SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 43

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 43
2. maí 2010 43 Gatan mín Þ að er gaman að byggja sér hús og vera meðal frumbyggja í nýju hverfi. Raunar einkennist mjög margt hér í þorpinu af brag landnemanna enda á Þorlákshöfn sér ekki langa sögu. Fyrstu íbúðarhúsin hér voru reist um 1950 eða um það leyti sem útgerð hér hófst. Áhrifa frumbyggjanna hefur því notið við allt fram undir þetta,“ segir Jón Páll Kristófersson sem býr með fjölskyldu sinni við Pálsbúð í Þorlákshöfn. Gatan er ein af þeim nýjustu í byggðarlaginu og er hluti af hverfi í suðvesturhluta byggðarlagsins sem var reist í uppsveiflu áranna fyrir hrun. Þorláks- hafnarbúar eru í dag alls um 1.570 talsins. Söguleg minni eru í hávegum höfð í byggðinni sem er hluti af sveitarfélaginu Ölfusi. Þegar útgerð vélbáta í Þorlákshöfn hófst fljótlega uppúr seinna stríði voru bátarnir nefndir eftir Skálholtsbisk- upum og var sá sá siður lengi við lýði. Þegar svo kom að því að velja götunum í hverfinu nýja nafn var róið á þessi sömu mið. Biskupsbúðir er tengigatan inn í hverfið og út frá henni liggja íbúðagöturnar Brynjólfsbúð, Finnsbúð, Gissurarbúð, Ísleifsbúð og Klængsbúð. Yst er Páls- búð, þar sem Jón Páll býr ásamt eiginkonu sinni, Ólínu Þorleifsdóttur og þremur dætrum þeirra. Ell- efu hús eru þegar risin við Pálsbúðina og eru þau í sitthvorum enda götunnar. „Nei, ég get ekki sagt að það sé mikill samgangur milli fólks hér enda búa hér ekki svo ýkja margir enn sem komið. Hér er aðeins búið í fimm húsum af níu sem eru í sitthvorum götuendanum. Samfélagið í þessu nýja hverfi er samt óðum að mótast og taka á sig svip. Það sem hefur alltaf einkennt Þorláks- höfn er að hér býr mikið af ungu fólki; þetta er lif- andi fjölskyldusamfélag. Hér er góður grunnskóli og íþróttaaðstaða sem íbúarnir nýta sér mjög mikið. Það líður varla sá dagur að við fjölskyldan förum ekki í íþróttamiðstöðina.“ Jón Páll er uppalinn á Selfossi en fluttist í Þor- lákshöfn árið 1998 eftir að hann lauk námi í rekstr- ar- og viðskiptafræðum við Háskólann á Akureyri. „Ég kunni strax vel við mig hérna og náði að festa rætur. Get svo sannarlega sagt að hér sé minn heimavöllur,“ segir Jón Páll sem er rekstrarstjóri Ramma hf. Meginstarfsemi þess fyrirtækis er á Siglufirði og Ólafsfirði en umfangsmikilli starfsemi er haldið úti í Þorlákshöfn, vinnslu á flatfiski, karfa og humri. „Auðvitað er svolítið berangurslegt hérna þó svo að mikill árangur hafi náðst á síðustu árum við að græða upp nágrenni byggðarinnar hér í Þorláks- höfn. Mér finnst þetta umhverfi hér samt ægifagurt og þegar veður er gott er hér frábært útsýni, upp til fjalla og út á sjó. Og úr Pálsbúð sést vel í Selvogs- heiðina og Heiðina há sem svo er nefnd. Ég er ánægður í Þorlákshöfn og vil vera hérna.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Landnemarnir í biskupahverfinu Á undanförnum árum hafa verið lagðar margar skemmtilegar gönguleiðir hér um nágrennið (1). Héð- an er því ekki langt að fara og fá sér hreint loft eða liðka sig aðeins eftir langan vinnudag. Úr því nýja hverfi þar sem við búum er aðeins örstuttur spotti í grunnskólann (2) hér þar sem dætur okkar eru við nám. Í Þorlákshöfn er mikill metnaður í skólamálum og sama gæti ég sagt um íþróttirnar: aðstaða til iðk- unar þeirra (3) er alveg fyrsta flokks. Annar kostur við Þorlákshöfn er svo hve staðurinn er miðsvæðis. Héð- an er ekki lengi verið að fara til Þorlákshafnar eða á Selfoss og innanbæjar eru allar vegalengdir mjög stuttar. Þetta og allt hitt gerir Þorlákshöfn að bæ sem í mínum huga hefur afskaplega marga góða kosti. Uppáhaldsstaðir Pálsbúð Bisk upab úðir Selvo gsbra ut Egils brau t Sam byggð Hafnarberg Hafnarberg 1 2 3 M atur og munúð tóna ansi hreint vel saman og ekki að ástæðulausu. Það að borða tengist jú sjálfri lífshvötinni, við deyjum ef við fáum ekki mat. Og sama er að segja um samfarir karls og konu, tilgangur þeirra í líffræðilegum skilningi er að viðhalda mannkyninu. Við þurfum því að gera hvort tveggja til að halda lífi: Matast og makast. En að borða er ekki einvörðungu athöfn til að fylla belginn og seðja næringarþörf. Ef vel er að verki staðið er það að borða ein almesta nautn sem hægt er að upplifa. Hvur hefur ekki kynnst því að snæða svo unaðslega góðan mat að það jaðrar við netta nægju?. Fólk fær gæsahúð og stynur af sælu þegar það lætur ofan í sig alvöru lostæti. Og einmitt þess vegna er mjög gott þegar þetta tvennt fer saman: Unaðsmatur og unaðsstundir. Þetta er ástæðan fyrir því að þegar einhver vill ná ástum einhvers, þá flautar viðkomandi gjarnan til matarboðs. Ef vel lukkast með matargerðina og hún er öll framkvæmd af mikilli ást og nautn, er næsta víst að viðkomandi nær um- svifalaust tökum á þeim sem graðkar í sig gómsætið. Matarást er mjög góður undanfari annarrar ástar. Svo þróast þetta líka vel saman. Allur gangur er á því hverslags matur hverjum finnst eró- tískur. Ostrur eru til dæmis það sem margir nefna, kannski vegna þess að þær eru slímugar, minna á einhvern hátt á kynfæri. Aðrir nefna blóðugan mat, við það að borða hann nær fólk tengingu við dýrið í sér. Sama er að segja um hrámeti eins og sushi, fegurðin spilar þar líka stóra rullu og bragðið gælir við tungu og góm. Sumir tengja sushi jafnvel við geisjur og fá þá eitthvað út úr tilhugsuninni um undirgefni. Svo er það rándýri eðalmaturinn, til dæmis kavíar, þar sem hvert gramm er syndsamlega dýrt, það eitt örvar sumt fólk, vekur upp kenndir sem tengjast völdum. Svo getur verið sérlega skemmtilegt og æsandi að leika sér með matinn og hver og einn finnur sinn tón í því. Að lepja ískalt kampavín úr nafla er ágætis innlegg í forleik. Skrifaðar hafa verið ótal bækur um tengingu erótíkur og matar og til eru margar kvikmyndir sem koma inn á þennan galdur. Nægir þar að nefna eðalræmur eins og Kryddlegin hjörtu, en í þeirri mexíkósku mynd segir frá henni Titu, en maturinn sem hún býr til hefur nánast yfirnáttúruleg áhrif á þá sem borða hann. Stundum er hann svo lostavekjandi að allar hömlur falla af matargestum. Og allar þessar yfirþyrmandi tilfinningar hennar Titu sem færast frá hjartanu yfir í fingurna sem búa til matinn, allt var það vegna ástar hennar á honum Pedro, sem hún fékk ekki að eiga. Einnig er mjög eftirminnilega í þessu samhengi kvikmynd- in Súkkulaði sem sænski leikstjórinn Lasse Hallström gerði með þeim Johnny Depp og Juliette Binoche í aðalhlut- verkum. Stúlkan, sem hin undurfagra Binoche leikur, býr einmitt til súkkulaði sem vekur heldur betur kynhvötina. Skundið nú lesendur góðir út á næstu leigu og gæðið ykkur á þessum lostavekjandi og skemmtilegu kvikmyndum. Að lepja vín úr sæt- um nafla Stigið í vænginn Kristín Heiða khk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.