SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 32
32 2. maí 2010
T
aktfull tónlist fyllir salinn og
einn af öðrum renna krakkarnir
sér inn á gólfið, flestir með húfu
þótt innanhúss sé, og taka hina
undarlegustu hlykki og höfuðsnúninga
um leið og þeir flækja fæturna á sjálfum
sér svo að nánast verður hnútur úr – en
vandræðalaust þó. Það virðist ekki vanta
lífið og sálina í skakið enda leggja menn
sig alla fram og í hvert sinn sem lófum er
klappað er skipt út dansara. Allir nema
einn eru strákar – nokkuð sjaldgæf staða í
danskennslu á Íslandi.
Þetta er samt engin nýlunda fyrir
kennaranum í þessum hóp, Natöshu
Monay Royal. Í yfir áratug hefur hún ver-
ið búsett hér á landi við að kenna íslensk-
um börnum og ungmennum götudans (e.
streetdance), en undir það falla ýmsir
dansstílar, s.s. hipphopp, break, krump,
house og freestyle. „Ég er fædd og uppalin
í New York og kom í fyrsta sinn til Íslands
í heimsókn árið 1997 með vinkonu
minni,“ segir hún. „Vinur minn vissi að
ég dansaði og sagði mér þá frá stórri
uppákomu eða partíi sem var haldið fyrir
unglinga í Kolaportinu. Ég fór þangað og
dansaði sem vakti mikla athygli; ungling-
arnir bókstaflega störðu á mig enda höfðu
þeir aldrei séð neitt þessu líkt. Nokkrum
dögum síðar var hringt í mig frá dans-
skóla þar sem ég var beðin um að kenna
götudans, sem ég gerði í stuttan tíma, en
svo þurfti ég að fara aftur út. Ég kom hins
vegar aftur árið á eftir og hef búið hérna
síðan, enda festist ég strax í danskennsl-
unni.“
Byrjaði tíu ára að dansa á götunum
Strax eftir að Natasha flutti til Íslands
1998 fór hún að kenna í Dansskóla Heið-
ars Ástvaldssonar, en síðar í Kramhúsinu
og á fleiri stöðum, bæði á höfuðborg-
arsvæðinu og úti á landi. Þar fyrir utan
starfar hún á Landakotsspítala en hefur
nýlega minnkað við sig vinnuna þar til að
geta sinnt danskennslunni á fullu um eft-
irmiðdaginn og fram á kvöld. Þar fyrir ut-
an tekur hún sjálf þátt í ýmiss konar sýn-
ingum og hefur verið fengin til að troða
upp sem dansari með hljómsveitum, ekki
síst erlendum böndum sem hafa komið
hingað til lands að spila.
„Ég kynntist götudansinum í gegnum
Fótaflækjur og höfuðsnúningar virðast ekki þvælast fyrir strákunum sem gefa sig alla í götudansinn og tilheyrandi stellingar. Þeir eru sennilega ófáir guttarnir sem vildu leika þetta eftir.
Morgunblaðið/hag
Beint af stræt-
um stórborg-
arinnar
Stútfullur salur af strákum sem dansa af
lífi og sál er ekki hversdagssjón á Íslandi,
en Natasha Monay Royal kann að kveikja
taktinn í hinum harðsnúnustu töffurum.
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Þessir svölu herramenn eiga ekki í nokkrum vandræðum með réttu taktana.
Natasha Money Royal hefur kennt íslenskri æsku götudans í rúman áratug.
Dans