SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Side 12

SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Side 12
12 2. maí 2010 É g vil ítreka við félagsmálaráðu- neytið, ráðherra, þingmenn og aðra sem málið varðar að biðtími vegna „úrræða“ fyrir skuldugt fólk í greiðsluörðugleikum er alltof langur og úrræðin eru gjörsamlega óviðunandi.“ Þannig hófst bréf sem Úlfur Eldjárn tónlistarmaður skrifaði öllum þingmönn- um á hádegi á þriðjudag. Úlfur heldur því fram að úrræðum bankanna sé ábótavant fyrir heimili í greiðsluvanda. „Já, það er rétt en kannski ekki rétt að kenna bönkunum sjálfum um. Stjórnvöld tóku þá vondu afstöðu að bönkunum væri best treystandi til að meta og bregðast við skuldavanda viðskiptavina sinna. Hins- vegar voru þau úrræði sem bankarnir bjóða að mestu hönnuð í félagsmálaráðu- neytinu. Þar liggur sökin og hjá rík- isstjórninni í heild sinni.“ Hræðilegur sannleikur – Þú hefur gagnrýnt stjórnvöld harkalega fyrir að bregðast ekki við? „Já, ég hef af veikum mætti reynt að benda yfirvöldum og þingmönnum á þetta,“ segir Úlfur. „Þessi ríkisstjórn komst til valda í nafni endurreisnar og norrænnar velferðar. Hún gaf sig út fyrir að vilja tryggja hag lág- tekjufólks, atvinnulausra og þeirra sem eru lægra settir í þjóðfélaginu. Hún lagðist alfarið gegn hugmyndum um flatar af- skriftir skulda á þeim forsendum að slíkt myndi aðallega gagnast hátekjufólki og þeim sem þyrftu síst á aðstoð að halda. Þegar úrræði bankanna og félagsmála- ráðuneytisins eru skoðuð kemur hins- vegar hræðilegur sannleikur í ljós. Úrræð- in gagnast fyrst og fremst hátekjufólki sem hefur skuldsett sig óhóflega. Fólk með lægri tekjur þarf bæði að bíða lengur í kerfinu og fær verri úrræði en þeir sem eru með mjög góðar og öruggar tekjur. Þetta er ekki arfleifð frá fyrri stjórnvöldum, eða á ábyrgð nýju bankanna, heldur eru þetta beinar afleiðingar af stefnu núverandi rík- isstjórnar. Ég vil minna á að þau úrræði sem nú eru í boði í kerfinu voru kynnt ekki alls fyrir löngu sem „endanleg lausn“ á vandræðum allra skuldara.“ – Er hópum samfélagsins mismunað? „Já, það er hinn sláandi sannleikur og fólk í samfélaginu verður að vakna og átta sig á þessari staðreynd,“ segir hann. „Í bankakerfinu er boðið upp á skuld- breytingu erlendra og verðtryggðra lána yfir í óverðtryggð íslensk lán. Slíkt hefur í för með nokkra eftirgjöf skulda en hærri greiðslubyrði. Gagnast fyrst og fremst þeim sem hafa háar tekjur. Annað úrræði sem er boðið upp á í bönkunum er svokölluð sértæk skuldaað- lögun. Þetta er úrræði fyrir fólk sem skuldar mun meira en það á, til dæmis fólk með há erlend húsnæðislán. Eins og hún virkar í mínum banka er veitt nýtt lán miðað við 110% af markaðsvirði húsnæð- isins. Það sem stendur út af er afskrifað. Fyrstu árin greiðir þú aðeins sem nemur 80% af nýju láni vegna eignarinnar. Eftir þrjú ár byrjar þú að greiða af allri upp- hæðinni og greiðslubyrðin hækkar sam- kvæmt því. Þetta lítur mjög fallega út á heimasíðu bankans en til að komast í þetta prógramm þarf skuldari að standast greiðslumat hjá bankanum. Til þess að standast þetta greiðslumat þarft þú hins- vegar að geta sýnt fram á mjög,“ segir hann með áherslu, „góðar og stöðugar tekjur. Þetta er því úrræði sem nýtist fyrst og fremst til að afskrifa skuldir há- tekjufólks sem skuldar verulega umfram eignir.“ Mismunað eftir tekjum – Hefur þú sjálfur þurft að eiga við kerfið? „Já, og þar sannaðist að úrræðin eru allt of tímafrek og flókin. En biðtími eftir úr- lausnum er mun lengri hjá þeim sem hafa lægri tekjur eða eru atvinnulausir því úr- ræði bankanna gagnast þeim ekki. Engu að síður er þér uppálagt að leita fyrst til bankans sem leggur mat á aðstæður við- skiptavinarins. Það tók mig rúmlega 7 vikur að komast í gegnum greiðslumat hjá bankanum. Út úr því kom eiginlega ekki neitt. Allar líkur eru á að mál mitt þurfi næst að fara til Ráðgjafarstofu heimilanna. Þar þarf ég að fara aftur í nákvæmlega sama greiðslumat sem tekur 6-8 vikur í vinnslu þar. Ekki er hægt að spara tíma með því að notast við greiðslumatið úr bankanum. Það hefði auðvitað verið alltof einfalt. Eftir greiðslumat þarf ég svo hugsanlega að sækja um sértæka skuldaaðlögun hins op- inbera sem er annað form á nauðasamn- ingum og í raun dómstólamál. Ef ég fer í slíkt mál með aðstoð Ráðgjafarstofu heim- ilanna getur sá ferill tekið marga mánuði. Hinsvegar, ef þú hefur efni á að ráða þér lögfræðing, þá getur þú rekið málið sjálfur á mun styttri tíma. Þarna er aftur verið að mismuna eftir tekjum. Ef þú hefur smá pening eða hefur aðgang að lögfræðingi í fjölskyldunni þá kemstu miklu hraðar í gegnum ferlið, ef þú ert bara atvinnulaus með hor þá ferðu aftast í röðina. Ég end- urtek, þetta fyrirkomulag var hannað og útfært í félagsmálaráðuneytinu.“ Risavaxin mistök – Hefurðu fengið einhver svör við gagn- rýni þinni? „Ég fékk svar frá félagsmálaráðherra. Hann segir að þau úrræði sem eru í boði bjóði upp á „skilvirkan farveg til að taka á erfiðum skuldamálum“. Margra mánaða bið í kerfinu, án þess þó að nokkur trygg- ing sé fyrir því að mál þitt fái farsæla lausn, er mjög langt frá því að vera „skil- virkur farvegur“. Hann er að segja ósatt. Hvað á maður að segja við mann í ábyrgð- arstöðu sem leyfir sér að ljúga upp í opið geðið á manni? Hvað finnst fólkinu í land- inu um að vera með félagsmálaráðherra sem segir ósatt?“ – Þetta eru þung orð. „Stjórnvöld tóku þá afstöðu mjög snemma til skuldavanda heimilanna að hann væri í fyrsta lagi ekki eins mikill og af var látið og í öðru lagi að besta lausnin á honum væri að láta bankana sem allra mest um að leysa hann. Þetta voru risa- vaxin mistök og slæm pólitísk ákvörðun sem stjórnvöld verða bara að gangast við og viðurkenna. Út úr því komu þær lausn- ir sem nú standa til boða og gagnast eins og áður sagði fyrst og fremst fólki með hærri tekjur. Arkitektinn að þessu stoðkerfi fyrir yf- irskuldsett hátekjufólk er Árni Páll Árna- son félagsmálaráðherra. Hann ber ábyrgð á því að hafa leyst úr þessu verkefni með þessum hætti og að hafa ráðið sér til ráð- gjafar fólk á borð við Yngva Örn Krist- insson, fyrrverandi framkvæmdastjóra verðbréfasviðs Landsbankans og einn stærsta einstaka kröfuhafa í þrotabú Landsbankans. Hvernig dettur mönnum í hug að ráða einn af bónusakóngum bankanna til að leggja mat á vanda skuldsettra heimila? Hvaða aðferð notar maður sem er með launakröfu á einn af bönkunum upp á meira en 200 milljónir til að setja sig í spor þeirra sem hafa innan við 200 þúsund á mánuð? Raunverulegi tilgangurinn með þessu kerfi er ekki að hjálpa þeim lægst settu og verst settu. Þetta snýst um að Úlfur Eldjárn tónlist- armaður sendi alþing- ismönnum bréf í vik- unni, þar sem hann deildi harkalega á úr- ræðaleysi vegna skuldavanda heim- ilanna. Hann segir úr- ræðin duga skammt, að fólki sé mismunað og er harðorður í garð stjórnvalda. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Úlfur Eldjárn tónlistarmaður segir stjórnvöld ekki bjóða upp á úrræði fyrir fólk í greiðsluvanda. Hann sést hér við Hegningarhúsið. „Stærsta og ósanngjar- nasta eignatilfærsla Íslandssögunnar“

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.