur til Marsonia. 2001 fór hann til NK Zagreb, skoraði
21 mark í 28 leikjum og liðið varð deildarmeistari 2002. Næsta ár var
hann í herbúðum Dinamo Zagreb og aftur varð hann meistari. Síðan var
förinni heitið til Moskvu þar sem hann varð þrívegis deildarmeistari, bik-
armeistari tvisvar, ofurbikarmeistari tvisvar og sigurvegari í UEFA-
keppninni einu sinni.
Farandverkamaður
á fótboltavellinum
Reuters
Ivica Olić hjá
Bayern slær
Manchester
United út á Old
Trafford.
Þ
að orð hefur ekki farið af
Ivica Olić að hann leiki
leiftrandi knattspyrnu.
Hann er frekar talinn fót-
gönguliði en einn af æðstu lista-
mönnum hinnar göfugu íþróttar.
Hans kostir eru þrautseigja og
vinnusemi og þeir eru sjaldnast efni
í uppslátt og æpandi fyrirsagnir. Nú
er hins vegar svo komið að ekki
verður lengur horft fram hjá hinum
lúsiðna, hljóðláta Króata, hvað sem
líður stjörnum Bayern á borð við
Frakkann Frank Ribéry og Hollend-
inginn Arjen Robben.
Dregur vagninn upp úr svaðinu
Hvað eftir annað hefur Olić skorað
lykilmörk fyrir Bæjara og hann er á
stóran þátt í því að liðið er komið í
úrslit í meistarakeppni Evrópu.
Olić var ekki lykilmaður í áætl-
unum Bæjara í fyrir yfirstandandi
keppnistímabil. Hann átti að vera
fjórði kostur á eftir sóknarmönn-
unum Mario Gomez, Miroslav Klose
og Luca Toni. En það fór á annan
veg. Meiðsli og aðrir þættir urðu
þess valdandi að hann fékk hvað
eftir annað tækifæri og það hefur
hann nýtt sér svo um munar.
Münchenarblaðið Süddeutsche
Zeitung kallaði hann í nóvember
þegar Bæjarar voru í tómum vand-
ræðum „knattspyrnumann augna-
bliksins, manninn, sem gæti dregið
vagninn upp úr svaðinu“. Þessi orð
virðast ætla að rætast. Bæjarar eru
efstir í deildinni um þessar mundir
og gætu hæglega orðið meistarar.
Olić veitti þeim neistann.
Robben og Olić hafa verið menn-
irnir á bak við velgengni Bayern í
meistaradeildinni. Þegar Robben
skorar er eins og lögmál eðlisfræð-
innar hafi verið numin úr gildi. Olić
flækir ekki málin, hjá honum er
einfalda leiðin áhrifaríkust. Hann
skoraði sigurmarkið í 1-0 sigri á
Haifa í riðlakeppninni. Þegar mögu-
leikar Bayern virtust úti í viðureign-
inni gegn Juventus Torino laumaði
Króatinn inn marki. Í fyrri leiknum
gegn Manchester United var staðan
jöfn, 1-1, þegar komið var fram yfir
venjulegan leiktíma. Þá stal Olić
boltanum af Patrice Evra og setti
hann fram hjá Edwin van der Sar í
Markinu, 2-1. Í seinni leiknum voru
Bæjarar komnir 3-0 undir á Old
Trafford þegar Olić tókst með harð-
fylgi að vinna boltann í vítateig Man-
chester United og skora úr þröngu
færi. Síðar í leiknum skoraði Robben
eitt af sínum undramörkum og Bæj-
arar komust áfram þrátt fyrir 3-2 tap
á mörkum skoruðum á útivelli.
Í undanúrslitunum var Lyon and-
stæðingur Bæjara og reyndist auð-
veld bráð. Í seinni leiknum skoraði
Olić fullkomna þrennu – með vinstra
fæti, hægra fæti og skalla – og sam-
anlagt sigruðu Bæjarar 4-0. Þegar
Olić skoraði skallamarkið mátti sjá
að blæddi úr höfði hans. Þegar lækn-
ir Bayern ætlaði að líta á sárið ýtti
hann honum frá sér og vildi greini-
lega ekki fara af velli. „Ég vildi ekki
fara út af vegna þess að ég hafði á til-
finningunni að ég gæti skorað nokk-
ur mörk í viðbót,“ sagði hann eftir
leikinn.
Aðeins einn leikmaður hefur áður
skorað þrennu í undanúrslitum í
meistaradeildinni, Alessandro Del
Piero fyrir Juventus gegn Monaco
1998.
Leikmaðurinn næstur markinu
„Því miður, en hann skoraði mörkin
af því að hann var leikmaðurinn
næstur markinu,“ var haft eftir Louis
van Gaal, þjálfara Bayern, sem getur
verið ákaflega spar á hrósið, eftir
leikinn. En þó tókst fótboltablaðinu
Kicker að lokka hrós af vörum þjálf-
arans: „Þrjú mörk, það er frábært.
Olić lék frábærlega.“
Sjálfur átti Olić, sem venjulega er
fljótur að forða sér í faðm fjölskyld-
unnar eftir leiki, ekki í vandræðum
með að tjá sig eftir leikinn í Lyon:
„Þetta er fegursti dagur lífs míns!“
Með þrennunni er Olić kominn í
sjö mörk í meistarakeppninni, aðeins
einu marki á eftir Messi, sem er úr
leik. Olić fær hins vegar tækifæri til
að kóróna frábært tímabil þegar Bay-
ern mætir lærisveinum hins hógværa
og lítilláta Josés Morinhos í Inter
Mílanó á Bernabeau leikvanginum í
Madríd 22. maí.
Þrautseigur
og þindarlaus
Króatinn Ivica Olić er
neistinn í fótboltaliði
Bayern München
Ivica Olić fagnar marki gegn Lyon í Meistaradeild Evrópu á þriðjudag.
Reuters
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
„Nú er þessi ljóti and-
arungi fegursti svanur
Bæjara,“ sagði í
spænska blaðinu Sport
um frammistöðu Ivica
Olić gegn Lyon. Ítalska
blaðið Corriere dello
Sport sagði að hann
væri „óstöðvandi“ og
Times í London sagði að
Olić með sinn „sam-
anrekna líkama, vinnu-
semi og ósérhlífni eins
og útgáfa Balkansakag-
ans af Carlosi Tevez“.
Fegursti svanur Bæjara