SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 34
34 2. maí 2010
Þ
að er ekki hægt að líkja hand-
smíðuðum gítar við þann sem er
verksmiðjuframleiddur. Hver
handsmíðaður gítar hefur sína
eigin sál og sinn eigin hljóm, enda liggur
um 300 klukkutíma vinna að baki einum
gítar sem er handsmíðaður. Maður kemst
ekki upp með annað en að vanda sig. Þetta
er hljóðfæri og það þarf að virka vel sem
slíkt og líka vera fallegt,“ segir Eggert Már
Marinósson, fyrsti menntaði gítarsmiður
Íslands, en hann hefur smíðað margan eð-
algripinn undanfarin átján ár. Hann er
þekktur fyrir mikla vandvirkni og gerir
kröfur til sín, skilar aldrei af sér verki
nema hann sé sjálfur fullkomlega sáttur.
Fyrir vikið er hvert hljóðfæri sem hann
smíðar mikið listaverk, enda er talað um
gítarsmíði sem afar vandasamt handverk.
Vélræn vinna hentar mér ekki
Aðeins eru tveir gítarsmiðir starfandi hér á
landi, Eggert og Gunnar Örn, en Eggert er
sá eini sem smíðar kassagítara, bæði
klassíska og stálstrengjagítara. „Gunnar
Örn er góður félagi minn og hann hefur
einbeitt sér að smíði rafmagnsgítara. Mér
finnst aftur á móti miklu meiri ögrun í því
að smíða kassagítara.“
Eggert er lærður húsgagnasmiður og
vann við það í nokkur ár. „Ég leigði mér
skúr við hliðina á heimili mínu og gerði
þar upp gömul húsgögn. En mér fannst
ekki spennandi tilhugsun að verða fimm-
tugur á húsgagnaverkstæði að smíða inn-
réttingar. Það er allt of vélrænt og höfðar
ekki til mín. Mig hafði alltaf langað til að
læra gítarsmíði en það var ekki kennt hér
heima svo ég skellti mér til Englands í nám
í einkaskóla, The Totnes School of Guit-
armaking. Við vorum aldrei fleiri en sjö
nemendur í einu og við fengum lykil að
verkstæðinu. Þetta hentaði mér vel því ég
er mikill nátthrafn og ég vann oft á nótt-
unni, stundum til klukkan fimm að
morgni. Þá kom vissulega fyrir að ég
mætti aðeins of seint í skólann.“
Eins og byggðasafn
Eggert lauk gítarsmiðsnáminu árið 1992
og fyrstu árin eftir að hann kom heim var
hann með aðstöðu í bakherbergi hjá
Andrési í Tónastöðinni. „Síðan var ég
Þingholtunum um tíma og á fleiri stöðum
en að lokum fór ég með verkstæðið hingað
inn á heimili mitt. Þetta hefur breitt veru-
lega úr sér hérna, gítarsmíðin hefur eig-
inlega tekið völdin,“ segir Eggert og það
eru orð að sönnu. Að koma þangað er ekki
ólíkt því að ganga inn á byggðasafn, því
mikið er af gömlum hlutum og verkfærum
upp um alla veggi. „Ég hef viðað þessu að
mér í gegnum tíðina,“ segir Eggert sem
kann vel við sig innan um gamla hluti og
stemningin er einstök á þessu heimili sem
einnig er gítarsmíðaverkstæði. Í gegnum
mikinn reykjarmökk í einu herberginu
glittir í Björn Bollason vin hans sem er að
beygja gítarhliðar í móti sem þarf að sjóð-
hita svo hægt sé að forma viðinn.
„Bjössi hefur aðstoðað mig mikið í
gegnum tíðina og í haust þegar hann var
að hjálpa mér við að raspa gítarháls, þá
spurði hann hvort hann mætti smíða gít-
ar. Ég játti því og það gekk vel hjá honum,
enda er hann mjög vandvirkur en hann
getur samt unnið hratt. Það er gaman hjá
okkur þegar við erum báðir í stuði.“
Krefst mikillar þolinmæði
Bjössi er starfandi húsasmiður en hann
stundar gítarsmíðina hjá Eggerti eftir
vinnu. Í húsasmíðinni hefur orðið mikill
samdráttur svo hann hefur meiri frítíma
en áður og einnig varð mikil lífsstíls-
breyting hjá honum fyrir um ári. Hann
Hér eru þeir Bjössi og Eggert með fjóra ólíka gítara og sá þeirra sem er lengst til vinstri er eins og sjá má
Hver gítar
hefur sína
sérstöku
sál og hljóm
Listasmiðirnir Eggert og Bjössi una hag sínum
vel þar sem þeir nostra við að handsmíða gítara
innan um gömul tól og tæki. KK og fleiri snill-
ingar eru meðal viðskiptavina.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Mörg eru þau áhöldin, stór og smá sem nota þarf við smíðina.
Heimili Eggerts er undirlagt af hljóðfærasmíði hans. Í einu herberginu eru fiðlur uppi á vegg,
steðji á borði, hefill uppi á hillu og glerílát forn fylla heilan skáp.
Gítarar eru gerðir úr mörgum og
ólíkum viðartegundum en Eggert og
Bjössi nota hágæðaefni, brasilískan
rósavið sem er eftirsóttasti viðurinn
í kassagítar. Þetta gerir þá vissulega
dýra en hljóminn miklu betri.
Handsmíðaður gítar hjá Eggerti
kostar frá 650 þúsund krónum.
„Efniskostnaður hefur hækkað
svo rosalega, nánast allt efni er inn-
flutt frá Bandaríkjunum og doll-
arinn ekki mjög hagstæður fyrir
okkur Íslendinga. En að kaupa
handsmíðaðan gítar er langtíma-
fjárfesting. Ef fólk hugsar vel um
hann getur hann enst í margar kyn-
slóðir.“
www.emson.is
Margar ólíkar
viðartegundir