SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 9
2. maí 2010 9
Engan bilbug er á Fatimu Bhutto að finna. „Veg-
urinn til réttlætis er langur og strangur,“ sagði hún
í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC, og í Twit-
ter-færslu lét hún þess getið að góðu fréttirnar
væru þær að heima í Pakistan hötuðu allir hana
ennþá.
Sjálfri var Benazir Bhutto kunnugt um kenningar
Fatimu. Skömmu áður en hún var myrt sagði hún
við blaðamann: „Hún er besta skinn og allir segja
að hún sé alveg eins og ég. Vonandi sér hún ljósið á
endanum.“
AFP
Synir Zulfikars Ali Bhuttos, Murtaza og
Shahnawaz, fæddust árin 1954 og 1958.
Þeir voru báðir í háskólanámi í Evrópu þegar
líflátsdómur var kveðinn upp yfir föður þeirra í
Pakistan árið 1977, Murtaza í Bretlandi og
Shahnawaz í Sviss. Eftir fráfall Bhuttos sóru
synirnir þess eið að hefna hans.
Sumarið 1985 fannst Shahnawaz látinn í
Nice í Frakklandi. Talið var að honum hefði
verið byrlað eitur. Enginn var dreginn fyrir dóm
en eiginkona Murtaza lá um tíma undir grun.
Þau skildu í kjölfarið.
Ellefu árum síðar féll Murtaza fyrir byssukúl-
um lögreglunnar í Karachi. Morðið á honum
er líka óupplýst.Nusrat og Zulfikar Ali Bhutto ásamt börnum sínum meðan allt lék í lyndi.
AP
Létust báðir við dul-
arfullar aðstæður
Benazir Bhutto fæddist 21. júní 1953 í Karachi í Pak-
istan. Hún var elsta barn Zulfikars Ali Bhutto, fyrr-
verandi forsætisráðherra Pakistans, og eiginkonu
hans, Nusrat. Föður hennar var steypt af stóli í bylt-
ingu hersins undir forystu Muhammads Zia-ul-Haq
hershöfðingja árið 1977 og hann síðar tekinn af lífi.
Benazir var um tíma í varðhaldi.
Benazir Bhutto lagði stund á háskólanám í Banda-
ríkjunum og Bretlandi og féll þar að eigin sögn fyrir
lystisemdum lýðræðisins.
Benazir Bhutto varð fyrsta konan til að verða kjör-
in til forystu í múslimaríki en hún tók fyrst við starfi
forsætisráðherra í Pakistan árið 1988, 35 ára að
aldri. Hún lét af embætti 1990 vegna gruns um spill-
ingu en komst aftur til valda þremur árum síðar og
sat á forsætisráðherrastóli til 1996. Aftur var henni
borin spilling á brýn og árið 1998 hélt hún til Dubai í
sjálfskipaða útlegð.
Bhutto sneri aftur til Pakistans í október 2007 eft-
ir að Pervez Musharraf forseti veitti henni friðhelgi
og hreinsaði hana af öllum grun um spillingu. Hún
hugði á endurkomu í stjórnmálin og var forsætisráð-
herraefni stjórnarandstöðunnar fyrir kosningarnar í
ársbyrjun 2008. Bhutto var þó ekki í kjöri því hún var
ráðin af dögum 27. desember 2007 skömmu eftir að
hún yfirgaf kosningafund flokks síns, Þjóðarflokks-
ins, í borginni Rawalpindi.
Ári síðar hlaut Benazir Bhutto Mannréttinda-
verðlaun Sameinuðu þjóðanna.
Féll ung fyrir lysti-
semdum lýðræðisins
Benazir Bhutto var umdeildur stjórnmálamaður í Pakistan.
Reuters
Jón Ásbergsson
framkvæmdastjóri Útflutningsráðs:
Markaðssókn og útflutningsaðstoð
Reynslusögur og framtíðarsýn
>> Eldar Ástþórsson
kynningarstjóri Gogoyoko.com
>> Halla Helgadóttir
framkvæmdastjóri
Hönnunarmiðstöðvar Íslands
>> Rúnar Ómarsson
framkvæmdastjóri Nikita
Lokaorð
>> Friðrik Pálsson
hótelhaldari Hótel Rangár
12.00-13.00 Léttur hádegisverður
og tengslamyndun
>> Frá klukkan 11.15 til 12.00
Birna Einarsdóttir
bankastjóri Íslandsbanka
Fjármálageirinn og útflutningur
– syllustefna Íslandsbanka
Reynslusögur og framtíðarsýn
>>Eggert Benedikt Guðmundsson
forstjóri HB Granda
>>Sigsteinn Grétarsson
forstjóri Marels á Íslandi
>>Svana Helen Björnsdóttir
forstjóri Stika
>>Eyþór Arnalds
framkvæmdastjóri Strokkur Energy
11.00-11.15 Kaffihlé
Fjármögnun og sókn
á nýja markaði
>> Frá klukkan 10.15 til 11.00
Fundarstjóri, Guðrún Högnadóttir,
framkvæmdastjóri Opna háskólans
í Háskólanum í Reykjavík, setur fundinn.
Grímur Sæmundsen
varaformaður Samtaka atvinnulífsins:
Útflutningsdrifinn vöxtur og samkeppnishæfni
íslenskra fyrirtækja
Bjarni Már Gylfason
hagfræðingur Samtaka iðnaðarins: Þróun
útflutnings - staðan í dag og vaxtartækifæri
Reynslusögur og framtíðarsýn
>> Rannveig Rist
forstjóri Alcan á Íslandi
>> Birkir Hólm Guðnason
framkvæmdastjóri Icelandair
10.00-10.15 Kaffihlé
Dagskrá
>> Frá klukkan 9.00 til 10.00
Reynsla, þekking
og stuðningsumhverfi
Staða útflutnings
í dag
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I
/
S
ÍA
1
0
-0
4
5
8