SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 11

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Blaðsíða 11
2. maí 2010 11 SÍMI 551 1200 LEIKHUSID.IS „Mikið rosalega held ég að Ingvari E. Sigurðssyni finnist gaman að leika Jón Hreggviðsson.“ Mbl, GSB Fbl, EB „Þjóðleikhúsið heldur upp á sextugsafmæli sitt með glæsilegustu veislu sem við höfum lengi setið, frábærri nýrri og frumlegri túlkun á Gerplu og svipmikilli og skemmtilegri útfærslu á Íslandsklukkunni.“ TMM, SA SMÁRÉTTIR Í HLÉI AÐ HÆTTI SIGGA HALL Pantaðu í miðasölunni AÐEINS 1.500 kr. Tryggðu þér miða á fyrstu sýningar! ATH. Sýningar hefjast kl. 19.00 Fös 14/5 kl. 19:00 U Mið 19/5 kl. 19:00 U Fös 21/5 kl. 19:00 U Lau 22/5 kl. 19:00 U Sun 30/5 kl. 19:00 U Lau 1/5 kl. 19:00 U Fös 7/5 kl. 19:00 U Lau 8/5 kl. 19:00 U Mið 12/5 kl. 19:00 U Fim 13/5 kl. 19:00 Ö Fim 3/6 kl. 19:00 U Fös 4/6 kl. 19:00 Ö Lau 5/6 kl. 19:00 Ö Fös 11/6 kl. 19:00 Ö Lau 12/6 kl. 19:00 Stangveiði Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Í fyrsta kasti í Holuna var rifið kröftuglega í flug- una og þegar ég lyfti stönginni sveif silfraður fiskur upp úr hylnum. Hann stökk ekki einu sinni heldur fjórum sinnum. Smám saman tókst mér að lempa sjóbirting- inn að landi og skömmu síðar synti 55 cm geldfiskurinn, feitur og pattaralegur, eflaust ein fimm pund að þyngd, aft- ur út í ána. Flugan sveif í ann- að sinn yfir hylinn og var varla sokkin þegar aftur var rifið í hana, að þessu sinni um tveggja punda hrygnd hrygna sem einnig fékk frelsið. Þegar þriðja og fjórða kast vöktu engin viðbrögð í djúpinu tók ég að fyllast efasemdum; var takan dottin niður? Það var þó engin ástæða til að örvænta því í fimmta kasti var tekið þungt í Black Ghost-straum- fluguna. Þetta var líka þungur fiskur. Ég togaðist lengi á við birtinginn sem þumbaðist fram og aftur í Holunni og sveigði stífa stöngina hressi- lega. Ég var farinn að líta í kringum mig og leita að veiði- félögunum sem voru vænt- anlegir á hverri stundu. En lómur og tvær lóur voru einu vitnin að því þegar 80 cm löngum hængnum var loks landað; eftir mælingu kvaddi hann með pirringslegri sporð- sveiflu sem jós vatni framan í mig. Svona byrjaði veiðisum- arið. Rykugir tjaldar og birtingar Sökum anna hefur hugurinn furðu lítið hvarflað að veiði í vor. En þegar tækifærið gafst í vikunni að skjótast austur í draumalendur sjóbirtingins funaði veiðihugurinn upp. Leiðin lá undir öskuskýið frá Eyjafjallajökli og vissulega var sjónarspilið glæsilegt á Suður- landi, með gosstrókinn fyrir augum. Gamanið kárnaði þó undir Eyjafjöllum, þar sem stífur vindur þyrlaði ljósbrúnu öskurykinu um allt. Tryggð tjaldaparsins við heimahagana var aðdáunarverð, þar sem þeir kúrðu sig niður í sótugum vegkantinum við Þorvaldseyri, rykugir og rauðeygðir. Gosið hamlaði vorveiði- mönnum för austur í sveitir í nokkra daga en eftir að veg- urinn var opnaður að nýju hafa borist fregnir af góðri veiði; mok í Steinsmýrar- vötnum, boltafiskum hanpað í Tungufljóti og víst hefur það einnig verið gott í Geirlandsá og í Vatnamótum. Og í Tungu- læk. Það sannreyndi ég á þessum tveimur tímum sem ég náði að kasta í þá góðu veiðiá um kvöldið. Það var í Holunni sem ég landaði þess- um þremur áður en félagarnir mættu. Áður en við hættum hafði ég haft hendur á tveimur til og félagarnir fengu líka nokkra, á bilinu 45 til 80 cm langa. Daginn eftir fannst okkur sumarið vera komið. Hitinn lyfti sér upp í níu gráður; þegar mildum skúrunum létti blasti dýrð Vatnajökuls við. Og fiskarnir héldu áfram að taka, af og til. Við köstuðum víða og yfirferðin skilaði árangri. Saman fengum við þrír um 30 birtinga og eina bleikju, á um fimm eða sex tímum. Það er ekki slæmt. Að standa á bakk- anum með flugustöng í hendi, kasta vonglaður fyrir þennan kröftuga fisk, hlýða á köll lómsins og fylgjast með flotum farfugla mæta til landsins. Nei, það er ekki slæmt. Eitt sem við ræddum við Tungulæk þennan morgun er hvort það skiptir nokkru máli að skipta um flugu; hvort fiskurinn taki ekki þá flugu sem berst að honum þegar hann er í stuði til að taka. Fé- lagi minn var sannfærður um að svo væri. Eftir að hafa veitt síðasta hylinn í ferðinni er ég ekki viss. Í veiðistað sem kall- ast Gussi var greinilega tals- vert af fiski. Ég byrjaði með svartan Nobbler á taumnum og veiddi mig niður um tíu metra langa breiðu. Í fyrstu umferð vakti flugan sífellt viðbrögð. Ég landaði tveimur fjögurra punda fiskum og fékk allnokkur högg til. Þá fór ég aðra umferð með sömu flugu – án þess að verða var. Þá skipti ég, setti Black Ghost undir og aftur varð allt vitlaust; ég setti í einn og landaði og missti tvo aðra. Í næstu umferð með sömu flugu gerðist ekkert. Ég klippti hana af taumnum og leyfði mér að draga þá ályktun að eftir að hafa séð fluguna einu sinni misstu fiskarnir áhugann á henni. Eflaust kemst ég að einhverju öðru í næstu ferð. En veiðitímabilið er svo sannarlega hafið. Svona byrjaði veiðisumarið Þarna tók hann! Vænn sjóbirtingur stekkur í veiðistaðnum Eykon í Tungulæk. Morgunblaðið/Einar Falur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.