SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 40
40 2. maí 2010
Kaffi- og afmælisboð hljóta að vera
vinsæl hjá gestgjafa með þvílíkan bakk-
elsisáhuga og Steinar neitar því ekki.
„Fólk lætur alla vega vel af veiting-
unum,“ segir hann. „Maður getur líka
leyft sér að prófa ýmislegt skemmtilegt í
barnaafmælum, því krakkar eru ágætur
mælikvarði – ef þeir eru hrifnir af veit-
ingunum er maður á réttri leið.“
Hann segir þó mikilvægt að hafa
ákveðið jafnvægi í bakstrinum, því of
mikil sætindi geti orðið of mikið af því
góða. „Múffurnar eru missætar og ég hef
t.d. verið að prófa mig áfram með morg-
unverðarmúffur. Múffurnar eru amer-
ískar að uppruna og Bandaríkjamenn
borða þær mikið á morgnana, nema þá
É
g hef alltaf verið eitthvað að
bauka í matseld og það hefur
bara ágerst með árunum,“ segir
Steinar Júlíusson, sælkeri og
múffumeistari. „Þetta eins og sjúkdómur
því maður verður háður þessu.“
Steinar er alinn upp við mataráhuga,
bæði í fjölskyldu og hjá vinum, og sá
áhugi hefur smitast yfir á hann. „Um-
ræðuefnið í matar- og fjölskylduboðum
er gjarnan matur og sjálfur eyði ég mikl-
um tíma í alls kyns matarpælingar – að
skoða mataruppskriftir, tala um mat og
útbúa mat. Þannig að þetta er sérlegt
áhugamál.“
Áhugi Steinars kemur öðrum einnig til
góða. „Foreldrar mínir eiga það til að
biðja mig um að endurtaka rétti í boðum
hjá sér, sem þeir hafa fengið að smakka
hjá mér. Þannig að ég elda ekki bara fyrir
sjálfan mig heldur aðra líka.“
Það er ekki að heyra á Steinari annað
en að hann njóti þess að uppfylla slíkar
bónir. „Mér finnst rosalega gaman að
kafa ofan í hlutina og fara í svolitla rann-
sóknarvinnu fyrir matseld. Það er fátt
sem mér finnst leiðinlegra en að fá alltaf
það sama. Það er miklu skemmtilegra að
prófa eitthvað nýtt, s.s. nýtt hráefni og
nýjar aðferðir. Þegar mér er boðið í mat
hlakka ég mikið til að sjá hvað er í mat-
inn og oft er ég með nefið ofan í pott-
unum hjá gestgjöfunum.“
Smakkfundur með múffum
Steinar segir aðspurður að hann reyni
líka að vera frumlegur í hversdags-
matseldinni. „Maður verður eiginlega að
vera það, þótt maður hafi ekki alltaf úr
einhverjum frábærum hráefnum að spila.
Það er líka hægt að vera sniðugur og út-
sjónarsamur með að nýta það sem til er í
skápunum. Það er ákveðin áskorun.
Heima erum við ekki mikið í kjötdeild-
inni heldur meira í grænmeti og léttara
kjöti og þá sérstaklega fiski.“
Á hinn bóginn er Steinar gefinn fyrir
sætindi, ekki síst í formi eftirrétta og
bakkelsis ýmiskonar. Þannig hefur hann
þróað eigin tegund af muffins, sem hann
kallar Meistaramúffur og seldar eru á
tveimur kaffihúsum í borginni. „Það
byrjaði þannig að ég fór að prófa mig
áfram með að baka múffur og þróaði
mína eigin uppskrift út frá því. Það eru
ákveðin ákveðin lögmál sem gilda í þess-
um bakstri og þegar ég var farinn að
þekkja rútínuna fór ég að prófa ýmis til-
brigði af honum.“
Steinar starfar sem grafískur hönn-
uður og var einn af mörgum slíkum sem
misstu vinnuna í kjölfar kreppunnar. „Þá
fór ég að vinna í lausamennsku en lang-
aði að gera eitthvað öðruvísi meðfram
verkefnum sem ég var með. Mér datt í
hug að kynna múffurnar mínar fyrir
kunningja mínum, sem rekur veitinga-
staðinn Karamba. Þetta er bar og kaffi-
hús og þó þar væri til alls konar kaffi
vantaði eitthvað til að bjóða upp á með
kaffinu. Ég fór því með múffurnar mínar
á smakkfund með þessum kunningja
mínum sem féll alveg fyrir þeim og vildi
fá þær á kaffihúsið. Þetta eru ban-
anamúffur með sykur- og hnetutopp og
þær hafa verið þar í sölu síðan. Síðan
bættust við bláberjamúffur með spelt-
hveiti sem innihalda engar dýraafurðir.“
Á að vera sérstakt
Í framhaldinu bjó Steinar til ákveðna
umgjörð um baksturinn undir nafninu
Meistaramúffur og síðan hefur annað
kaffihús, Kaffifélagið, bæst í kúnnahóp-
inn. „Núna er ég aftur kominn í fulla
vinnu svo það er ágætt að hafa þetta sem
svona litla aukabúgrein. Ég er ekki að
baka þetta í miklu magni þannig að þetta
er ennþá viðráðanlegt. Mér finnst heldur
ekkert heillandi að þetta sé dreift út um
allt eins og einhver McDonalds keðja.
Þetta á að vera sérstakt.“
eru þær ekki eins sætar og annars. Á
móti eru þeir með svokallaðar „cupca-
kes“, sem er í rauninni múffa með kremi
á. Þannig að þetta skiptist svolítið í
tvennt. Múffur eru ekki endilega syk-
urhlaðið sætmeti heldur geta þær líka
innihaldið grófmeti á borð við hafra og
hnetur. Það eru í rauninni óteljandi
möguleikar.“
Með sæta fréttaþjónustu
Steinar heldur líka úti matarbloggi á
Miðjunni (www.midjan.is) undir yf-
irskriftinni Allt sætt að frétta. „Ég ákvað
að hafa það sérstakt að því leyti að skrifa
bara um sætindi, bakstur og eftirrétti.
Þangað hef ég verið að henda inn alls
Steinar Júlíusson er á heimavelli í eldhúsinu enda ástríðumaður þegar kemur að mat.
Bakar
og bloggar
sáttur
Steinar Júlíusson segir enga kvöð fylgja matseld
og matarpælingum sem drjúgur hluti af tíma
hans fer í. Fjölskylda hans og vinir hafa líka mik-
inn mataráhuga, svo umræðuefnið í veislum er
oft á eina lund.
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Múffuformin eru ómissandi við baksturinn. Steinar bakar í sérstökum muffinsbakka en þeir
sem eiga ekki slíkt margnota form geta notað þrjú pappírsform saman í staðinn.
Matur