SunnudagsMogginn - 02.05.2010, Síða 13
2. maí 2010 13
hjálpa bönkunum að bjarga verðmæti lán-
safna sinna og halda hátekjufólki í við-
skiptum. Ég fæ ekki betur séð en að fé-
lagsmálaráðuneytið hafi sett
yfirstéttarhópa í skuldavandræðum í sér-
stakan forgang í kerfinu.“
Ennþá töff að vera ríkur
– Þekkirðu marga sem eiga í greiðslu-
vanda?
„Já, en ég þekki ekki marga sem eru til í
að tala um það opinskátt. Það þykir nefni-
lega ennþá svo töff að vera ríkur á Íslandi.
Ég held að það auki enn meira á þjáningu
þeirra sem eru farnir að eiga erfitt með að
ná endum saman. Ég held að fólk sem á til
dæmis erfitt með að halda uppi ákveðnum
lífsgæðastandard fyrir börnin sín skamm-
ist sín mjög mikið fyrir það.“
– Talað hefur verið um að heil kynslóð
hafi orðið undir í bankahruninu; sú kyn-
slóð sem er skuldsett vegna húsnæðis-
kaupa og er á sama tíma að koma börnum
á legg. Þú ert sjálfur í þessum hópi, með
börn og húsnæðisskuldir.
„Það má vel vera. Ég er kannski ekki í
verstu málunum af öllum, en eftir að hafa
kynnt mér úrræðin þá fæ ég sting í hjartað
og óbragð í munninn og verður hugsað til
alls þess fólks sem er að reyna að ala upp
börn en er þó í miklu verri málum en ég,
atvinnulega, félagslega o.s.frv. Að minnsta
kosti er augljóst að öryggisnetið nær frek-
ar til hátekjufólks en ekki þessa mikilvæga
hóps. Það er vægast sagt spes.“
– Stundum er talað um að fólk hafi sjálft
steypt sér í þessar skuldir og
þurfi að bera ábyrgð á því. Finnst þér
það sanngjarnt eða hefur orðið
forsendubrestur?
„Það er augljóst að það hefur orðið for-
sendubrestur og jafnvel þótt sumt fólk
hafi hegðað sér óskynsamlega þá afsakar
það ekki að venjulegu fólki sé sökkt í
botnlausar skuldir vegna þessa. Gæti ekki
líka verið að eitthvað af skuldsetta há-
tekjufólkinu, sem bankakerfið er nú með
heimild félagsmálaráðherra til að umbuna,
hafi hugsanlega komist í einhverrar
skuldir vegna óábyrgrar hegðunar í góð-
ærinu?
Það sem er að gerast núna er einhver
stærsta og ósanngjarnasta eignatilfærsla
Íslandssögunnar. Fólk situr uppi með
stökkbreytt húsnæðislán, upphæðir sem
því hefði aldrei dottið í hug að taka að láni.
Á sama tíma hafa fjármagnseigendur notið
100% tryggingar innlána og menn með
vafasama fortíð fá jafnvel fyrirgreiðslu frá
ríkinu til að endurheimta drottnunarvald
sitt yfir íslensku samfélagi. Hverskonar
stjórnvöld eru það sem leyfa þessu að við-
gangast? Norræn velferðarstjórn? Fé-
lagshyggjustjórn?
Það versta er að þótt stjórnmálamenn-
irnir segi annað, þá hagar kerfið sér samt
eins og vandi skuldara sé sjálfsprottinn –
þeim sjálfum að kenna. Kerf-
ið kemur fram við fólk í
skuldavandræðum eins og
fjáróreiðumenn á meðan
vandi þeirra er í raun tilkom-
inn vegna vanhæfra stjórn-
málamanna, mistaka emb-
ættismanna og ekki síst
siðleysis og glæpa fyrrverandi
eigenda og stjórnenda bank-
anna. Ég þarf varla að fara
nánar út í þá sögu.“
Þarf að grípa til neyðaraðgerða
– Hvað leggurðu til?
„Ég legg til að ríkisstjórnin viðurkenni
mistökin og bregðist við með hraði. Hug-
myndir félagsmálaráðherra um embætti
umboðsmanns skuldara koma alltof seint
fram. Það má ekki láta eins og hann sé ný-
tekinn við í ráðuneytinu. Það voru hans
mistök að bregðast ekki strax við. Ráð-
herrann ætti auðvitað að viðurkenna mis-
tök sín og stíga til hliðar án tafar. En auð-
vitað er engin hefð fyrir því að viðurkenna
mistök sín í íslenskum stjórnmálum.
Hvað sem því líður þá skora ég á ríkis-
stjórnina að grípa til neyðaraðgerða.
Koma með alvöru úrræði og veita at-
vinnulausum og þeim tekjulægstu forgang
í kerfinu. Það hefur verið bent á ýmsar
leiðir sem eru fljótlegri, m.a. í gegnum
skattkerfið eða sérstakan gerðardóm.
Talsmaður neytenda, Hagsmunasamtök
heimilanna og fleiri hafa lagt til ýmis úr-
ræði sem stjórnvöld hafa ekki einu sinni
haft fyrir að svara. Ég skora um leið á alla
þingmenn, sérstaklega óbreytta þing-
menn stjórnarliðsins sem verja stjórnina
falli í nafni jafnréttis og velferðarmála, að
setja þrýsting á ríkisstjórnina.“
Morgunblaðið/Golli
’
Ég legg til
að rík-
isstjórnin
viðurkenni mis-
tökin og bregðist
við með hraði.
33
milljónir
Sambýlisfólk með tvö börn og einn bíl.
Þau eiga íbúð sem er
metin á 30 milljónir á
núvirði, en lánið á henni
er upp á 40 milljónir.
Verðmæti:
30
milljónir
Lán:
40
milljónir
30
milljónir
Þau vilja fara í greiðsluað-
lögun sem lækkar höfuðstól
lánsins í 110% af núvirði.
(Við slíka breytingu er núvirði aldrei
reiknað lægra en fasteignamat.)
Ef það er hægt, verða
7 milljónir afskrifaðar.
7
milljónir
Til að þetta gangi
þurfa þau að ráða við
greiðslubyrði af sem
nemur 80% af markaðs-
verðmæti íbúðarinnar,
eða um 24 milljónum.
80%
=24
Afborganir af 24 milljónum eru um 125.000 á mánuði.
(Lægsta mögulega afborgun sem miðast við verðtryggt jafngreiðslulán.)
til að sýna fram á að þau ráði við þá afborgun
þurfa þau að standast greiðslumat.EN
Framfærsla: 233.400
Bíll: 45.000
Rekstur húsnæðis: 74.600
Afborganir af láni: 125.000
Greiðslur af biðláni: 51.000
Samtals: 529.000
Upplýsingar fyrir greiðslumat
Neysluviðmið frá Ráðgjafa-
stofu plús 50% álag sem
notað er við útreikning
skuldaaðlögunar.
Viðmiðunartölur
notaðar við útreikning
skuldaaðlögunar.
Áætlaður rekstur reiknaður
út frá tölum sem Hagstofa
Íslands gefur út.
Lágmark.
Bætist við greiðslu-
byrði eftir 3 ár.
Sambýlisfólkið þyrfti því að vera með
samanlagðar tekjur upp á minnsta
kosti 530.000 eftir skatta á mánuði.
Ef þau ná þeim tekjum
komast þau í skuldaaðlögun
bankanna og getur banka-
kerfið afskrifað 7 milljónir
af láninu.
Þau byrja þá að borga af
B-láninu, 9 milljónunum, eftir
að hámarki þrjú ár.
Ef þau ná þeim EKKI
eða eru atvinnulaus, verða
þau send til Ráðgjafastofu
heimilanna þar sem þau
sækja um sértæka greiðslu-
aðlögun ríkisins. Það er
margra mánaða ferli og ekki
víst að niðurstaðan verði
þeim í hag.
?
30
milljónir
B-lán, 9 milljónir,
sem er afborgunarlaust
að hámarki í 3 ár
Lánið skiptist í: A-lán,
24 milljónir
og