SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 22
22 2. maí 2010
var svo send um gervihnött til Wash-
ington DC því ekki gafst tími til að senda
þáttinn á spólu,“ sagði Anna Dís á
fimmtudagskvöldið.
Jóhann fór í vikunni í fjölda viðtala við
dagblöð og sjónvarpsstöðvar hvaðanæva
úr Bandaríkjunum vegna frumsýningar
myndarinnar. Hann segir mikið púður
hafa farið í að leiðrétta misskilning um
ástandið á Íslandi og fullvissa fólk um að
óhætt væri að ferðast til landsins. „Svo er
að sjálfsögðu spurt um hvernig eigi að
bera fram orðið Eyjafjallajökull! Hver
einasti fjölmiðlamaður sem talaði við mig
í dag spurði um það,“ sagði hann.
Fleiri verkefni fyrir National Geographic
„Við höfum unnið nokkur verkefni fyrir
National Geographic í gegnum tíðina. Er-
um til dæmis að vinna að mynd fyrir
stöðina um asíska fílinn en settum hana á
bið þegar jarðhræringarnar byrjuðu. Svo
erum við að vinna að annarri sem verður
gott framhald af þessari nýjustu; þar
verður fjallað um jarðfræði Íslands og
farið frekar í saumana á eldfjöllunum
okkar, eldvirkni og fleiru. Hún verður
sýnd síðar á þessu ári, og eftir það snúum
við okkur að fílamyndinni aftur.“
Profilm seldi National Geographic
myndina Living on the Edge í fyrra og
þegar er búið að sýna hana á stöðinni.
Þar er íslensk náttúra og mannlífið í for-
grunni. Fjallað um náttúruöflin og glímu
fólksins við þau, um dýralífið og auð-
lindirnar. „Sviðið er janúar á Húsavík. Í
þeirri mynd er reynt að lyfta mannorði
Íslendinga og ímynd Íslands svolítið! Við
náðum að selja þeim þá mynd um leið og
hún var tilbúin.“
Sú mynd fer væntanlega víða því þau
sömdu við alþjóðlegt dreifingarfyrirtæki
vegna hennar til næstu 20 ára. „Það er
gaman að segja frá því að við reyndum að
selja Ríkissjónvarpinu þá mynd en þar á
bæ þótti hún ekki nógu góð.“
Jóhann stofnaði fyrirtækið Profilm
fyrir 20 árum og hefur rekið það síðan.
Hann lærði kvikmyndagerð í Bretlandi
og vann þar í nokkur ár. Fór víða og gerði
fjölda heimildamynda, fyrir Discovery og
fleiri stöðvar.
Anna Dís hóf störf hjá Profilm fyrir sex
árum en vann í um það bil áratug þar á
undan í London við gerð heimildamynda
og sjónvarpsþátta, fyrir BBC, Channel 4
og Discovery.
Profilm vinnur mikið fyrir erlendar
sjónvarpsstöðvar og kvikmyndagerð-
armenn og skipuleggur tökur fyrir út-
lendinga á Íslandi.
Þau segja róðurinn erfiðan hjá mörgum
íslenskum kvikmyndagerðarmönnum
um þessar mundir, en eru ánægð með
lífið þessa dagana. Eftir því sem næst
verður komist er þetta í fyrsta skipti sem
heimildarmynd tekin af Íslendingum er
frumsýnd á besta sýningartíma á sjón-
varpsstöð National Geographic. Að ná
þeim áfanga er draumur sem þau hafa átt
lengi „og það er auðvitað æðislegt þegar
hann verður að veruleika. Það er sér-
staklega ánægjulegt að við skulum fram-
leiða myndina algjörlega sjálf; við erum
ekki undirverktakar hjá neinum, heldur
er myndin algjörlega íslensk.“
Alla langar til Íslands!
Jóhann segir að til langframa muni eld-
gosið örugglega hafa góð áhrif fyrir Ís-
land. „Skammtímaáhrif eru slæm en ekki
má gleyma því að allt umtal er gott. Þetta
hefur verið rosalega mikið í fréttum og
fólk er ótrúlega vel inni í málum. Það
segir sína sögu þegar venjulegur bensín-
afgreiðslumaður í Bandaríkjunum veit
um eldgos á Íslandi.“
Anna Dís flaug vestur um haf með
spólurnar á dögunum og þegar hún sagði
tollverði í Boston, aðspurð, hvað hún
hefði í farteskinu var það fyrsta sem
hann sagði: „Við skulum vona að Katla
fari ekki að gjósa líka!“
Anna Dís var fljót að benda honum á,
eins og öðrum, að ástandið væri gott á Ís-
landi þrátt fyrir allt. „Þetta hefur verið
æðisleg landkynning þó svo áhrifin verði
slæm fyrir ferðaþjónustuna í sumar. Alla
sem ég hef talað við hér úti langar til Ís-
lands!“
Gosið í Eyjafjallajökli er í algjörum for-
grunni en síðan fléttast inn í myndina
saga af kvikmyndagerðarfólkinu. „Við
tókum myndir af hópnum uppi á jökli og
í öskunni eftir að hún dreifðist yfir Suð-
urland og þeim fannst sterkt að hafa það
með.“
Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur
hefur starfað með Profilm hópnum að
gerð myndarinnar. „Það er mikið talað
við Harald í myndinni og hann verður
líka í hinni. Hann er hafsjór fróðleiks og
samstarfið við Harald hefur verið stór-
kostlegt.“
Þau segja raunar ómetanlegt hve
margir voru þeim innanhandar og segja
alla hafa brugðist einstaklega vel við
bónum þeirra; nefna t.d. Háskóla Ís-
lands, Veðurstofuna og Landhelgisgæsl-
una.
„Starfsmenn hennar hafa verið frá-
bærir og eiga mikinn heiður skilið. Þeim
eru gerð mikil skil í myndinni og ítarlega
fjallað um nýja tæknibúnaðinn í flugvél
Gæslunnar, TF-Sif. Það er frábært að geta
komið því að vegna þess að sá búnaður
veitti vísindamönnum algjörlega nýja
sýn á þetta gos.“
Eyjafjalljökull á fyrsta degi gossins. Myndin er tekin úr þyrlu sem flutti starfsmenn Profilm upp á jökul Gunnar Konráðsson, Jóhann Sigfússon og Sigtryggur Baldursson.