SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 44

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 44
44 2. maí 2010 Í mars síðastliðnum söng hin rússnesk- ættaða Regina Spektor ábreiðu af laginu No Surprises með Radiohead á góðgerðartón- leikum í New York borg. Voru tónleikarnir til styrktar bágstöddum á Haítí eftir jarðskjálft- ann sem reið þar yfir í byrjun árs. Ábreiðan þóttist heppnast það vel að hún hefur nú verið gefin út í veftónlistarbúðinni itunes og mun allur ágóði af sölu lagsins renna til félagsins Læknar án landamæra. Lagið kom út á plötunni OK Computer sem nýlega var kosin fimmta besta plata síðasta aldarfjórðungs af tónlistarblaðinu Spin. Radiohead ábreiða frá Reginu Spektor Styrkir Lækna án landamæra. Ljósmynd/Chris Crisman Skyldi Damon Albarn vera með hlutverk í nýju óperunni sinni? Damon nokkur Albarn forsprakki hljóm- sveitanna Blur og Gorillaz virðist eiga mjög auðvelt með að finna sér ný verkefni þessa dagana. Það nýjasta er samstarf hans við Alan Moore, en þeir vinna nú að því að skrifa aman óperu um ævi Englend- ingsins John Dee. Það vita sennilega ekki margir hver þessi John Dee var, en sam- kvæmt veraldarvefnum var hann fræðimað- ur í Englandi á 15. öld sem eyddi síðustu þrjátíu árum ævi sinnar í að reyna að ná sambandi við engla. Albarn segir John Dee hafa verið einn þeirra sem áttu hugmyndina að breska heimsveldinu og því ætti þessi merki mað- ur skilið að fá sína eigin óperu. Ópera frá Damon Al- barn um fræðimann Í síðustu viku lést rapparinn magnaði Guru, sem móðir hans nefndi hann Keith Elam, tæp- lega fimmtugur að aldri. Bana- mein hans var blóðkrabbi. Guru var helmingur hiphop- sveitarinnar Gang Starr, rímnasmiðurinn, en DJ Premier sá um taktinn. Gang Starr var upp á sitt besta fyrir áratug eða svo og skífa sem hér er gerð að umtalsefni kom út 1991. Þá voru þeir félagar búnir að vinna saman í um tvö ár. Guru stofnaði sveitina reyndar nokkru áður, en það gerðist ekkert af viti fyrr en þeir náðu saman félagarnir. Fyrsta skífan sem þeir gerðu saman Guru og DJ Premier, No More Mr. Nice Guy, kom út 1989 og næst þar á eftir var Step in the Arena. Það var býsna mikið að gerast í hiphopi á þessum tíma, bófarappið frá vesturströndinni fór halloka fyrir veigameiri rímum og það var líka sitthvað að gerast í lagasmíðunum sjálfum, því hvert menn sóttu hugmyndir og hljóðbúta. Dr. Dre bjó til G Funk vest- ur í Los Angeles, Wu-Tang Clan bjó til bíórapp í New York og á svipuðum slóð- um voru Gag Starr og fleiri að leita að töktum og lykkjum í djasstónlist Djassstemmningin er reyndar ekki eins sterk á Step in the Arena og á öðrum Gang Starrs skífum á tíunda áratugnum, en víða er að finna hugmyndir sem sóttar eru í hard bop djass. Lögin eru fín á plötunni, en rímurnar frá Guru lyfta henni á hærra plan. Hann var með gríðarlega gott flæði og fína rödd og geislaði af honum einlægnin. Hvað rímurnar varðar er hann líka í sérflokki, fjallar um lífið og tilveruna æsingalaust og með áherslu á það að hver sé sinnar gæfu smiður. Vegur skífunnar hefur vaxið frá því hún kom út og núorðið er hún almennt talin með 100 bestu skífum rappsögunnar og sumir ganga svo langt að skipa henni í efsta sætið, þó ekki verði það gert hér. Guru átti eftir að hafa umtalsverð áhrif á rappsöguna með næstu verkum sínum, þá aðallega Jazzmatazz-skífunum sem seldust mjög vel í Evrópu. arnim@mbl.is Poppklassík Step in the Arena – Gang Starr Hver er sinnar gæfu smiður M artha þetta er bróðir þinn, endi- lega hringdu í mig til baka sem fyrst,“ syngur Rufus Wainw- right til systur sinnar í laginu „Martha“ á sinni fyrstu hljóðversplötu í meira en þrjú ár. Í laginu er Wainwright að reyna að ná í systur sína í veikindum foreldra þeirra, en móðir þeirra, fólk-söngkonan Kate McGar- rigle, lést fyrr á þessu ári. Segir hann að tím- inn sé naumur og að þau geti ekki lengur verið reið út í hvort annað. Svo kraftmikill er text- inn við píanóundirleik hans að ekki er óhugs- andi að tár renni niður andlit jafnvel hörðustu manna þegar lagið er spilað. Fyrsta plata Wainwright kom út árið 1998 og ber hún nafn hans. Fóru tvö ár í að taka upp plötuna og þegar upp var staðið voru tilbúin 56 lög. Segir sagan að upptökurnar hafi kostað í kringum 700.000 bandaríkjadali sem verður að teljast nokkuð mikið fyrir listamann að taka upp sína fyrstu plötu. Árið 2000 í um sex mánaða skeið bjó Wainwright á hinu fræga Chelsea-hóteli í New York þar sem hann samdi bróðurpartinn af annarri plötu sinni Poses sem kom út árið 2001. Á sama tíma átti hann við eiturlyfjavandamál að stríða. Sagði hann að þeir valkostir sem hann hafði á þeim tíma væru annaðhvort að fara í meðferð eða flytja inn til föður síns. Hann þyrfti einhvern til að öskra á sig og skamma og að faðir hans gæti vel uppfyllt það hlut- verk. Skömmu síðar náði vinur hans, söngv- arinn Elton John, að sannfæra hann um að meðferð væri eini kosturinn og þakkar Wa- inwright honum fyrir að gefa sér annað tæki- færi. Það er kannski furðulegt að segja að All Da- ys Are Nights: Songs for Lulu sé einföld plata. En á marga vegu er það satt. Á henni er Wa- inwright einn, aðeins vopnaður rödd sinni og flygli. Hann virðist þó ekki þurfa neitt meira til að bjóða hlustendum upp á það tilfinninga- þrungna hlaðborð sem platan í raun og veru er. Sú nálægt sem Wainwright nær að fram- kalla fær mann til að halda að hann sé heima í stofu spilandi, bara þú og hann. Nokkur laga plötunnar minna óneitanlega á lög úr uppfærslum stórsöngleikja frá því snemma á síðustu öld. Upphafslagið Who Are You New York?, er gott dæmi um það. Lagið er hálfgerður óður til New York-borgar og hinna mörgu andlita hennar. Sum þeirra taka fólki fagnandi hendi en önnur líta ekki einu sinni á fólk. Allt frá ljósadýrðinni við Times Square til kalda einmanaleikans sem finna má í sumum hliðargötum borgarinnar. Á einkatónleikum Liðin eru þrjú ár frá því að tónlistarmaðurinn Rufus Wa- inwright sendi frá sér sína síðustu plötu. Á nýrri plötu býð- ur Wainwright hlustendum upp á fallega einkatónleika. Matthías Árni Ingimarsson matthiasarni@mbl.is Rufus Wainwright á tónleikum í Háskólabíói. Morgunblaðið/Eggert Rufus er ekki eini meðlimur Wainwright fjölskyldunnar sem fékk tónlistarhæfileikana í sængurgjöf. Litla systir hans Martha hefur samhliða bróður sínum skapað sér gott nafn í tónlistarheiminum undanfarin ár. Foreldrar þeirra, Loudon Wainwright III og Kate McGar- rigle, voru báðir söngvarar en þau skildu stuttu eftir að Martha fæddist. Á sínum yngri árum voru Rufus og Martha í hljóm- sveitinni The McGarrigle Sisters and Family, ásamt móður og frænku sinni. Fóru þau í sitt fyrsta tónleikaferðalag þegar þau voru aðeins tíu og þrettán ára gömul. Rufus og móðir hans Kate. Wainwright fjölskyldan Tónlist Í nýlegu viðtali við tónlistarblaðið NME sagði Johnny Marr, fyrrverandi gítarleikari The Smiths, frá því að hann hefði tekið að sér að semja tónlistina fyrir kvikmyndina The Big Bang, í leikstjórn Tony Kratz. Marr sagði Kratz vera mikinn aðdáanda sveitarinnar The Healers sem Marr lék með 2000 til 2003 og þess vegna fengið hann til liðs við sig. Það er enginn annar en Antonio Banderas sem fer með aðalhlutverkið í myndinni, sem verður frumsýnd í haust.. Kvikmyndatónlist frá Johnny Marr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.